Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Færa mótmælin af ótta við rasista

No Borders Iceland birtir skjá­skot af hat­urs­fullum athuga­semdum.

Færa mótmælin af ótta við rasista
Aust­ur­völlur Mótmæli No Borders Iceland verða færð á Ing­ólfs­torg. Mynd: Wikipedia

Hreyf­ingin No Borders Iceland hafa ákveðið að færa mót­mæli sín sem fara átti fram á morgun klukkan 13:00, frá Aust­ur­velli og yfir á Ing­ólfs­torg. Ástæðan er ótti við ofbeldi ras­ista.

Mannlíf sagði frá fyr­ir­hug­uðum mót­mælum No Borders Iceland gegn öðrum mót­mælum sem fara fram á morgun á Aust­ur­velli en þar kemur saman fólk sem vill mót­mæla stefnu yfir­valda í útlend­inga­málum hér á landi. No Borders Iceland hreyf­ingin ætl­aði sér að halda sín mót­mæli klukkan 13:00 á Aust­ur­velli en hin mót­mælin fara fram á sama stað klukkan 14:00.

Í yfir­lýs­ingu sem No Borders Iceland sendi frá sér segir að skjá­skot hafi borist hreyf­ing­unni úr hópnum „Ísland, þvert á flokka“, sem sýnir athuga­semdir og sam­töl ein­stak­linga þar sem hvatt er til ofbeldis gegn stuðn­ings­mönnum Palest­ínu og gengur einn svo langt að spyrja hvort hann þurfi að fara að end­ur­nýja byssu­leyfið.

„No Borders getur ekki litið fram­hjá þeirri sam­fé­lagsógn sem stafað getur af slíkum ein­stak­lingum og hat­urs­orð­ræðu þeirra. Af þeim sökum höfum við ákveðið að færa „Mótmæli gegn ras­isma“ af Aust­ur­velli og yfir á Ing­ólfs­torg.“

Á mót­mælum hreyf­ing­ar­innar eru fyr­ir­hug­aðir tón­leikar, sem nú fær­ast sem sagt yfir á Ing­ólfs­torg.

Að lokum seg­ist hreyf­ingin vilja vekja athygli á síauk­inni hættu sem stafar af hat­urs­orð­ræðu og hvetja alla til að mæta á Ing­ólfs­torg.

„No Borders vill vekja athygli á þeirri sívax­andi hættu sem felst í þess­ari hat­urs­orð­ræðu. Við hvetjum alla til að mæta á Ing­ólfs­torg klukkan 13:00 á laug­ar­dag­inn, sýna sam­stöðu og senda skýr skila­boð: slík hegðun getur ekki lið­ist í okkar sam­fé­lagi.

Sam­ein­umst gegn ras­isma, hatri og aðskiln­aði – og fyrir sam­fé­lagi byggðu á sam­stöðu, mann­rétt­indum og virð­ingu.“

Mannlíf heyrði í Krist­jáni Helga Þrá­ins­syni hjá aðgerða­deild lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og spurði hann út í mót­mælin og hvort lög­reglan hefði áhyggjur.

„Nei, þetta eru hópar sem eru báðir að mót­mæla ofbeldi, ég trúi ekki að þeir séu að fara beita ofbeldi. En við erum með­vit­aðir um þetta.“

Aðspurður hvort lög­reglan yrði með við­búnað á vett­vangi mót­mæl­anna svar­aði Kristján. „Já, en ekki mik­inn.“

Hér fyrir neðan má sjá yfir­lýs­ingu No Borders Iceland í heild sinni:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Mótmæli

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina