Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Alvarleg hópsýking á spænsku fjögurra stjörnu hóteli

Yfir 100 manns veikt­ust heift­ar­lega af mat­ar­eitrun á vin­sælum ferða­manna­stað

Alvarleg hópsýking á spænsku fjögurra stjörnu hóteli
Izan Cavanna Hótelið Yfir 100 manns veikt­ust eftir hádeg­is­hlað­borðið Mynd: Izan Cavanna Hotel

Yfir 100 gestir á fjög­urra stjörnu hót­el­inu Izan Cavanna Hotel á hinum vin­sæla sum­ar­leyf­is­stað La Manga nærri Murcia á Spáni, hafa veikst af því sem talið er vera salmon­ellu­eitrun.

Meira en 100 ferða­menn, þar á meðal 15 mán­aða gam­alt barn og sjö önnur börn, urðu veik með grun um salmon­ellu­sýk­ingu. Um 20 manns, þar af nokkur börn, voru fluttir á sjúkra­hús eftir að hafa sýnt ein­kenni eins og ógleði, upp­köst, nið­ur­gang og í sumum til­fellum hita, eftir hádeg­is­verð á hót­el­inu síð­ast­lið­inn laug­ar­dag.

Fjöldi veikra fór hratt vax­andi en upp­haf­lega var talað um 28 til­felli, en dag­inn eftir var fjöld­inn kom­inn yfir 100 af þeim 800 gestum sem dvöldu á hót­el­inu. Börn og unga­barn sem veikt­ust voru flutt á Santa Lucia-sjúkra­húsið í Cartagena, þar sem þau fengu með­ferð við hita og öðrum ein­kennum.

Heil­brigð­is­eft­ir­lit hefur tekið sýni úr eld­húsi hót­els­ins, sem nú hefur verið lokað á meðan rann­sókn stendur yfir. Heil­brigð­is­yf­ir­völd í hér­að­inu sögðu að málið væri með­höndlað sem lík­legur salmon­ellu­far­aldur.

Á sama tíma og veik­indin geisuðu birti hót­elið færslu á Facebook þar sem aug­lýstir voru kok­teilar eins og mojító, án þess að minnst væri á veik­indin. Í kjöl­farið skrif­aði gestur í athuga­semd:

„Halló, ég er enn á hót­el­inu í her­bergi 826. Í gær veikt­ust yfir 40 manns af mat­ar­eitrun vegna skemmdrar vöru á hlað­borð­inu. Ég er nú á Santa Lucia-sjúkra­hús­inu með eig­in­konu mína sem er kom­inn átta mán­aði á leið og var lögð inn. Ég til­kynnti hót­el­inu um þetta klukkan níu í morgun, en nú er klukkan 14.20 og eng­inn hefur haft sam­band við mig.“

Gestir hafa sagt fisk­rétt og pasta­rétt með spínati um að vera orsökin. Heil­brigð­is­yf­ir­völd hafa þó ekki stað­fest hvað olli veik­ind­unum.

Frá laug­ar­degi hafa nokkrir sjúkra­hús­bílar komið að hót­el­inu. Sagt er að sumir gestir hafi verið settir á vökva í æð í her­bergjum sínum en aðrir hafi þurft að liggja á börum í hót­el­gang­inum. Ein móðir sagði að 15 ára dóttir sín hefði verið útskrifuð af sjúkra­húsi þrátt fyrir hita og mikla ofþornun og hún hafi fund­ist ein úti á bíla­stæði, veik og ringluð.

Aðrir gestir sögðu að vinir þeirra hefðu orðið rúm­liggj­andi frá laug­ar­dags­kvöldi. Ein sagði: „Við teljum að fisk­ur­inn hafi verið orsökin, því við fjórar borð­uðum saman í hádeg­inu, en aðeins hún sem smakk­aði fisk­inn veikt­ist. Við hinar borð­uðum kjöt og okkur líður vel.“

Nokkrar fjöl­skyldur með börn hafa þegar skráð sig út af hót­el­inu fyrr en áætlað var og lagt fram form­legar kvart­anir.

Hótelið hefur fengið mis­jafnar umsagnir á Tripa­dvisor, þar sem með­al­ein­kunnin stendur í 3,4 af 5. Þar kvarta gestir meðal ann­ars yfir lélegu hlað­borði, gömlum inn­rétt­ingum og jafn­vel kakkalökkum á bað­her­bergjum.

Gestir sem komu sunnu­dag­inn eftir atvikið segja að þeir hafi ekki verið upp­lýstir um veik­indin þegar þeir komu og hafi jafn­vel borðað á hlað­borð­inu áður en því var lokað.

Einkenni salmon­ellu­sýk­ingar birt­ast oft á bil­inu sex klukku­stundum til sex dögum eftir smit og fela í sér nið­ur­gang, kvið­verki og hita. Ein­kennin vara oft­ast í fjóra til sjö daga, en í alvar­legum til­fellum getur sýk­ingin breiðst út í blóð og valdið lífs­hættu­legum veik­indum eða langvar­andi fylgi­kvillum.

Hótelið hefur enn ekki gefið út opin­bera yfir­lýs­ingu á sam­fé­lags­miðlum eða heima­síðu sinni.

Mirror fjall­aði um málið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco