Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Bylgja kvennamorða skekur Danmörku

Óvenju­lega mörg morð á konum af hálfu nákom­inna síð­ustu daga.

Bylgja kvennamorða skekur Danmörku
Mörg mál á skömmum tíma Lög­reglan að störfum í Danmörku. Myndin teng­ist efni grein­ar­innar ekki beint. Mynd: AFP

Í nótt átti sér stað fimmta morðið á konu á átta dögum í Danmörku í óvenju­legri bylgju kvenna­morða.

Kona á fimm­tugs­aldri fannst látin snemma að morgni þriðju­dags í Tran­bjerg J, og hefur 39 ára sam­býl­is­maður hennar verið hand­tek­inn og ákærður fyrir morð.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá lög­regl­unni í Austur-Jótlandi sem Ekstra bla­det fjallar um.

Maðurinn, 39 ára að aldri, hringdi sjálfur í lög­regl­una klukkan 04:53 í nótt og til­kynnti að 50 ára sam­býl­is­kona hans væri látin.

Lögregla og sjúkra­flutn­inga­fólk fóru strax á vett­vang, en ekki reynd­ist unnt að bjarga lífi kon­unnar. Maðurinn var hand­tek­inn á staðnum.

Lögregla vann enn á vett­vangi í morgun, og hefur girt svæðið af til að tryggja sönn­un­ar­gögn.

Síðar í dag verður hinn 39 ára gamli maður leiddur fyrir dóm­ara í Árósum.

Lög­reglan á aust­ur­hluta Jótlands greinir frá því að ákæru­valdið muni óska eftir því að rétt­ar­höldin eigi sér stað bak­við lok­aðar dyr og að ekki verði veittar frek­ari upp­lýs­ingar að svo stöddu vegna rann­sókn­ar­innar. Aðstand­endur kon­unnar hafa verið upp­lýstir.

Þetta er í fimmta sinn á átta dögum sem kona er myrt í Danmörku.

Mánu­dag­inn í síð­ustu viku var 47 ára gömul kona skotin til bana á miðri götu í Brønshøj, norð­vestur af miðri Kaup­manna­höfn, og var 61 árs gam­all fyrr­ver­andi eig­in­maður hennar hand­tek­inn og síðar úrskurð­aður í gæslu­varð­hald, grun­aður um morð.

Á þriðju­dag fannst 71 árs kona látin á Kin­gosvej í Esbjerg og benti rann­sókn lög­reglu fljótt til þess að um refsi­verðan verknað væri að ræða.

55 ára og 84 ára gamlir menn voru hand­teknir og ákærðir fyrir morð. Sá yngri var leiddur fyrir dóm­ara og úrskurð­aður í gæslu­varð­hald. Hann er grun­aður um að hafa banað kon­unni með því að kæfa hana. Hann neitar sök. Samkvæmt lög­reglu þekkti konan menn­ina tvo.

Sama dag fund­ust karl og kona á fer­tugs­aldri látin í hús­næði í Nørresundby, norður af Álaborg. Lögregla gaf síðar út að talið væri að mað­ur­inn hefði myrt kon­una og síðan svipt sig lífi.

Lög­reglan á Norður-Jótlandi stað­festi að þau hefðu áður verið í sam­búð.

Danmörk telst til eins örugg­asta lands heims. Allt árið 2022 voru til­kynnt 23 morð á konum í land­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco