Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Alþjóðlegir nemendur kalla eftir tafarlausum úrbótum hjá HÍ og Útlendingastofnun

„Þetta ár hefur verið sér­stak­lega erfitt fyrir erlenda nem­endur sem hafa fengið inn­göngu í Háskóla Íslands“

Alþjóðlegir nemendur kalla eftir tafarlausum úrbótum hjá HÍ og Útlendingastofnun

Alþjóð­legir nemar við Háskóla Íslands hafa í sam­starfi við stúd­enta­hreyf­ing­una No Borders birt opið bréf til Silju Báru Ómars­dóttur, rekt­ors HÍ, og Loga Ein­ars­sonar, menn­ingar-, nýsköp­unar- og háskóla­ráð­herra. Í bréf­inu gagn­rýna þeir harð­lega bæði Háskól­ann og Útlend­inga­stofnun fyrir stjórn­sýslu­bresti sem hafi haft alvar­leg áhrif á erlenda nem­endur.

„Þetta ár hefur verið sér­stak­lega erfitt fyrir erlenda nem­endur sem hafa fengið inn­göngu í Háskóla Íslands,“ segir í yfir­lýs­ing­unni. Þar kemur fram að margir hafi staðið frammi fyrir „kerf­is­bundnum töfum frá Útlend­inga­stofnun (ÚTL) og ósam­kvæmri stefnu háskól­ans með hrika­legum afleið­ingum.“

Samkvæmt bréf­inu hafi margir nem­endur ekki getað tryggt sér dval­ar­leyfi áður en önnin hófst. „Stúd­entar sem seldu eignir, sögðu upp störfum, fjár­festu ævisparn­aði sínum í von um að stunda nám á Íslandi og rifu upp fjöl­skyldur sínar í góðri trú, hafa nú misst allt og eru stranda­glópar, úti­lok­aðir frá kennslu­stundum, hlaðnir skuldum og í áfalli vegna akademísks þrots, án þess að þeir eigi sök á því,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

Í bréf­inu segir einnig að kostn­að­ur­inn sem nem­endur hafi orðið fyrir sé „ógur­legur“. „Fjöl­skyldur hafa verið aðskildar, hús­næðis- og trygg­inga­greiðslur tap­ast og heilu náms­ár­unum frestað og sóað,“ stendur þar enn­fremur.

Nemendur segja að slíkur stjórn­sýslu­brestur grafi undan orð­spori Íslands. „Þessi stjórn­sýslu­brestur er einnig djúp­stæður trún­að­ar­brestur sem grefur undan orð­spori Íslands sem hlúir að lær­dómi og rétt­læti, þar sem fólk er metið fyrir hæfi­leika sína í verð­leika­sam­fé­lagi,“ segir í bréf­inu.

Alþjóð­legu nem­arnir skora á stjórn­völd og HÍ að bregð­ast taf­ar­laust við. „Við biðjum ykkur um að virða skuld­bind­ingar sem gerðar hafa verið við alþjóð­lega náms­menn og grípa til taf­ar­lausra aðgerða til að bregð­ast við þessum mis­tökum,“ segja þeir.

Þeir krefj­ast meðal ann­ars fulls gagn­sæis frá Háskóla Íslands. „Við skorum á Háskóla Íslands að veita fullt gagn­sæi með því að birta inn­töku- og höfn­un­ar­tölur erlendra nem­enda í ár miðað við fyrri ár,“ segir í bréf­inu.

Einnig er áréttað að mik­il­vægt sé að hætta niðr­andi orð­ræðu um erlenda stúd­enta. „Það er einnig mik­il­vægt að streit­ast á móti for­ræð­is­legum frá­sögnum sem sýna alþjóð­lega nem­endur sem óvirka ein­stak­linga sem voru „blekktir“ af TikTok eða á annan hátt ófærir um að taka upp­lýstar ákvarð­anir fyrir sig,“ segir í yfir­lýs­ing­unni. Slíkar frá­sagnir, að sögn nem­anna, end­ur­skapi nýlendu- og rasíska arf­leifð.

Í yfir­lýs­ing­unni eru lagðar fram fjórar til­lögur að úrbótum:

  1. Trygging fyrir öruggri inn­göngu í HÍ og dval­ar­leyfi frá ÚTL fyrir þá sem þegar eru í kennslu­stundum.
  2. Tryggja frestun inn­töku vorið 2026 fyrir alla sem verða fyrir áhrifum.
  3. Samræmd stefna þvert á deildir og jöfn með­ferð.
  4. Við­ur­kenn­ing á skað­anum og skuld­bind­ing til fyr­ir­byggj­andi umbóta.

„Vilji hann [Háskól­inn] varð­veita heil­indi sín og það traust sem almenn­ingur ber til hans, sam­an­ber árlega könnun Gallup þar sem háskól­inn var valin önnur traustasta stofnun lands­ins, verður hann að bregð­ast við í sam­ræmi við það, sem felur í sér að koma fram við alla nem­endur af sið­ferði­legum hætti,“ segja nem­endur.

Í lok yfir­lýs­ing­ar­innar segja erlendir nem­endur að þeir séu ekki aðeins gestir heldur virkir þátt­tak­endur í íslensku sam­fé­lagi. „Þegar öllu er á botn­inn hvolft eru margir alþjóð­legir náms­menn líka skatt­greið­endur og raddir þeirra eiga skilið að heyr­ast og vera virtar,“ segir í bréf­inu.

Hér má sjá yfir­lýs­ing­una í heild sinni:

Kæra Silja Bára Ómars­dóttir, rektor HÍ,
Kæri menn­ingar-, nýsköp­unar- og háskóla­ráð­herra, Logi Ein­ars­son.

Alla hina skráðu mann­kyns­sögu hefur fólk verið í þekk­ing­ar­leit. Frá fornöld til nútíðar hafa stúd­enta­hreyf­ingar, hugs­uðir og leit­endur þvert á landa­mæri mótað vits­muna­lífið. Heródotus ferð­að­ist á 5. öld og Sima Qian á 2. öld f.o.t. til að kynn­ast og íhuga hefðir, stofn­anir og visku ann­arra. Á 10. öld e.o.t. knúði svipuð þekk­ing­ar­hvöt Ibn Fadlan. Þvert á trú­ar­hefðir ferð­uð­ust píla­grímar sömu­leiðis til lær­dómsmið­stöðva í leit að upp­lýs­ingum og hug­mynda­skiptum. Margir grund­vall­ar­textar lýð­ræðis, stjórn­sýslu og vís­inda voru fyrst þýddir úr forn-grísku yfir á arab­ísku og síðar sendir til Vest­ur­landa af fræði­mönnum á því svæði, svo sem Al-Kindi, Al-Farabi, Avicenna (Ibn
Sina), Averroes (Ibn Rushd) og Alhazen (Ibn al-Haytham). Þetta gerð­ist á tíma þegar vits­muna­leg for­vitni, ímynd­un­ar­afl og nýsköpun tak­mörk­uð­ust
ekki af landa­mærum. Það var þetta hleypi­dóma­leysi sem stuðl­aði að þeim vexti, efna­hags­leg þróun og menn­ing­ar­legri vel­megun sem fylgdi í kjöl­farið.

Skipti á vörum og hug­myndum hafa alltaf sam­tvinnuð lang­ferðum í leit að þekk­ingu og efna­hags­legri vel­megun. Ibn Battuta og Marco Polo veittu inn­sýn þvert á heims­álfur og end­ur­mót­uðu sjálf­skiln­ing heims­ins. Í Evrópu mið­alda fluttu nem­endur á milli háskóla í París, Bologna og
Oxford og lögðu grunn að því sem við við­ur­kennum nú sem alþjóð­lega æðri menntun. Þessi vits­muna­legi hreyf­an­leiki heldur áfram í dag í
hnatt­væddum heimi. Kostir þess að taka á móti alþjóð­legum náms­mönnum fel­ast ekki í því að setja þeim hindr­anir, heldur í að hlúa að vexti þeirra og fram­lagi. Þeir sem ferð­ast til að læra eru ekki óvirkir
þiggj­endur mennt­unar; hvort sem þeir eru sagn­fræð­ingar, píla­grímar, land­könn­uðir, kaup­menn eða alþjóð­legir náms­menn nútím­ans, hafa þeir
umbreytt, end­ur­lífgað og auðgað sam­fé­lögin sem þeir gengu í.

Til Íslands, þjóðar hverrar menn­ing­ar­leg sjálfs­mynd er sam­ofin land­könn­unum, gest­risni og opnum huga, koma alþjóð­legir nem­endur með nauð­syn­lega inn­sýn, þekk­ingu og sjón­ar­horn. Þeir end­ur­nýja háskóla og sam­fé­lög, stýra okkur frá ein­angrun og úreld­ingu og við­halda þeirri fornu hefð hreyf­an­leika sem hefur tengt mann­leg sam­fé­lög í gegnum
árþús­undir. Þeir tryggja að Ísland verði áfram virkur og leið­andi þátt­tak­andi í alþjóð­legum skoð­ana­skiptum.

Við erum með fjöl­margar hug­myndir og til­lögur um hvernig hægt er að nýta betur hæfi­leika erlendra nem­enda og hámarka fram­lag þeirra til að bæta
íslenskt sam­fé­lag í heild. Þótt sumar þess­ara hug­mynda hafi fallið fyrir daufum eyrum undir fyrri stjórnum, vonum við að þið fagnið upp­byggi­legum
sam­ræðum og lang­tíma stefnu­mót­andi hugsun um þetta mik­il­væga mál.

Stuðn­ingur við alþjóð­lega náms­menn felst því ekki í að flytja inn fólks­fjölda til skamms tíma heldur taka forna og var­an­lega meg­in­reglu opnum örmum: að dreif­ing fólks og þekk­ingar styrki okkur öll. Ísland
hefur tæki­færi til að stað­setja sig ekki á jaðr­inum heldur í miðju alþjóð­legrar þekk­ingar og vits­muna­legra hefða. Baráttan sem alþjóð­legir
náms­menn standa frammi fyrir end­ur­speglar ára­tuga van­rækslu og úti­lokun, sem á rætur að rekja til þess að þeir eru ekki við­ur­kenndir sem
þekk­ing­ar­fræði­legir jafn­ingjar.

Þetta ár hefur verið sér­stak­lega erfitt fyrir erlenda nem­endur sem hafa fengið inn­göngu í Háskóla Íslands. Þrátt fyrir að sækja um á réttum tíma, skila inn full­nægj­andi gögnum og fjár­festa í umtals­verðu
fjár­hags­legu og til­finn­inga­legu fjár­magni hafa margir staðið frammi fyrir kerf­is­bundnum töfum frá Útlend­inga­stofnun (ÚTL) og ósam­kvæmri stefnu háskól­ans með hrika­legum afleið­ingum. Það gerir að verkum að þeir hafa ekki getað tryggt sér dval­ar­leyfi áður en önnin hófst. Þessi skrifræð­is­brestur jók enn frekar á skyndi­legar stefnu­breyt­ingar í háskól­anum: deildir sem upp­haf­lega lof­uðu net­að­gangi og sveigj­an­leika
aft­ur­köll­uðu síðar slíkan stuðn­ing, hættu við inn­töku og buðu aðeins lág­marks end­ur­greiðslur.

Stúd­entar sem seldu eignir, sögðu upp störfum, fjár­festu ævisparn­aði sínum í von um að stunda nám á Íslandi og rifu upp fjöl­skyldur sínar í góðri trú, hafa nú misst allt og eru stranda­glópar, úti­lok­aðir frá kennslu­stundum, hlaðnir skuldum og í áfalli vegna akademísks þrots, án þess að þeir eigi sök á því. Þetta hefur nei­kvæð áhrif á ímynd lands­ins og lang­tíma­mark­mið Háskóla Íslands.

Umfang þess kostn­aðar sem um ræðir er ógur­legur. Nemendur og aðstand­endur þeirra hafa mátt þola margra mán­aða þögn og óvissu og var refsað fyrir tafir sem þeir höfðu ekki stjórn á. Fjöl­skyldur hafa verið aðskildar, hús­næðis- og trygg­inga­greiðslur tap­ast og heilu náms­ár­unum frestað og sóað. Fyrir marga voru skila­boðin sem bár­ust þau að tími
þeirra og líf skipti ekki máli. Áhrifin ná út fyrir fjár­hags­legt tjón:

þau hafa ýtt undir djúp­stæða til­finn­ingu um svik og sárs­auka­fullan skiln­ing á að stofn­anir sem segj­ast halda uppi sann­girni, fjöl­breyti­leika og þátt­töku hafa þess í stað við­haldið kerf­is­bund­inni úti­lokun og van­rækslu.

Þessi stjórn­sýslu­brestur er einnig djúp­stæður trún­að­ar­brestur sem grefur undan orð­spori Íslands sem hlúir að lær­dómi og rétt­læti, þar sem fólk er
metið fyrir hæfi­leika sína í verð­leika­sam­fé­lagi. Alþjóð­legir nem­endur komu í leit að þekk­ingu og vexti; þess í stað hefur mörgum verið mætt með afskipta­leysi. Af þessum sökum:

- Við biðjum ykkur um að virða skuld­bind­ingar sem gerðar hafa verið við alþjóð­lega náms­menn og grípa til taf­ar­lausra aðgerða til að bregð­ast við
þessum mis­tökum.

- Við skorum á Háskóla Íslands að veita fullt gagn­sæi með því að birta inn­töku- og höfn­un­ar­tölur erlendra nem­enda í ár miðað við fyrri ár.

Það er einnig mik­il­vægt að streit­ast á móti for­ræð­is­legum frá­sögnum sem sýna alþjóð­lega nem­endur sem óvirka ein­stak­linga sem voru „blekktir“ af TikTok eða á annan hátt ófærir um að taka upp­lýstar ákvarð­anir fyrir sig. Slíkar frá­sagnir end­ur­skapa nýlendu- og rasíska arf­leifð þar sem
kyn­þátta­bundnir og óvest­rænir íbúar eru útmál­aðir sem barna­legir, auð­trúa eða að þá skorti skyn­sam­legt sjálf­ræði. Þessi orð­ræða afneitar ekki aðeins sjálf­ræði og mik­il­vægri getu nem­enda heldur skyggir einnig á víð­tæk­ari kerf­is­bund­inn ójöfnuð inn­flytj­enda­stefn­unnar, efna­hags­legs óör­yggis, hús­næðisó­ör­yggis og kyn­þátta­mis­réttis, sem mótar ákvarð­ana­töku þeirra og tæki­færi á Íslandi sem og ann­ars staðar. Að við­ur­kenna sjálf­ræði alþjóð­legra stúd­enta er að við­ur­kenna þá sem virka félags­lega
og póli­tíska ein­stak­linga sem búa við flókið fjöl­þjóð­legt gang­verk (sem aftur ein­kenn­ist af orð­ræðu um örygg­is­mál, útlend­inga­hatur, popúl­ískum og tæki­fær­issinn­uðum stjórn­málum), en ekki sem fórn­ar­lömb sem sam­fé­lags­miðlar blekkja.

Við skorum enn­fremur á bæði Háskóla Íslands og Útlend­inga­stofnun að taka taf­ar­laust upp sann­gjörn og mann­úð­leg úrræði:

  1. Trygging fyrir öruggri inn­göngu í HÍ og dval­ar­leyfi frá UTL til þeirra nem­enda sem þegar eru í kennslu­stundum.
  2. Tryggja frestun inn­töku vorið 2026 fyrir alla nem­endur sem verða fyrir áhrifum.
  3. Beita sam­ræmdri stefnu þvert á deildir og tryggja jafna með­ferð.
  4. Við­ur­kenna opin­ber­lega orð­inn skaða og skuld­bind­ast til­fyr­ir­byggj­andi umbóta.

Í stuttu máli er vert að velta fyrir sér stöðu háskól­ans sjálfs. Vilji hann varð­veita heil­indi sín og það traust sem almenn­ingur ber til hans, sam­an­ber árlega könnun Gallup þar sem háskól­inn var valin önnur traustasta stofnun lands­ins, verður hann að bregð­ast við í sam­ræmi við það, sem felur í sér að koma fram við alla nem­endur af sið­ferði­legum
hætti.

Háskól­inn segir sig með stolti vera vett­vang þátt­töku og fram­fara og bendir á að 72% fræði­legra rita hans sé hluti af alþjóð­legu sam­starfi. Samt sem áður verður slíkum full­yrð­ingum um inn­gild­ingu og fram­farir að fylgja raun­veru­leg skuld­bind­ing um ábyrgð, gagn­sæi og rétt­læti. Þeir sem þekkja til innra starfs stofn­un­ar­innar gera sér einnig grein fyrir því að án erlendra nem­enda og starfs­fólks væri hætta á að Háskóli Íslands missti sér­stöðu sína. Í þessu skyni ættu ákvarð­ana­töku­ferli að fela í sér hlut­lausa og óháða þjóð­fé­lags­þegna og tryggja bæði gagn­sæi og lýð­ræð­is­legt lög­mæti. Þegar öllu er á botn­inn hvolft eru margir alþjóð­legir náms­menn líka skatt­greið­endur og raddir þeirra eiga skilið að heyr­ast og vera virtar.

- Stúd­enta­hreyf­ing No Borders

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ