Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

„Fyrirhugaður leikur er staðfesting á því að þjóðarmorð sé ásættanlegt“

Séra Bjarni Karlsson er afar óánægður með að lands­lið Íslands ætli að spila gegn Ísrael annað kvöld og segir þögn­ina í kringum málið vera ærandi

„Fyrirhugaður leikur er staðfesting á því að þjóðarmorð sé ásættanlegt“
Séra Bjarni Karlsson Ósáttur við að Íslend­ingar spili gegn Ísrael Mynd: Aðsend

Þriggja stiga þögn er yfir­skrift greinar eftir prest­inn og sið­fræð­ing­inn Bjarna Karlsson, þar sem hann gagn­rýnir að við Íslend­ingar ætlum okkur að spila gegn lands­liði Ísraels annað kvöld á Evr­ópu­mót­inu í körfu­bolta:

„Hugsaðu þér ef þú vakn­aðir einn morg­unn og átt­aðir þig á því að íþróttir væru ekki til og hefðu aldrei verið. Þig hefði bara dreymt þessa vit­leysu.“

Bjarni vill ekki hugsa þá hugsun til enda hvað ger­ast myndi ef íþróttir væru hrein­lega ekki til eða jafn­vel bann­aðar:

„Hver kann ekki sögur af fólki sem átt hefur ung­menna­fé­lag­inu sínu eða íþrótta­fé­lag­inu allt að þakka? Þar fékk það upp­örvun, styrk og vega­nesti út í lífið sem veitti því kjark og úthald.“

Bætir þessu við:

„Á heima­síðu Íþrótta­sam­bands Íslands las ég frá­bæra umfjöllun um börn með yfir­skrift­inni Allir með - Farsælt sam­fé­lag fyrir alla. Með til­vísun í ályktun frá Sam­ein­uðu þjóð­unum er lögð sú áhersla að öll börn skuli eiga kost á að öðl­ast reynslu af þátt­töku í íþróttum og verða sér úti um leikni til að þró­ast í öryggi og góðum félags­skap.“

Bjarni seg­ist vita að íþróttir móti fólk til góðs og í „sál­gæslu­starfi mínu hef ég margoft séð hvernig reynt íþrótta­fólk byggir árangur sinn stig af stigi. Íþróttir kenna fólki að þrauka án þess að örvænta. Þær kenna okkur að vinna með öðrum. Grípa bolt­ann og gefa hann áfram. Fagna vel­gengni og þola ósigra með reisn. Þess vegna otum við börnum okkar í átt að hverf­is­fé­lag­inu og vonum að áhug­inn vakni. Íþrótta­lífið í land­inu er mál okkar allra og þegar lands­liði er teflt fram á alþjóð­legu móti tekur þjóð­arsálin undir þjóð­söng­inn svo jafn­vel blika tár á hvarmi.“

Hann segir líka að íþrótta­greinar séu margar en íþróttin er ein:

„Inn­byrðis erum við ólík en þjóðin er ein. Því er það ekk­ert einka­mál hvar og hvenær við teflum fram okkar lands­liðum. Þegar kvenna­lands­lið í hand­bolta lék við Ísraela í apr­íl­byrjun, var mik­ill sam­hljómur meðal okkar í þá veru að þátt­takan væri sið­ferði­lega vafasöm. Lands­liðs­konur fundu sína leið til að and­æfa og sýna stuðn­ing við Palest­ínu með því að halda fyrir merki ísra­elsks inn­heimtu­fyr­ir­tækis á treyjum sínum við hóp­mynda­töku.“

Bjarna finnst hins vegar þögnin sem ríkir um körfu­boltalands­liðið og leik­inn gegn Ísrael á morgun vera hrein­lega ærandi:

„Nú, að áliðnu sumri, þegar alheimur veit að Ísraelsk stjórn­völd meina það sem þau hafa sagt allan tím­ann, að þau hygg­ist ryðja íbúum Gaza burt af landa­kort­inu, þá leikur íslenskt lands­lið við Ísraela undir ærandi þögn.“

Og Bjarni spyr: „Hvað er tign­ar­legra en þriggja stiga karfa í hröðum leik?“

Segir einnig:

„Á sama tíma er lagt upp úr því að tryggja vel­ferð þátt­tak­enda sem best með því að árekstrar eru ekki beinn þáttur í leiknum enda reglur um snert­ingar skýr­ari en í mörgum öðrum hóp­í­þróttum. Það að við skulum senda lands­lið í körfuknatt­leik til að leika við Ísra­els­menn rétt á meðan þeir kepp­ast við að útrýma Gazabúum er skelfi­leg sið­ferð­is­leg upp­gjöf. Fyr­ir­hug­aður leikur er í raun félags­póli­tísk stað­fest­ing á því að þjóð­ar­morð sé ásætt­an­legt eftir allt saman.“

Bjarni segir að end­ingu að í „þessu máli og öðrum við­líka sem upp munu koma þarf þjóðin að taka afstöðu í sam­vinnu við ÍSÍ. Afstöðu­leysi okkar í hádeg­inu á morgun er garg­andi þriggja stiga þögn.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Sport

Sport

Lakers-goð­sögn mætir á OnlyFans

Lék lengst af með Los Angeles Lakers og varð NBA meistari með liðinu tvö ár í röð
Sport

Neville vill losna undan City þar til örlög félags­ins ráð­ast

Myndband
Sport

Lög­reglan kölluð til vegna þriggja ára fót­bolta­snill­ings

Sport

Ætlar að birta eina brjósta­mynd á dag þar til þjálf­ari Man Utd verður rek­inn

Sport

Gerrard vill að Manchester City verði refsað harka­lega