Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Sex Palestínumenn drepnir í skothríð Ísraelshers á Gaza

Ísra­elskir fjöl­miðlar segja alla þá sem fari yfir ósýni­lega línu drepna af hernum

Sex Palestínumenn drepnir í skothríð Ísraelshers á Gaza
Svipmynd frá Gaza Mynd Mynd: OMAR AL-QATTAA / AFP

Sex manns hafa verið drepnir eftir að ísra­elskir her­menn hófu skot­hríð á fólk sem þeir sögðu hafa nálg­ast her­menn við vopna­hléslínu í norð­ur­hluta Gaza í dag.

Í yfir­lýs­ingu frá ísra­elska hernum kom fram að nokkrir grun­aðir hefðu verið spott­aðir og skotnir til að „fjar­lægja ógn­ina“ vegna þess að um væri að ræða „brot á vopna­hléssam­komu­lag­inu“. Heil­brigð­is­yf­ir­völd á Gaza sögðu sex manns hafa verið felld í tveimur aðskildum atvikum.

Atvikið átti sér stað dag­inn eftir að Donald Trump lýsti því yfir að hann hygð­ist „end­ur­reisa Gasa“ eftir að Ísrael og Hamas skipt­ust á föngum og gíslum í gær, sem mark­aði enda­lok tveggja ára blóð­ugra átaka á svæð­inu.

Banda­ríkja­for­seti lýsti við það til­efni yfir „nýju upp­hafi fyrir öll hin fögru Mið-Aust­ur­lönd“ þegar hann skrif­aði undir frið­ar­sam­komu­lagið í Egypta­landi ásamt vest­rænum og arab­ískum leið­togum.

En þegar hann ræddi við blaða­menn að fund­inum loknum í Sharm el-Sheikh forð­að­ist hann að taka afstöðu til palest­ínsks ríkis:

„Ég er ekki að tala um eitt ríki eða tvö ríki, við erum að tala um end­ur­reisn Gaza,“ sagði Trump.

Ísraelskir fjölmiðlar: Allir sem stíga yfir ósýnilegu línuna eru í hættu

Samkvæmt frétt frá Kan, rík­is­fjöl­miðli Ísraels, virð­ist ísra­elski her­inn skjóta á hvern þann sem fer yfir svo­kall­aða ósýni­lega „gula línu“, þar á meðal óvopn­aða borg­ara.

Í frétt­inni kemur fram að her­inn hafi beitt árás­ar­þyrlu og skrið­dreka sem „aðvör­un­ar­skotum“ gegn Palest­ínu­mönnum sem gengu „fót­gang­andi út fyrir gula lín­una“, og síðar notað dróna til að ráð­ast á þá og drepa.

Ísra­elskir fjöl­miðlar greindu einnig frá því að „hver sem fer yfir lín­una sé ein­fald­lega dæmdur til dauða“, og að lík­legt væri að „slík atvik muni halda áfram“.

Frétta­rit­ari Kan bætti við að frá­sagnir um „hryðju­verka­hóp“ væru rangar:

„Árás­irnar bein­ast ekki allar að vopn­uðum hryðju­verka­mönnum,“ sagði hann.

Yfirlýsing frá ísraelska hernum

Ísra­elski her­inn (IDF) gaf síðar út form­lega yfir­lýs­ingu um atvikið:

„Fyrr í dag voru nokkrir grun­aðir aðilar spott­aðir þegar þeir fóru yfir gula lín­una og nálg­uð­ust her­menn IDF sem starfa í norð­ur­hluta Gaza, sem telst brot á sam­komu­lag­inu,“ sagði í yfir­lýs­ing­unni

„Reynt var að fjar­lægja grun­aða ein­stak­linga án árásar, en þeir hlýddu ekki fyr­ir­mælum og héldu áfram að nálg­ast her­menn­ina, sem þá hófu skot­hríð til að fjar­lægja ógn­ina.“

„Fréttir um að hryðju­verka­menn hafi brot­ist inn á stöð IDF eru rangar. IDF hvetur íbúa Gaza til að fylgja fyr­ir­mælum hers­ins og halda sig fjarri svæð­inu þar sem her­menn eru stað­settir.“

Á þeim tveimur árum sem árás­irnar á Gaza stóðu yfir drápu Ísraelar að minnsta kosti yfir 60.000 Palest­ínu­menn, þar af að minnsta kosti hátt í 18.000 börn, þó margir telji raun­veru­legan fjölda dauðra mun hærri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco