Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Hryllilegur dauði sænsks manns á Spáni

Dreginn eftir bíl í ránstil­ræði

Hryllilegur dauði sænsks manns á Spáni
Christian Pikulak Christian var aðeins þrí­tugur er hann lést Mynd: Samfélagsmiðlar

Sænskur maður lést af völdum áverka sem hann hlaut eftir hrotta­legt rán í suð­ur­hluta Spánar.

Samkvæmt yfir­lýs­ingu kær­ustu hans, Vivienne, var ráð­ist á Christian Pikulak, 30 ára, í miðbæ Tor­revi­eja þann 3. októ­ber.

Kærustan syrgir nú ást­vin sinn og segir að Christian, sem rak ham­borg­ara­stað­inn „Smashed Burger“, hafi legið í dái í nokkra daga áður en hann lést að morgni þriðju­dags 7. októ­ber.

Vivienne og ChristianVivienne óskar nú eftir fjár­fram­lögum vegna and­láts­ins

Hún skrif­aði í yfir­lýs­ingu:

„Hann var dreg­inn nokkra metra eftir bíl þegar ger­end­urnir stálu sím­anum hans, og ekki var hægt að bjarga lífi hans. Eftir nokkra daga í dái og bar­áttu á sjúkra­hús­inu í Elche lést hann 7. októ­ber.“

Christian, sem var sænskur rík­is­borg­ari, hafði búið á Spáni í þrjú ár þar sem hann byggði upp fyr­ir­tæki sitt og veit­inga­stað.

„Hann var aðeins þrí­tugur, maður fullur af lífi, draumum og ást til fjöl­skyldu sinnar, vina og starfs­ins,“ skrif­aði Vivienne. „Nú sit ég hér í Spáni með móður hans, með brostið hjarta og mikla ábyrgð.“

Hún segir fjöl­skyld­una þurfa fjár­magn til að flytja lík­ams­leifar Christians til Sví­þjóðar og standa straum af útför­inni. Auk þess þurfi að greiða laun starfs­manna Smashed Burger og reikn­inga og samn­inga fyr­ir­tæk­is­ins, sem og lög­fræði­kostnað vegna morð­rann­sókn­ar­innar.

Vivienne bætti við:

„Kostn­að­ur­inn við að flytja hann heim og öll stjórn­sýslu­gjöldin eru langt umfram það sem við ráðum við. Því miður nær trygg­ingin ekki yfir neitt af þessu. Sérhver fram­lög, stór eða smá, hjálpa okkur að koma Christian heim, leysa úr praktískum málum og sýna honum þá virð­ingu sem hann á skilið. Allt sem verður eftir fer í að greiða skuldir, laun og styðja móður hans, sem er nú hér við hlið mér.“

Vivienne hafði áður leitað að vitnum á sam­fé­lags­miðlum dag­inn eftir árás­ina.

Hún lýsti því að um kl. 4 að morgni 3. októ­ber hefðu þau orðið fyrir ofbeld­is­fullu ráni og ákeyrslu þegar þau voru á leið heim eftir Calle de Pedro Lorca.

„Stór hvítur bíll stopp­aði hjá okkur, með fjóra til fimm ein­stak­linga um borð. Þeir spurðu um leið­ina að La Zenia og tóku síma kærasta míns þegar hann sýndi þeim veg­inn. Bíllinn brun­aði svo af stað, skall á ruslagámi, og kær­asti minn kastað­ist harka­lega í jörð­ina. Hann var fluttur á sjúkra­hús í Elche/Tor­revi­eja með alvar­lega áverka.“

Hún sagði málið hafa verið til­kynnt til lög­reglu, og í gegnum „Find My iPhone“ hafi þau séð sím­ann hreyfast í átt til Alicante.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco