O (Hringur), með Ingvar E. Sigurðsson í aðalhlutverki, hlaut um helgina tvenn verðlaun á DRIM SFF, alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Norður-Makedóníu. Um er að ræða stuttmynd í leikstjórn Rúnars Rúnarssonar, sem hefur gert myndir á borð við Ljósbrot og Þrestir. Þá var hann tilnefndur til Óskarsverðlauna árið 2004 fyrir stuttmyndina Síðasti Bærinn.
Mannlíf heyrði Rúnari í tilefni verðlaunanna.
„Þessi verðlaun sem og önnur sem við höfum hlotið hjálpa okkur í fjármögnun næstu verka sem standa fyrir,“ sagði leikstjórinn.
„Kvikmyndir eru teymisvinna og hef ég verið lánsamur í gegnum tíðina að vinna með frábæru fólki. Ég er stoltur af þeim og því sem við höfum áorkað saman. Íslensk kvikmyndagerð hefur verið á miklu skriði og hefur það aðeins geta gerst vegna þess að jarðvegurinn, sem varð til við samvinnu ráðamanna, einkaaðila og listafólks, er til staðar.“

En Rúnar hefur áhyggjur af framtíðinni og þá sérstaklega kvikmyndasjóði.
„En nú eru blikur á lofti og ef kvikmyndasjóður verður fjársveltur næstu ár eins og lagt hefur verið upp með, að þá mun þetta mikla uppbyggingarstarf fara í súginn,“ sagði Rúnar.
„Það tekur mjög stuttan tíma að eyðileggja þetta mikla starf en á móti kemur að þá myndi það taka langan tíma, mikla vinnu og fjármagn til að byggja það upp aftur. Vona að ný ríkisstjórn vindi ofan af þessari þróun og hætti að spara aurinn en að henda krónunni.“































Athugasemdir