Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Tveir breskir bræður drukknuðu fyrir framan föður sinn á strönd á Spáni

Föðurnum var bjargað úr sjónum

Tveir breskir bræður drukknuðu fyrir framan föður sinn á strönd á Spáni
Llarga-ströndin í Salou Lög­reglan telur að um slys sé að ræða Mynd: nito-Shutterstock

Tveir breskir drengir lét­ust í gær eftir að hafa lent í vand­ræðum í sjónum við Salou á Spáni. Föður þeirra var bjargað frá drukknun.

Yfirvöld stað­festu að bræð­urnir, 11 og 13 ára gamlir, hefðu drukknað á Llarga-strönd­inni í Salou, Tarra­gona. Samkvæmt spænskum yfir­völdum var faðir þeirra dreg­inn lif­andi úr sjónum. Lögregla telur að um slys hafi verið að ræða og málið sé ekki rann­sakað sem saka­mál.

„Tveir bræður, breskir rík­is­borg­arar á aldr­inum 11 og 13 ára, drukkn­uðu í kvöld á Llarga-strönd í Salou (Tarra­gona),“ sagði í til­kynn­ingu frá Civil Protection í Kata­lóníu. „Faðir drengj­anna, sem einnig fór í sjó­inn, var bjargað.“

Faðirinn reyndi örvænt­ing­ar­fullur að bjarga sonum sínum og þurfti sjálfur að fá aðstoð eftir að hafa nán­ast drukknað. Þegar sjúkra­lið kom á vett­vang voru báðir drengir í hjarta­stoppi. Til aðstoðar komu sjö við­bragð­að­ilar frá bráða­lækn­is­þjón­ust­unni SEM, lög­regl­unni í Salou, kata­lónska lög­reglan og slökkvi­liðið.

Sál­fræð­ingar frá SEM veittu fjöl­skyld­unni stuðn­ing eftir harm­leik­inn. Samkvæmt upp­lýs­ingum Civil Protection höfðu strand­verðir lokið störfum á strönd­inni þegar slysið átti sér stað.

Atvikið á Costa Dorada-dval­ar­staðnum varð síð­degis í gær og við­vörun barst rétt fyrir klukkan 21:00. Breska fjöl­skyldan mun hafa verið í sum­ar­leyfi á hót­eli í nágrenn­inu.

Eftir slysið minntu yfir­völd á hættur sjó­sunds. „Þetta eru dauðs­föll númer 15 og 16 á ströndum Kata­lóníu frá því sum­ar­tíma­bilið hófst 15. júní,“ sagði tals­maður Civil Protection. „Þessi tala er nú þegar fimm fleiri en á sama tíma í fyrra, þegar dauðs­föllin voru ell­efu.“

Civil Protection hvetur almenn­ing til að sýna mikla aðgát við sund í sjó, sund­laugum og á vötnum í sumar. Ef fólk verður vart við ein­hvern í vand­ræðum í vatni ber taf­ar­laust að til­kynna það sund­vörðum eða hringja í 112.

Tals­mað­ur­inn sagði að gul fána­merki hefðu verið uppi á sumum ströndum svæð­is­ins yfir dag­inn. Rauður fáni þýðir að sund sé bannað, en gulur fáni að fólk skuli sýna sér­staka var­kárni. Hann kvaðst ekki hafa upp­lýs­ingar um hvort fleiri ætt­ingjar hefðu verið á strönd­inni með bræðr­unum og að yfir­völd myndu ekki gefa upp nöfn þeirra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco