Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Söngkona Garbage kallar þjóðarmorð Ísraela „viðbjóðslegasta glæp aldarinnar“

„Þetta er fokk­ing klikkað og heim­ur­inn er orð­inn gjör­sam­lega brjál­aður.“

Söngkona Garbage kallar þjóðarmorð Ísraela „viðbjóðslegasta glæp aldarinnar“
Shirley Manson Garbage er enn í fullu fjöri. Mynd: Christian Bertrand / Shutterstock.com

Shirley Manson, söng­kona skosku rokk­hljóm­sveit­ar­innar Garbage skrif­aði færslu á Instagram-síðu hljóm­sveit­ar­innar þar sem hún kallar þjóð­ar­morð Ísraela á Palest­ínu­mönnum „við­bjóðs­leg­asta glæp ald­ar­innar„. Færslan birt­ist í kjöl­far frétta af því að yfir­völd í Ísrael hafa nú tekið af sér grímuna og hafa nú við­ur­kennt inn­limun­ar­á­ætlun sína á Gaza-strönd­inni.

„Það sem er að ger­ast gagn­vart Palest­ínu­mönnum er við­bjóðs­leg­asti glæpur ald­ar­innar. Það er svo skammar­legt og rasískt, hjarta­sundr­andi og brenglað að stundum á ég erfitt með að trúa að þetta sé raun­veru­legt.

En hér erum við. Þetta er mjög raun­veru­legt og fjöldi lát­inna Palest­ínu­manna heldur áfram að hækka – og eng­inn virð­ist reiðu­bú­inn að stöðva slátr­un­ina.“ Þannig hefst færsla Shirley, sem er mik­ill stuðn­ings­maður Palest­ínu, líkt og aðrir með­limir Garbage. Segir hún einnig að alþjóða­sam­fé­lagið láti sem Palest­ínu­menn séu ekki til, enda hafi þeir ekk­ert vægi.

„Palest­ínu­menn hafa á þægi­legan máta „horfið sjónum“ alþjóða­sam­fé­lags­ins vegna þess að þeir hafa hvorki póli­tískt vægi né efna­hags­legt afl. Aðeins landið þeirra er ein­hvers virði – og rík­is­stjórn Ísraels ætlar að taka það af þeim með full­komnu refsi­leysi.“

Þá skýtur Shirley föstum skotum á vest­ræna miðla sem hafa margir hverjir gagn­rýnt írsku rapp-hljóm­sveit­ina Kneecap, fyrir að gagn­rýna Ísrael harka­lega þegar hún kom fram á Coachella-tón­list­ar­há­tíð­inni í Banda­ríkj­unum fyrir stuttu.

„Ég er orð­laus yfir því að vest­rænir blaða­menn dirfast að reyna að „slaufa“ @kneecap32 fyrir að tjá við­bjóð sinn yfir morð­unum á MEIRA EN ÁTJÁN ÞÚSUND börnum – ÁTJÁN ÞÚSUND BÖRNUM – og við eigum ein­hvern veg­inn að trúa því að skrímslin séu þrír ungi Írar í hljóm­sveit?“

Að lokum spyr Shirley hvort fólk ætli í alvöru að standa hjá og horfa upp á eyð­ingu palest­ínsku þjóð­ar­innar. Kallar hún þetta „geð­veiki“ og að heim­ur­inn sé „orð­inn brjál­aður.“

„Ætlum við virki­lega öll að standa hjá og horfa á hvern ein­asta Palest­ínu­mann ann­að­hvort springa í loft upp eða svelta til bana? Hvernig getur nokkur með viti talið þetta ásætt­an­legt?

Þetta er GEÐVEIKI.
Þetta er fokk­ing klikkað og heim­ur­inn er orð­inn gjör­sam­lega brjál­aður.
Megum við öll skamm­ast okkar!

Frjáls Palest­ína.
💔“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco