Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Prófessor þakkar Landspítalanum fyrir mannlega og faglega þjónustu

Pró­fessor dáist að alúð og hæfni starfs­fólks á Land­spít­ala eftir eigin sjúkra­hús­dvöl

Prófessor þakkar Landspítalanum fyrir mannlega og faglega þjónustu
Frá Land­spít­al­anum Ingi er afar ánægður með þá þjón­ustu sem hann fékk á spít­al­anum Mynd: Stundin/Kristinn

Ingi Eðvarðs­son, pró­fessor við Háskóla Íslands, lýsir í færslu á Facebook djúpu þakk­læti til starfs­fólks Land­spít­al­ans eftir þriggja vikna sjúkra­hús­dvöl. Hann segir bæði fag­mennsku og mann­lega hlýju hafa ein­kennt dvöl­ina og lofar fram­göngu lækna, hjúkr­un­ar­fræð­inga og sjúkra­liða.

Ingi segir atburð­ar­rás­ina hafa haf­ist þegar hann datt illa og var fluttur með sjúkra­bíl á bráða­mót­töku. Þar fór hann í blóð­próf og röntgen­mynda­töku áður en hann var fluttur á einka­stofu. „Það er aldeilis stjanað við mann hér,“ hugs­aði hann í fyrstu, en síðar kom í ljós að hann var í ein­angrun vegna gruns um smit­andi veiru.

„Ég hafði svo sem séð fólk fara í hálf­gerða geim­bún­inga þegar það kom til mín,“ skrifar hann. Eftir að nið­ur­stöður sýndu að hann væri ekki smit­aður var hann fluttur á almenna deild.

Ingi tók sér­stak­lega eftir því hve margir starfs­menn koma frá erlendum löndum, svo sem Taílandi og Austur-Evrópu. „Sjúkra­hús eru merki­leg fyr­ir­bæri með lækna, hjúkr­un­ar­fræð­inga, sjúkra­liða og annað starfs­fólk. Það kom mér á óvart hve mikið af starfs­fólki kom frá Tælandi, Austur Evrópu og víðar. Nær allir skildu íslensku og lögðu sig fram um að tala málið, sumir höfðu náð tökum á mál­inu, aðrir reyndu sitt best og nær allir skildu íslensku. Þarna er mik­ill mannauður fyrir heil­brigð­is­kerfið. Hæfni og kunn­átta þeirra var mikil.“

„Læknar og hjúkr­un­ar­fræð­ingar sem önn­uð­ust mig sýndu fag­mennsku og færni sem undrun sætir. Mennskan og alúðin var alltaf til staðar,“ segir hann.

Þá þakkar hann eig­in­konu sinni, Sesselju, fyrir ómet­an­legan stuðn­ing meðan á veik­indum stóð. „Klett­ur­inn í haf­inu í þessu ferli öllu er hún Sesselja mín sem alltaf var vakin og sofin, bæði á sjúkra­hús­inu og þegar heim var komið í gær. Takk elskan mín.“

Hann lýsir einnig góðri eft­ir­fylgni lækna eftir útskrift, þar sem öll mál voru leyst fljótt og af mik­illi alúð.

„Takk fyrir mig,“ skrifar hann að lokum. „Það er ómet­an­legt að eiga góðan Land­spít­ala háskóla­sjúkra­hús.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ