Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Prófessor við Yale sem rannsakar fasisma yfirgefur Bandaríkin

Flytur til Kanada til að „búa í landi sem er ekki að breyt­ast í fasískt ein­ræði“.

Prófessor við Yale sem rannsakar fasisma yfirgefur Bandaríkin
Jason Stanley Skrifaði bók­ina How Fascism Works og Erasing History: How Fascists Rewrite the Past to Control the Future. Mynd: Yale

Pró­fessor við Yale-háskóla sem er þekktur fyrir bók­ina How Fascism Works, hefur ákveðið að yfir­gefa banda­ríska háskól­ann og flytja til Kanada. Ástæðuna segir hann vera að hann hafi tekið ákvörðun um að „ala upp börnin [sín] í landi sem er ekki að breyt­ast í fasískt ein­ræði“.

Ein af ástæðum þess að heim­spek­ing­ur­inn Jason Stanley tók ákvörð­un­ina var að Columbia-háskóli í New York ákvað að ganga að kröfum Donalds Trump Banda­ríkja­for­seta, eftir að hann hafði gefið út for­seta­til­skipun um að svipta skól­ann rík­is­fjár­mögnun. Kröf­urnar sner­ust um að þrengja að rétti nem­enda til þess að mót­mæla, auka örygg­is­heim­ildir og inn­leiða „innri end­ur­skoðun“ ýmissa náms­greina, eins og Mið­aust­ur­landa­fræða. „Columbia var bara við­vörun. Ég varð áhyggju­fullur vegna þess að ég sá ekki sterk við­brögð hjá öðrum háskólum til að standa með Columbia,“ segir Stanley við breska mið­il­inn Guardian.

Stanley skrif­aði grein í Guardian nýverið þar sem hann var­aði við því að það gæti leitt yfir fólk mann­rétt­inda­brot að veita kennslu um kerf­is­bund­inn ras­isma, eins og túlkun Trump-stjórn­ar­innar væri. Þetta myndi leiða af sér „mennt­un­ar­legt ein­ræði“.

Stanley seg­ist síður líta svo á að hann sé að „flýja Banda­ríkin“ og fremur að hann sé að ganga til liðs við Kanada, sem sé skot­mark Trumps eins og Yale-háskól­inn.

„Hluti af þessu er að maður er að fara, vegna þess að það er eins og að yfir­gefa Þýska­land árin 1932, 33 eða 34. Það er ákveð­inn sam­hljómur. Amma mín yfir­gaf Berlín með pabba mínum 1939. Þannig að þetta er fjöl­skyldu­hefð,“ sagði Stanley.

Stanley mun hefja störf hjá Munk School of Global affairs & Public Policy í Toronto. Þar í borg­inni starfar annar fræði­maður sem yfir­gaf Yale fyrir Kanada, sagn­fræð­ing­ur­inn Timothy Snyder, sem er þekktur fyrir bók sína On Tyranny, eða Um alræði. Hann fór ásamt eig­in­konu sinni, sagn­fræð­ingnum Marci Shore, sem seg­ist „ótt­ast borg­ara­stríð“. „Ég skynj­aði að í þetta sinn, eftir seinna kjör Trumps, yrði allt mun verra en í fyrra skiptið - allt aðhald [e. checks and balances] hefur verið sund­ur­limað. Ég finn að landið verður í frjálsu falli. Ég er hrædd um að það verði borg­ara­stríð. Og ég vil ekki draga börnin mín inn í það. Ég hef efa­semdir um að Yale eða nokkur annar banda­rískur háskóli geti verndað nem­endur eða starfs­fólk.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco