Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Ísrael neitar að sleppa palestínskum læknum úr haldi þrátt fyrir vopnahléssamkomulag

„Í síð­ustu heim­sókn minni, þann 9. júlí, hafði hann misst meira en 40 kíló, yfir þriðj­ung lík­ams­þyngdar sinnar.“

Ísrael neitar að sleppa palestínskum læknum úr haldi þrátt fyrir vopnahléssamkomulag
Hussam Abu Safiya Safiya við störf við afar erf­iðar aðstæður Mynd: AFP

Yfirvöld í Ísrael neita að sleppa tveimur palest­ínskum læknum úr haldi, þar á meðal barna­lækn­inum Hussam Abu Safiya, þrátt fyrir vopna­hlé­sam­komu­lag, að sögn emb­ætt­is­manns frá Hamas sem ræddi við CNN.

Safiya var bar­inn og num­inn á brott af ísra­elskum her­mönnum í des­em­ber í fyrra þegar þeir réð­ust inn á Kamal Adwan-sjúkra­húsið í norð­ur­hluta Gaza. Þar neit­aði hann að yfir­gefa sjúk­linga sína þrátt fyrir umsátur.

Myndefni sem birt­ist í kjöl­far árás­ar­innar sýndi Safiya ganga yfir rústir í hvítum læknaslopp. Ísra­elski her­inn full­yrti að hann væri „grun­aður ein­stak­lingur“ sem væri yfir­heyrður vegna „hugs­an­legrar þátt­töku í hryðju­verka­starf­semi“. Hann hefur verið í haldi síðan þá, án ákæru.

Þrátt fyrir að samið hafi verið um fanga­skipti sem hluta af vopna­hléssam­komu­lagi fyrr í vik­unni, segir full­trúi Hamas að Safiya verði ekki lát­inn laus.

„Hersetan neit­aði að sleppa dr. Hussam Abu Safiya,“ sagði emb­ætt­is­maður Hamas við CNN á föstu­dag.

Í júlí greindi lög­fræð­ing­ur­inn Ghaid Ghanem Qassem frá því að Safiya hefði misst meira en þriðj­ung lík­ams­þyngdar sinnar í haldi í hinu alræmda Ofer-fang­elsi í Ísrael. Hann hefði verið bar­inn harka­lega og ítrek­aðar beiðnir hans um lækn­is­að­stoð hafnað.

„Dr. Hussam Abu Safiya er ekki í lagi,“ skrif­aði Qassem á Facebook. „Í síð­ustu heim­sókn minni, þann 9. júlí, hafði hann misst meira en 40 kíló, yfir þriðj­ung lík­ams­þyngdar sinnar. Þegar hann var hand­tek­inn vó hann 100 kíló, en nú er hann ekki nema um 60. Hann var beittur miklu ofbeldi 24. júní. Klefinn hans í Ofer-fang­els­inu, klefi 1, álma 24, var sér­stak­lega gerður að skot­marki Hann var bar­inn harka­lega í brjóst­kass­ann.“

Qassem bætti við að gler­augu Safiya hefðu verið brotin og að hann þjáð­ist nú af óreglu­legum hjartslætti.

Auk Safiya neita Ísraelar einnig að sleppa Marwan al-Hams, for­stöðu­manni Abu Youssef al-Najjar sjúkra­húss­ins í Rafah og yfir­manni vett­vangs­sjúkra­húsa á Gasa.

Hams var rænt af dul­búnum ísra­elskum her­mönnum í júlí á þessu ári. Samkvæmt vitn­is­burðum sem Palest­ínska mann­rétt­inda­mið­stöðin (PCHR) hefur safnað, réð­ust fjórir vopn­aðir menn í borg­ara­legum klæðn­aði inn á kaffi­hús við strönd­ina í Rafah, særðu Hams og og drápu tvo palest­ínska ljós­mynd­ara, Tamer Rebhi Rafiq al-Zaanin og Ibrahim Atef Atiyah Abu Asheibah.

PCHR greinir frá því að árásin hafi átt sér stað á meðan Zaanin og Hams voru við tökur á heim­ild­ar­mynd. Hams var dreg­inn inn í hvítan bíl og ekið á brott, og hefur ekki sést síðan. Ísra­elskar yfir­völd hafa ekki stað­fest hvar hann er eða hvort hann sé í haldi.

Samkvæmt gögnum frá sam­tök­unum Palest­inian Healthcare Workers Watch eru nú um 28 palest­ínskir læknar frá Gaza í ísra­elsku fang­elsi. Þar af eru átta yfir­menn í skurð­lækn­ingum, bækl­un­ar­lækn­ingum, gjör­gæslu, hjarta­lækn­ingum og barna­lækn­ingum.

Frá­sagnir palest­ínskra fanga lýsa kerf­is­bundnu og alvar­legu ofbeldi í ísra­elskum fang­elsum eftir 7. októ­ber 2023. Mann­rétt­inda­sam­tök hafa kallað þessa með­ferð kerf­is­bundin mann­rétt­inda­brot og jafn­vel glæpi gegn mann­kyn­inu.

Skýrslur greina frá hungri, skorti á lækn­is­að­stoð, lík­am­legu ofbeldi, nið­ur­læg­ingu, kyn­ferð­is­of­beldi, þjófn­aði og fjölda­fang­els­unum í ein­angrun.

Þrátt fyrir að Abu Safiya sé óbreyttur borg­ari hefur hann verið skil­greindur sem „ólög­legur víga­maður“ sam­kvæmt ísra­elskum lögum, sem gerir yfir­völdum kleift að halda ein­stak­lingum í fang­elsi án ákæru, án dóms­úr­skurðar og án þess að upp­lýsa fjöl­skyldu eða lög­menn um hvar þeir eru vistaðir. Mann­rétt­inda­sam­tök hafa for­dæmt þessa laga­setn­ingu sem alvar­legt brot á alþjóða­lögum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco