Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

„Eins og flest sem Ólafur segir um fyrirtæki bænda, stórundarlegur málflutningur“

Rit­stjóri Bænda­blaðs­ins segir í leið­ara að fram­kvæmda­stjóri FA haldi því fram að það sé rangt af kjöt­af­urða­stöðvum að taka þátt í útboði toll­kvóta Evr­ópu­sam­bands­ins á kjöti

„Eins og flest sem Ólafur segir um fyrirtæki bænda, stórundarlegur málflutningur“
Þröstur Helgason bók­mennta­fræð­ingur er rit­stjóri Bænda­blaðs­ins Segir að nú sé komið nóg

Rit­stjóri Bænda­blaðs­ins, Þröstur Helgason bók­mennta­fræð­ingur, segir í leið­ara að Ólafur Steph­en­sen, fram­kvæmda­stjóri Félags atvinnu­rek­enda, haldi því fram að það sé „rangt af kjöt­af­urða­stöðvum á borð við Kaup­fé­lag Skaga­fjarðar, Mata og Slát­ur­fé­lag Suð­ur­lands, sem að hluta eða öllu leyti eru í eigu bænda, að taka þátt í útboði toll­kvóta Evr­ópu­sam­bands­ins á kjöti.“

Ólafur Steph­en­senÓlafur er fram­kvæmda­stjóri Félags atvinnu­rek­enda Aðsend

Segir Þröstur að ástæðan sé ekki sú að afurða­stöðv­arnar séu með þessu að brjóta lög heldur sú að fyr­ir­tækin séu nú að fara gegn þeirri skoðun bænd­anna, sem eru á meðal eig­enda, að til Íslands eigi að flytja sem minnst af erlendum kjöt­af­urðum:

„Fyr­ir­tæki ættu með öðrum orðum ekki að taka þátt í við­skiptum sem á ein­hvern hátt stang­ast á við skoð­anir eig­enda sinna.“

Þröstur telur að flestir ef ekki allir „sjái að þetta gengur ekki upp sem almenn regla, þó að Ólafi finn­ist hún eigi að gilda um fyr­ir­tæki í eigu bænda.“

Þröstur vekur athygli á því að fyr­ir­tæki bænda vinna að því eins og „önnur fyr­ir­tæki að svara eft­ir­spurn á mark­aði og hámarka hagnað sinn. Svo vill til að mark­aður með kjöt­af­urðir hér á landi er afar virkur“ og segir Þröstur að á þessum mark­aði starfi stór „hópur fyr­ir­tækja sem leit­ast við að gera það sama og kjöt­af­urða­stöðv­arnar“ sem er að svara eft­ir­spurn og hámarka hagnað sinn.

Hann segir að þetta blasi við þegar „skoð­aður er fjöldi þeirra fyr­ir­tækja sem tóku þátt í áður­nefndu toll­kvóta­út­boði. Á meðal þeirra sem fengu hvað mest af toll­kvóta voru stóru versl­ana­keðj­urnar, heild­sölur í Félagi atvinnu­rek­enda á borð við Innnes og Ekruna og svo afurða­stöðvar og tengdir aðilar, þar á meðal SS sem raunar er einnig innan vébanda Félags atvinnu­rek­enda.“

Þröstur rifjar upp að áður­nefndur Ólafur hafi nýverið skrifað grein á Vísi og sagt þar að afurða­stöðv­arnar hafi „spilað á kerfi útboðs á toll­kvóta, boðið hátt í kvót­ana til að sölsa þá undir sig, hækka verðið á inn­flutn­ingi [kjöts] og hindra þannig sam­keppni við sjálfar sig.“

Þröstur segir að „þetta er, eins og flest sem Ólafur segir um fyr­ir­tæki bænda, stór­und­ar­legur mál­flutn­ingur“ og bætir því við að ef verð hækki á „toll­kvót­unum er ástæðan auð­vitað sú að það er umfram­eft­ir­spurn eftir kvótum eins og hér að ofan var lýst. Mál­flutn­ing­ur­inn byggir ekki á mis- eða van­skiln­ingi Ólafs á lög­málum fram­boðs og eft­ir­spurnar heldur þeirri stað­reynd að Ólafur er í harðri sér­hags­muna­gæslu fyrir fyr­ir­tækin í sínu félagi – þó að fólkið á bak við SS hljóti stundum að klóra sér í koll­inum yfir flas­fengi tals­manns­ins.“

Þröstur nefnir að í „Vís­is­grein­inni tekur Ólafur mik­inn snún­ing á því sem hann virð­ist telja stóru mynd­ina á bak við umrætt toll­kvóta­út­boð og tekst þar aftur og enn að halda því fram að bændur og fyr­ir­tæki þeirra vinni gegn hags­munum neyt­enda með því að hafa talað fyrir sam­keppn­isund­an­þágu kjöt­af­urða­stöðva í búvöru­lög­unum. Þær und­an­þágur snúa raunar þvert á móti um mögu­leika bænda til þess að hag­ræða í þeim hluta rekstrar síns sem snýr að slátrun og vinnslu kjöt­af­urða, þeim sjálfum og neyt­endum til hags­bóta.“

Að mati Þrastar skiptir það miklu máli að íslenskur land­bún­aður búi að góðum „rekstr­ar­skil­yrðum því að hann tryggir fæðu­ör­yggi í land­inu“ og hann er klár á því að „mál­flutn­ingur sér­hags­muna­afla hér­lendis gegn auk­inni sam­vinnu og sam­ein­ingu fyr­ir­tækja sem bændur eiga þátt í að reka í slátrun og vinnslu kjöt­af­urða verður raunar hjá­kát­legur í ljósi boð­aðs sam­runa tveggja afurðarisa í Evrópu, Arla og DMK Group, en við hann mun verða til stærsta mjólk­urbú í Evrópu og það fjórða stærsta í heimi með áætl­aðar árs­tekjur upp á nítján millj­arða evra.“

Þröstur segir að gert sé ráð fyrir að sam­keppn­is­eft­ir­lit ESB muni sam­þykkja þennan sam­runa og „ávinn­ing­ur­inn verður gríð­ar­leg hag­ræð­ing í krafti stærðar hins sam­ein­aða fyr­ir­tækis“ sem er sam­vinnu­fé­lag um það bil „tólf þús­und mjólk­ur­bænda í Evrópu, en hér heima sitjum við föst í sama far­inu.“

Hann segir að lokum að það sé fyrir löngu komið gott af „afvega­leið­ingu umræð­unnar um íslenskan land­búnað á vegum sér­hags­muna­fé­lags atvinnu­rek­enda.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Landið

Landið

Límdu yfir hraða­mynda­vél lög­reglu

„Það er svo sannarlega þörf á hraðamælingum“
Landið

Forbes vekur athygli á nýju ferða­manna­gjaldi á Íslandi

Landið

Breskur stór­mið­ill velur fimm stór­kost­leg­ustu fossa Íslands

Landið

Vilja vernda nátt­úruperlu í Skriðdal

Landið

Skortur á leik­skóla­plássum tefur end­ur­komu starfs­fólks HSA

Landið

Björg­un­ar­bún­aður og bætt öryggi til skoð­unar við Stuðla­gil