Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Hitinn á jörð­inni fer hækk­andi frá ári til árs Varla lengur frétt­næmt þegar hiti fer yfir 40 stig

Evrópa hlýnar tvöfalt hraðar en aðrir heimshlutar: „Þetta er þegar að gerast“

Evrópa hlýnar um það bil tvö­falt hraðar en flestir heims­hlutar, en norð­ur­slóðir Evrópu, og Ísland þar með talið, hlýna enn hraðar.

Evrópa hlýnar um það bil tvö­falt hraðar en flestir heims­hlutar, en norð­ur­slóðir Evrópu, og Ísland þar með talið, hlýna ennþá hraðar.

Fag­stjóri veð­urs og lofts­lags á Veð­ur­stof­unni, Halldór Björns­son, segir árið í ár um margt áhuga­vert út frá veður- og lofts­lags­fræði­legum sjón­ar­hóli, og segir hann það gilda jafnt um Ísland og Evrópu alla.

Það er vissu­lega ekki margt bendir til þess að ríki heims nái því mark­miði sem þau skuld­bundu sig til að reyna að ná er þau stað­festu Par­ís­ar­sam­komu­lagið - að hindra að lofts­lagið hlýni um meira en hálfa aðra gráðu umfram með­al­hit­ann sem hér á jörðu ríkti seinni hluta nítj­ándu aldar.

Staðan er samt sú að notkun kola og ann­ars jarð­efna­elds­neytis heldur áfram að aukast, þar með talin losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda.

Und­an­farin tvö ár hafa verið heit­ustu árin hingað til í sögu veð­ur­mæl­inga; árið í ár er enn eitt árið þar sem fréttir ber­ast af miklum hita­bylgjum, en þó sér­stak­lega í Evrópu.

Rætt var við Halldór Björns­son í Spegl­inum á RÚV um hlýnun í Evrópu og ennþá meiri hlýnun á Íslandi sem og á norð­ur­slóðum almennt og afleið­ingar þessa.

„Þetta er nátt­úru­lega mjög heitt ár. En ef við lítum víðar yfir sviðið og skoðum þá er alltaf að hlýna núna, vegna los­unar gróð­ur­húsa­loft­teg­unda,“ segir Halldór og nefnir einnig að með­al­hlýnun hafi lengi vel verið þetta 0,17 til 0,18 gráður á ára­tug, en virð­ist hafa verið meiri á síð­ustu árum.

„Svo hafa komið tíma­bil sem eru kald­ari og tíma­bil sem eru heit­ari. Síðasta tíma­bil sem var kald­ara var svona sirka frá árinu 2000 til 2013 og þá var mjög algengt að maður heyrði að hnatt­ræn hlýnun hefði stöðvast.“

Hann segir þó að síð­ustu ár hafi verið miklu heit­ari en með­al­hlýn­unin gæfi til kynna.

„Þá er spurn­ingin, er þetta nýtt ástand, eða er þetta bara tíma­bund­inn púls ofan á þessa jafn­að­ar­hlýnun sem er í gangi? Og síð­ustu tvö ár, 2023 og 2024, voru alveg óvenju heit."

Hann telur að þetta megi að hluta rekja til fyr­ir­bær­is­ins El Niño er lætur reglu­lega á sér kræla í Kyrra­haf­inu, en þá kemur heitur sjór upp á yfir­borðið er ákveðin kæl­ing stöðvast, og sjáv­ar­yf­ir­borð hitnar mjög mikið. Segir Halldór að þetta gangi yfir­leitt yfir á einu til tveimur árum, og að við taki annað hvort jafn­að­ar­á­stand - þar sem sjáv­ar­hiti er eðli­legri - eða þá kalt tíma­bil, sem er kallað La Niña. Síðasta El Niño lauk um síð­ustu ára­mót og segir Halldór að í Kyrra­haf­inu ríki núna nokkuð eðli­legt ástand.

„Heim­ur­inn hitn­aði alveg ótrú­lega mikið og í raun miklu meira en maður hefði mátt búast við af ein­hverjum El Niño“ og það sem meira er, segir hann, að þá hefur ekki kólnað jafn mikið og búast mætti við, eftir að hann gekk niður, og því sé enn mjög hlýtt og að árið í ár stefni í að verða það þriðja hlýjasta frá upp­hafi mæl­inga; á eftir metár­unum 2023 og 2024.

„Það var mjög lengi, tutt­ugu og tvo mán­uði í röð, sem með­al­hiti jarðar var yfir einn komma fimm gráðum yfir með­al­hita 1850 til 1900, fyrir iðn­bylt­ing­ar­á­hrifin,“ segir Halldór og bætir þessu við:

„Það er útlit fyrir að árið 2030 verðum við að jafn­aði komin yfir 1,5 gráður, og svo tekur það kannski ára­tug eða tvo til við­bótar þar til við förum að sleikja tveggja gráðu markið ef ekk­ert breyt­ist. Og þá er Par­ís­ar­við­miðið end­an­lega fallið.“

Samkvæmt Halldóri hefur vís­inda­fólk árum saman spáð meiri og meiri öfgum í veðr­inu, og telur hann óhætt að segja að þær spár hafi gengið eftir, og þá ekki síst í sumar.

Hann segir einnig að dæmi um þetta ástand séu miklir þurrkar og öflug flóð á sömu stöðum á stuttum tíma og að þetta sé ekki ein­ungis bundið við Evrópu; nefnir einnig sem dæmi öfl­uga storma, aftaka­úr­komu og mikil og mann­skæð flóð í Flórída, Texas og víðar í sunn­an­verðum Banda­ríkj­unum. Óhemju­úr­komu sem og flóð sums staðar í Asíu, og mjög mikla þurrka ann­ars staðar, og svona mætti lengi áfram telja.

Kemur fram í máli Halldórs að „Evrópa hlýnar nær tvö­falt hraðar en flestir aðrir heims­hlutar. Í Frakk­landi, svo dæmi sé tekið, gerð­ist það að með­al­tali einu sinni á ári á seinni helm­ingi tutt­ug­ustu aldar, að hiti skreið upp fyrir 40 gráður. Á fyrsta ára­tug þess­arar aldar gerð­ist það að með­al­tali 13 sinnum á ári og árin 2020 - 2022 gerð­ist þetta að jafn­aði 24 sinnum á ári - og þá eru metárin 2023 og 2024 enn ótalin.“

Þá kom fram að á Norð­ur­lönd­unum sé mikil og dæma­laus hita­bylgja nýaf­staðin. Þar hafi hiti farið yfir 30 stig, þrettán daga í röð á einni veð­ur­stöð norðan heim­skauts­baugs, og í Finn­landi fór hit­inn yfir 30 stig í þrjár vikur sam­fleytt sem er fáheyrt. Á meg­in­landi Evrópu geis­aði gríð­ar­leg hita­bylgja í nýlið­inni viku og á mánu­dag­inn síð­asta fór hit­inn í Suður-Frakk­landi í 43 gráður - og voru hita­met sett víða í álf­unni.

Og nú er komið að því að vís­inda­menn vara við því að á næstu árum megi Evr­ópu­búar átt von á ennþá meiri hita en nokkru sinni áður, að hit­inn fari jafn­vel yfir 50 gráður - hiti sem hingað til hefur ekki fund­ist nema á allra heit­ustu slóðum Afríku og Asíu.

„Þetta er þegar að ger­ast,“ til dæmis í Tyrk­landi, sem er reyndar á jaðri Evrópu, en þar fór hit­inn í fyrsta skipti yfir 50 gráður 28. júlí. Á sama tíma var hita­bylgja í gangi og mjög margir staðir voru með yfir fjöru­tíu gráðu hita og þessu fylgir auð­vitað vatns­skortur, þannig að það fer yfir­leitt saman miklir hitar og mikil vatns­þörf - þetta er bara til vand­ræða“ og bætir Halldór því við að vanda­málin sem fylgja hlýnun jarðar séu af ýmsum toga og ekki öll jafn fyr­ir­sjá­an­leg.

„Það eru öll þessi áhrif, afleidd áhrif sem kannski var ekki hægt að sjá fyrir, en verða síðan að aftaka­þurrkum eða aftaka­úr­komum er hafa mikil áhrif á fram­leiðslu á ein­hverjum vörum, í land­bún­aði eða jafn­vel í iðn­aði, ef við erum að tala bara um vont veður sem getur þá truflað flutn­ings­keðjur. Það eru ýmis­konar afleið­ingar sem menn eru farnir að sjá af þessum tveimur slæmu árum sem við höfðum. Og menn velta því fyrir sér hvernig þetta verði eftir fimm, sex ár, þegar svona hitar fara að verða normið - þá verða þessar teg­undir af óhöppum bara algeng­ari og hætt verður að segja fréttir af þeim.“

Gangi spárnar eftir er við­búið að Evr­ópu­búar bregð­ist við með stór­auk­inni notkun loft­kæl­ingar og ann­arra orku­frekra úrræða sem gæti leitt til þess að notkun jarð­efna­elds­neytis myndi aukast á ný. Þá er það svo að kola­notkun heldur áfram að aukast þrátt fyrir fyr­ir­heit um annað og aukin orku­þörf vegna hitn­andi jarðar gæti leitt til enn frek­ari kola­notk­unar.

„Já, sér­stak­lega með loft­kæl­ing­una, nátt­úru­lega eftir því sem loft­kæl­ing breið­ist út - og það er bara mjög skilj­an­legt, því ég veit að allir sem hafa verið ein­hvern tíma í yfir fjöru­tíu stiga hita skilja mjög vel hvað loft­kæl­ing er þægi­leg og hún getur bók­staf­lega bjargað manni - þá er einnig mjög skilj­an­legt að fólk vilji fá loft­kæl­ingu. En á svæðum þar sem orku­kerfið er knúið með jarð­efna­elds­neyti kemur það til með að auka vand­ann en ekki hitt,“ segir Halldór.

Sem fyrr segir þá er Evrópa að hitna um það bil tvö­falt hraðar en flestir heims­hlutar en það finn­ast þó staðir enn sem hitna enn hraðar, þar á meðal ákveðin svæði innan Evrópu. Þau allra nyrstu.

„Lengi var það þannig að hér hlýn­aði svona fimm­falt hraðar en í ann­ars staðar í heim­inum. En það var nú líka þannig að við byrj­uðum alveg ára­tug síðar. En þetta var svona tíma­bilið 1989 til 2002 sem það var að hlýna hvað hrað­ast. Svo hægði hún nú á sér, hlýn­unin hjá okkur, þannig að hún kemur svona í ein­hverjum þrepum.“

Segir Halldór að árið 2016 hafi verið óvenju heitt á Íslandi, og þau hafi fleiri verið hlý, en þó ekki nægi­lega hlý til að við­halda þeirri miklu hlýnun er varð á fyrr­nefndu tíma­bili.

„En fyrir norðan okkur er þetta eig­in­lega ennþá dramat­ískara. Það hefur orðið áfram­hald á þess­ari miklu hlýnun á norð­ur­heim­skauts­svæð­inu, norð­ur­slóðum sem við köllum. Og þar er að hlýna svona þrefalt meira en hnött­ur­inn er að gera og virð­ist ekk­ert lát á.“

Segir Halldór að fyrir því séu „nokkrar ástæður,“ og að ein sú áhrifa­mesta og jafn­framt auð­skilj­an­leg­asta sé minnk­andi hafís; Því minni sem haf­ís­inn er, þeim mun minna verður end­ur­varp sól­ar­ljóss, sem verður til þess að bæði sjór og land nán­ast „gleypir“ sól­ar­ljósið og þá hlýnar á jörð­inni.

Halldór bendir einnig á að „hita­bylgjur hafa riðið yfir Norð­ur­löndin, og maí var sér­lega heitur hér á landi,“ en júní var „öllu kald­ari en svo voru ný met slegin í júlí - og enn og aftur á föstu­dag, 15. ágúst.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina