Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Önnur drónaárás gerð á skip flotans sem stefnir til Gaza

„Við erum stað­ráðin í að halda áfram bar­átt­unni“

Önnur drónaárás gerð á skip flotans sem stefnir til Gaza
Thiago Avila Brasil­íski aðgerð­ar­sinn­inn Thiago Avila ræðir við blaða­menn í morgun Mynd: YASSINE MAHJOUB / AFP

Global Sumud-báta­flot­inn, sem stefnir með hjálp­ar­gögn til Gaza, hefur greint frá annarri árás á eitt skipa sinna, aðeins einum degi eftir fyrri árás.

Mauricio Morales, blaða­maður sem ferð­ast með flot­anum, sagði í sam­tali við Al Jazeera að skipið Alma hefði orðið fyrir árásinni. Eldur kvikn­aði um borð í skip­inu, sem lá við höfn­ina í Sidi Bou Said í Túnis, en slökkt var í honum fljót­lega. Morales birti mynd af því sem virt­ist vera leifar þess skot­færis sem notað var í árásinni.

Leila Hegazy, egypsk-ítölsk söng­kona og áhöfn­ar­með­limur á Alma, lýsti árásinni í mynd­bandi sem hún birti á sam­fé­lags­miðlum:

„Við heyrðum ein­hvern hrópa „dróni!“ og við hlupum inn og settum á okkur björg­un­ar­vesti,“ sagði hún. Hegazy hafði þá rétt lokið næt­ur­vakt­inni sinni þegar árásin átti sér stað.

„Við vonum að þetta verði ekki að næt­ur­rútínu, því þeir eru að leika sér af mik­illi grimmd.“

Í yfir­lýs­ingu Global Sumud-flot­ans (GSF) segir meðal ann­ars að Alma, sem siglir undir breskum fána, hafi í gær­kvöldi orðið fyrir dróna­árás í tún­ískri land­helgi. Eldur hafi valdið skemmdum á efra þil­fari en tek­ist hefði að slökkva hann og að allir far­þegar og áhafn­ar­með­limir séu óhultir. Rannsókn á árásinni sé hafin og frek­ari upp­lýs­ingar verði birtar síðar. Árásin, sem átti sér stað skömmu fyrir mið­nætti, hafi fylgt í kjöl­far svip­aðrar árásar á skipið Family fyrr sama dag. Fram kemur einnig í yfir­lýs­ing­unni að flot­inn muni ekki láta kúga sig og haldi áfram frið­sam­legri ferð sinni til að rjúfa ólög­legt umsátur Ísraels um Gaza.

Mögulega var hand­sprengju varpað úr drón­anum

Francesca Albanese, sér­legur skýrslu­gjafi Sam­ein­uðu þjóð­anna um mann­rétt­indi á hernumdu svæðum Palest­ínu, sagði að mynd­bands­upp­tökur bentu til þess að dróni hefði varpað sprengju á þil­far Alma. Hún sagði sér­fræð­inga telja að um hafi verið að ræða hand­sprengju með kveiki­efni, vafða inn í plast bleytt í elds­neyti, sem hafi kviknað áður en hún lenti á skip­inu.

Leifar sprengj­unnarTalið er að sér­út­búin hand­sprengja hafi verið notuð í dróna­árásinni

Saif Abu­kes­hek, palest­ínskur aðgerðasinni og í stýrinefnd GSF, sagði að flot­inn hygð­ist halda áfram sigl­ingu þrátt fyrir tvær aðskildar árásir á skip flot­ans.

„Þetta þjóð­ar­morðs­ríki hefur sprengt Palest­ínu­menn í 78 ár. Þeir hafa framið þjóð­ar­morð í 22 mán­uði, og samt vakna Palest­ínu­menn á hverjum degi með von um betri morg­un­dag,“ sagði hann í sam­tali við Al Jazeera.

„Ef við getum sótt inn­blástur í seiglu þeirra, hvernig ættum við þá að gef­ast upp eftir aðeins tvö atvik sem við höfum lent í?“

Hann bætti við: „Við erum stað­ráðin í að halda áfram bar­átt­unni.“

Árásir Ísraels á flotann til Gaza frá 2010

Ísrael hefur ann­að­hvort ráð­ist á eða stöðvað alla báta­flota sem stefnt hafa til Gaza síðan 2010. Nokkur af helstu atvik­unum eru:

  • Í maí á þessu ári varð skipið The Conscience, sem sigldi með Freedom Flotilla Coalition (FFC), fyrir tveimur dróna­árásum. Eldur kom upp í vél­ar­rúmi og stórt gat mynd­að­ist á skrokknum. Skipið var þá statt í alþjóð­legri lög­sögu nálægt Möltu.
  • Árið 2010 réð­ust ísra­elskir her­menn á skipið Mavi Marmara í alþjóð­legri lög­sögu. Tíu aðgerð­ar­sinnar lét­ust og tugir særð­ust. Skipið, sem var í eigu tyrk­nesks hjálp­ar­sam­taka, var með mann­úð­ar­að­stoð og yfir 600 far­þega um borð. Atvikið olli mik­illi alþjóð­legri reiði.
  • Ísra­elskir her­menn hafa einnig stöðvað flotillu­skip á leið til Gaza, þar á meðal Madleen og Handala fyrr á þessu ári, og skipið Marianne árið 2015.

Hægt er að fylgj­ast með flot­anum, sem telur yfir 40 skip frá fjöl­mörgum löndum, hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Tækið er sagt geta borið fjóra fullorðna einstaklinga
Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi