Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Umdeildur læknir settur á ís af Hvíta húsinu

Dr. David Weldon fær ekki að stýra banda­rísku Sótt­varna­stofn­un­inni

Umdeildur læknir settur á ís af Hvíta húsinu
Við­snún­ingur Donald Trump ætlar að til­efna annan í emb­ættið for­stjóra Sótt­varn­ar­stofn­un­ar­innar.

Hvíta húsið dró í dag til baka til­nefn­ingu á lækni sem Donald Trump hafði til­nefnt til að stýra banda­rísku Sótt­varna­stofn­un­inni rétt áður en áætlað var að hann kæmi fyrir öld­unga­deild­ina.

Lækn­ir­inn og fyrr­ver­andi þing­mað­ur­inn frá Flórída, David Weldon, hefur lengi lýst yfir áhyggjum af auka­verk­unum bólu­setn­inga og haldið fram kenn­ingu um tengsl milli bólu­efna og ein­hverfu.

Þessi ákvörðun kemur á sama tíma og misl­inga­far­aldur hefur leitt til dauða tveggja ein­stak­linga og sýkt meira en 250 manns í Texas og Nýju-Mexíkó en mik­ill meiri­hluti þeirra eru óbólu­settir

Öld­unga­deild­ar­nefnd sem átti að fjalla um til­nefn­ingu hans sendi frá sér yfir­lýs­ingu nokkrum mín­útum áður en yfir­heyrslan átti að hefj­ast.

„Eftir að til­nefn­ing Dr. David Weldon til að verða yfir­maður Sótt­varna­stofn­un­ar­innar var dregin til baka fellur niður yfir­heyrsla nefnd­ar­innar,“ sagði í yfir­lýs­ingu nefnd­ar­innar.

Weldon sagði við New York Times að hann hefði fengið sím­tal frá emb­ætt­is­manni Hvíta húss­ins á mið­viku­dags­kvöld þar sem honum var tjáð að „þeir hefðu ekki næg atkvæði til að stað­festa“ til­nefn­ingu hans.

Sem þing­maður Repúblik­ana var Weldon með­flutn­ings­maður frum­varps árið 2007 sem aldrei var sam­þykkt og átti að stofna sjálf­stæða stofnun til að rann­saka öryggi bólu­efna, þar sem hann hélt því fram að banda­ríska Sótt­varna­stofn­unin hefði hags­muna að gæta í mál­inu.

Hann vakti einnig athygli á „mögu­legum tengslum milli kvika­silf­urs­ins í rot­varn­ar­efn­inu thi­mer­o­sal og fjölg­unar tauga­fræði­legra þroskarask­ana, þar á meðal ein­hverfu, hjá börnum.“

Thi­mer­o­sal var fjar­lægt úr barna­bólu­efnum í Banda­ríkj­unum árið 2001 og sam­kvæmt Stótt­varn­ar­stofnun Banda­ríkj­anna „eru engar vís­bend­ingar um skað­semi af lágum skömmtum af thi­mer­o­sal í bólu­efnum, nema vægar auka­verk­anir eins og roði og bólga á stungu­stað.“

Banda­ríska heil­brigð­is­ráðu­neytið, sem fer með stjórn Sótt­varna­stofn­un­ar­innar, er nú undir for­ystu Robert F. Kennedy Jr. sem er vinur Weldons og einnig efins gagn­vart bólu­efnum.

Samkvæmt New York Times var Kennedy sagður „mjög ósáttur“ við ákvörð­un­ina um að draga til­nefn­ingu Weldons til baka.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco