Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hulda með riffil hlaðinn af ótta við bjarndýr: ,,Ég hefði aldrei hitt en það er sama!“ FYRRI HLUTI

Hulda með riffil hlaðinn af ótta við bjarndýr: ,,Ég hefði aldrei hitt en það er sama!“ FYRRI HLUTI

Árið 1951 flutti Hulda Egg­erts­dóttir sextán ára gömul með manni sínum Þorkeli Sig­munds­syni í Hornvík á Ströndum. Árið 1947 höfðu síð­ustu ábú­end­urnir yfir­gefið hrepp­inn  og því voru þau ein um búskap þegar þau bar að garði. Næsta byggða ból var Horn­bjargsviti við Látravík.

Aðdrag­and­inn var sá að Hulda hafði farið sem ráðs­kona með svoköll­uðum eggja­köllum sem sóttu sér egg í bjargið við Hornvík. Þeir höfðu stundað eggja­töku þarna áður og ákváðu að halda eggja­tök­unni áfram þrátt fyrir að búskapur væri þar eng­inn lengur.

Þarna kynnt­ist hún mann­inum sínum sem var einn af eggja­köll­unum. Árið 1950 fer parið svo saman í heim­sókn á Horn­bjargsvita við Látravík þar sem systir manns hennar og mágur voru vita­verðir. Þau lentu í því að það gerði brjálað veður með þeim afleið­ingum að vita­skipið sem átti að færa þeim vistir get ekki lent í vík­inni.

Maðurinn hennar, sem þá var reyndar kærast­inn hennar, fór ásamt vita­verð­inum út á Horn til að sækja bráða­birgða­vistir. Hún gleymir því aldrei hvaða fjórir hlutir voru til í búr­inu en það var strá­sykur, hafra­mjöl, lýsi og litað syk­ur­vatn. Veðrið var svo vont að það var ekki hægt að fara út á sjó til að sækja fugl eða fisk en þó tókst manni Huldu að kom­ast upp á Axar­fjall og skaut þar máf. Þau plokk­uðu hann, sviðu, suðu og höfðu hann í súpu en í minn­ing­unni var þetta alveg æðis­legt.

Þau finna svo sex eða sjö ára gam­alt hangi­kjötslæri sem þau ákváðu að sjóða og plokka svo utan af því en það kunni ekki góðri lukku að stýra því, viti menn, þau fengu öll í mag­ann!

Eftir þessa lífs­reynslu hefur Hulda alla tíð þurft að eiga til birgðir af mat og ver­andi ein í búi hefur hún tvær fullar frystikistur sem hún áætlar að gæti enst henni í mán­uði eða ár en þessi siður hefur gengið í erfðir því börnin hennar hafa allar kistur fullar að hennar for­dæmi.

Þarna í óveðr­inu kemur upp hug­myndin að flytja að Horni en Pétur mágur hennar spyr þau, unga parið, hvort þau vilji ekki bara flytja að Horni í hús hans og systur Huldu. Hún svar­aði því að það gæti verið gaman að reyna það í einn vetur og þrátt fyrir að mágur hennar efað­ist um að þau þyrðu því tóku þau ákvörð­un­ina og fluttu.

Þau fluttu með sér eitt­hvað af fé og eina gráa kýr með skipi. Hún kveið því einna mest að þurfa að koma kúnni af skip­inu og í land. Þau áttu eina skektu fyrir vestan sem mað­ur­inn hennar hafði smíðað. Hún hafði áhyggjur af því að hún bæri ekki belj­una því skektan var þung og sá fyrir sér havarí þegar skektan tæki niður í fjör­unni. Kúnni var slakað um borð í skekt­una og henni haldið með þver­böndum en þegar hún kom að landi nán­ast því stökk dýrið í land því hún hafði fengið alveg nóg af atgang­inum.

Um vorið réðu þau til sín Konna bróðir Huldu sem kúasmala, en hann var þá níu ára. Konni þessi varð svo betur þekktur síðar sem Hrefnu-Konni. Eitt sunnu­dags­há­degið lögðu þau sig öll þrjú en þegar þau svo vakna finna þau hvergi belj­una. Þau fóru að leita um allt en hún var hvergi sjá­an­leg. Beljan fannst svo nokkuð hrakin á tíunda degi leitar við fjallið Snók sem er í um tíu kíló­metra fjar­lægð til suð­urs en hún hafði þá allan tím­ann verið á réttri leið til síns fyrra heim­ilis.

Hulda ótt­að­ist alltaf bjarn­dýrin en eitt skiptið þegar hún sat inni með kött­inn í fang­inu að hlusta á Helga Hjörvar lesa fram­halds­sög­una ,,Ferðin til El Doradó“ í útvarp­inu, mað­ur­inn hennar úti í fjósi að mjólka og víkin orðin full af hafís heyrir hún þetta ógur­lega öskur. Hún hugs­aði með sér að nú væri komið bjarn­dýr! Hún þreif þá lampann og óð út með kött­inn í fang­inu en þá er maður hennar að koma út úr fjós­inu og spurði hana hvort hún hafði heyrt þetta en minna mátti það vera því lætin voru svo mikil að beljan hent­ist undir bás­inn. Stuttu síðar kom svo annað öskur en ekki eins hátt. Þau fengu aldrei botn í þessi hljóð og hvort þetta voru hljóð frá haf­ísnum eða hvort um bjarn­dýr væri að ræða gátu þau ekki full­yrt um. Eftir þetta var hún alltaf með hlað­inn riffil­inn en hún efast um að hún hefði nokkurn tím­ann getað grandað bjarn­dýri.  ,,Ég hefði nátt­úru­lega aldrei hitt því ég hefði verið alveg skjálf­andi ef bjarn­dýr hefði komið en það er sama!“.

Þetta er fyrri hluti við­tals Reynis Trausta­sonar við Huldu. Seinni hlut­inn birt­ist eftir viku.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Nýtt bóka­for­lag vill efla íslensku­lestur meðal fólks af erlendum upp­runa

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu