Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Viggó öskraði á manninn að stökkva í sjóinn þegar Eggjagrímur var að sökkva: „Út í sjó“

Sigmaður Land­helg­is­gæsl­unnar, Viggó Sig­urðs­son, hefur komið að mörgum stórum björg­un­ar­að­gerðum á löngum ferli þrátt fyrir nokkuð ungan aldur en segir að ein sú minn­is­stæð­asta björgun sem hann hefur komið að sé þegar Eggja­grímur, lít­ill skemmti­bátur, sökk í Faxaflóa.

Tilkynnt var um að leki hefði komið að bátnum og þegar komið var á vett­vang seig Viggó niður og fékk til sín dælu sem hann ætl­aði að nota til að dæla sjó úr bátnum. Það var vont í sjó­inn þannig að dælan fór á kaf og hún fór aldrei í gang.

Þá blasti við að það þurfti að koma þeim tveimur mönnum sem voru um borð í burtu en þeir virt­ust taka ástand­inu með mestu ró og voru ekk­ert að stressa sig um of. Samhliða því var verið að reyna að koma línu í Eggja­grím til að rétta hann af en Í því kemur drag­nóta­bát­ur­inn Happa­sæll sem hafði verið skammt undan aðvíf­andi. Skip­stjóri Happa­sæls opn­aði glugg­ann og kall­aði til Viggós en hann heyrði ekki hvað sagt var svo hann hváði. Skip­stjór­inn end­ur­tók „Hann er að sökkva!“, en þá var bát­ur­inn far­inn að síga ískyggi­lega niður að aftan.

Þegar verið var að bjarga fyrri mann­inum frá borði sneri Viggó sér að því að und­ir­búa seinni mann­inn. Sá sat þá aft­ast í sökkv­bandi bátnum og sagð­ist vera fastur. Viggó átt­aði sig þá á því að nú var vesen.

Viggó reyndi að tosa mann­inn til sín sem hélt því til streitu að hann væri fastur. Hann vissi það ekki þá að mað­ur­inn var fros­inn af skelf­ingu en hann ályktaði að mað­ur­inn væri fastur í ein­hverjum spottum og myndi fara niður með bátnum ef þegar hann sykki og því voru góð ráð dýr.

Hann stakk sér til manns­ins og sá að hann var hvergi fastur og því öskr­aði hann á mann­inn: „Út í sjó!“

Eggja­grímur sökk en menn­irnir komust lífs af.

Sjáðu við­talið í heild sinni hér þar sem Viggó lýsir störfum sínum og björg­un­ar­störfum fyrir Land­helg­is­gæsl­una.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Menning

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar