Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Ítalía sendir herskip til hjálpar flota Gretu Thunberg

Varn­ar­mála­ráð­herra lands­ins for­dæmir dróna­árás­irnar í nótt

Ítalía sendir herskip til hjálpar flota Gretu Thunberg
Guido Crosetto Varn­ar­mála­ráð­herra Ítalíu for­dæmir árásir á hjálp­ar­bát­ana Mynd: CHRIS J RATCLIFFE / AFP

Varn­ar­mála­ráð­herra Ítalíu hefur for­dæmt það sem hann segir hafa verið dróna­árásir óþekktra aðila í nótt á flota sem hyggst brjóta hafn­bann Ísraels við Gaza til að koma hjálp­ar­gögnum til íbúa svæð­is­ins.

Guido Crosetto, varn­ar­mála­ráð­herra Ítalíu, greindi jafn­framt frá því að hann hefði sent ítalska frei­gátu til flot­ans, sem telur 52 báta og er að mestu stað­settur við Krít eins og er, til að veita ítölskum rík­is­borg­urum á skip­unum aðstoð.

Samkvæmt yfir­lýs­ingu Global Sumud Flotilla (GSF) urðu mörg skipin fyrir spreng­ingum og árásum með óþekktum hlutum úr lofti. Þá var einnig greint frá drónum yfir svæð­inu og trufl­unum á fjar­skiptum. Samtökin sök­uðu Ísrael um „hættu­lega stig­vax­andi aðgerðir“.

Ísra­els­stjórn hefur ekki tjáð sig um málið, en hefur áður sagt að flot­inn muni ekki fá að sigla til áfanga­staðar.

Atvikið átti sér stað um 50 kíló­metra suður af Krít. Óstað­fest mynd­bands­upp­taka úr eft­ir­lits­mynda­vél, sem GSF birtu, sýnir mann stökkva um borð í snekkju eftir að spreng­ing virt­ist verða nálægt. Í öðru mynd­bandi, sem sagt var tekið af skip­inu Spectre, sást einnig spreng­ing. Farþegar sögðu að þeir hefðu óskað eftir aðstoð frá gríska strand­gæsl­unni.

Samkvæmt heim­ildum frétta­stof­unnar AMNA sendi strand­gæslan skip frá landamæra­eft­ir­liti Evr­ópu­sam­bands­ins, Frontex, á vett­vang, en þar hafi ekki fund­ist nein ummerki um skemmdir á bát­unum.

Sænski lofts­lags­að­gerð­ar­sinn­innn Greta Thunberg, sem tekur þátt í flot­anum, sagði atvikið vera „hræðslu­að­ferð“.

Á mánu­dag sak­aði utan­rík­is­ráðu­neyti Ísraels flot­ann um að vera „skipu­lagður af Hamas“ og hvatti til þess að hjálp­ar­gögnin yrðu afhent í höfn­inni í Ashkelon til áfram­hald­andi flutn­ings til Gaza. „Ísrael mun ekki leyfa skipum að sigla inn á virkt átaka­svæði né brjóta lög­mætan flota­hernað,“ sagði í yfir­lýs­ing­unni.

GSF segir hins vegar mark­mið sitt vera að „rjúfa ólög­mæta umsátrið um Gaza sjó­leið­ina, opna mann­úð­ar­gátt og binda enda á þjóð­ar­morð á palest­ínsku þjóð­inni“.

Fyrir tveimur vikum greindu sam­tökin frá því að tvö skip hefðu orðið fyrir dróna­árásum í sitt­hvoru lagi við Túnis. Stjórn­völd í Túnis sögðu þá að rann­sókn stæði yfir.

Í júní var Thunberg meðal tólf far­þega á hjálp­ar­skip­inu Madleen sem var stöðvað af ísra­elskum her­sveitum 185 kíló­metra frá Gaza. Annað skip, Handala, með 21 manns um borð, var stöðvað 75 kíló­metra frá Gaza í júlí.

Skip flot­ans héldu til hafs eftir að sér­fræð­ingar frá Integrated Food Security Phase Classification (IPC), sem starfar með stuðn­ingi Sam­ein­uðu þjóð­anna, stað­festu að hung­ursneyð væri komin upp í Gaza-borg og varað við því að hún gæti breiðst til mið- og suð­ur­hluta svæð­is­ins á næstu vikum.

Samkvæmt heil­brigð­is­ráðu­neyti Gaza, sem er undir stjórn Hamas, hafa að minnsta kosti 440 Palest­ínu­menn lát­ist af völdum vannær­ingar frá upp­hafi stríðs­ins, þar af 162 frá því hung­ursneyð var form­lega stað­fest.

Sam­ein­uðu þjóð­irnar hafa ítrekað hvatt Ísrael til að tryggja óhindr­aða, umfangs­mikla mann­úð­ar­að­stoð sem geti bjargað manns­lífum. Sem her­náms­að­ili beri Ísrael laga­leg skylda til að sjá íbúum Gaza fyrir nægum mat og lyfjum.

Ísrael hefur hins vegar haldið því fram að það fylgi alþjóða­lögum og auð­veldi flutn­ing aðstoðar. Það hefur einnig hafnað nið­ur­stöðum IPC og tölum heil­brigð­is­ráðu­neyt­is­ins í Gaza, sem og ásök­unum um þjóð­ar­morð, sem nýlega voru end­ur­teknar í skýrslu rann­sókn­ar­nefndar Sam­ein­uðu þjóð­anna.

Her Ísraels hóf hern­að­ar­að­gerðir á Gaza eftir árás Hamas á Suður-Ísrael 7. októ­ber 2023, þegar um 1.200 manns voru drepnir og 251 manns tekin í gísl­ingu.

Samkvæmt heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu á Gaza hafa að minnsta kosti 65.419 manns lát­ist í loft­árásum Ísraels síðan þá, meiri­hlut­inn konur og börn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco