Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Andrés prins undir smásjá lögreglu

Grunaður um að hafa reynt að sverta fórn­ar­lamb sitt með ólög­legum aðferðum

Andrés prins undir smásjá lögreglu
Fergie og Andrés Lög­reglan rann­sakar nú Andrés gaum­gæfi­lega Mynd: JORDAN PETTITT / POOL / AFP

Eftir mörg ár af hneyksl­is­málum og vanga­veltum tók það aðeins eina helgi fyrir hið kon­ung­lega líf Andrésar prins hrynja til grunna.

Andrés afsal­aði sér titli sínum sem her­togi af Jórvík og öðrum heið­urs­merkjum á föstu­dags­kvöld eftir sam­ráð við kon­ung­inn og prins­inn af Wales, í þeirri von að binda endi á margra ára hneyksli.

Nýjar uppljóstranir í bók Guiffre

Ákvörð­unin kom í kjöl­far þess að bók Virginia Giuffre, sem sak­aði Andrés um kyn­ferð­is­brot þegar hún var aðeisn 17 ára, er vænt­an­leg í bóka­búðir á morgun. Bókin mun að sögn varpa nýju ljósi á ásak­anir um kyn­ferð­is­brot og sam­band prins­ins við barn­a­níð­ing­inn Jeffrey Epstein. Andrés hefur alltaf neitað öllum ásök­unum.

Prinsinn sagði ákvörð­un­ina um að hætta notkun titla sinna hafa verið vegna „stöðugra ásak­ana gegn sér“. Hann hafði þegar dregið sig í hlé frá opin­beru lífi árið 2019, en sagð­ist nú vilja ganga enn lengra og hætta alfarið að nota titla sína, þar á meðal her­toga­tit­il­inn.

Kon­ung­ur­inn sagði Andrés bróður sínum, í tíu mín­útna sím­tali, að líf hans sem full­trúi bresku kon­ungs­fjöl­skyld­unnar væri lokið. Heim­ildir innan kon­ungs­fjöl­skyld­unnar sögðu að Karl kon­ungur væri orð­inn „þreyttur og ævar­eiður“ á stöð­ugum hneyksl­is­málum sem plög­uðu stofn­un­ina og hafi sagt Andrési að nú yrði að grípa til rót­tækra aðgerða.

Samband prinsins og barnaníðingsins

Einn heim­ild­ar­maður innan fjöl­skyld­unnar sagði: „Eftir náið sam­ráð við fjöl­skyldu sína, og þá sér­stak­lega við Vilhjálm prins, kall­aði kon­ung­ur­inn Andrés til sín og sagði honum að gera það rétta. Honum var sagt að það væri óhugs­andi að hann héldi áfram að njóta for­rétt­inda­stöðu sinnar.“

Hræðilegar lýsingar í bók Giuffre

Í ævi­sögu sem Giuffre skildi eftir sig segir hún að hún hafi misst barn aðeins nokkrum dögum eftir að hafa tekið þátt í hóp­kyn­lífi með Andrési og átta öðrum stúlkum. Giuffre, sem svipti sig lífi í apríl 41 árs að aldri, skrifar að hún hafi misst fóstrið fjórum dögum eftir þátt­töku í „orgíu“ með prins­inum og „átta öðrum stúlkum“.

Giuffre sagði að stúlk­urnar sem þar hefðu verið við­staddar hafi ekki talað ensku og að atvikið hafi átt sér stað á „Little Saint Jeff’s“, gælu­nafni fyrir einka­eyju Epstein, Little St James.

Hún lýsir því að hún hafi verið „í afar slæmu ástandi“ eftir meint atvikið og vaknað í „blóð­polli“. Hún segir engan þeirra manna sem hún var seld til hafa notað smokka, þó engar sann­anir séu fyrir því að Andrés hafi verið faðir ófædds barns­ins.

Lögreglan skoðar meinta njósnastarfsemi prinsins

Nú er breska lög­reglan, Metropolitan Police, sögð nú „skoða gaum­gæfi­lega“ ásak­anir þess efnis að Andrés hafi beðið líf­vörð sinn, sem var á launum hjá bresku rík­inu, að afla upp­lýs­inga um Giuffre, þar á meðal fæð­ing­ar­dag hennar og kenni­tölu í Banda­ríkj­unum. Ef þetta reyn­ist rétt gæti Andrés orðið fyrsti með­limur bresku kon­ungs­fjöl­skyld­unnar sem sætir lög­reglu­rann­sókn í yfir tvo ára­tugi.

Spurningar sem Andrés þarf að svara

Reyndi hann að hefja róg­burð­ar­her­ferð gegn Guiffre?

Samkvæmt fregnum reyndi Andrés að fá lög­regl­una til að hefja róg­burð­ar­her­ferð gegn Giuffre. Hann á að hafa beðið líf­vörð sin úr Royalty Protection Group að kanna bak­grunn hennar og afhent honum fæð­ing­ar­dag og kenni­tölu hennar. Líklegt er að líf­vörð­ur­inn hafi hafnað beiðn­inni.

Tölvu­póstur sem The Mail on Sunday fékk í hendur sýnir Andrew skrifa:

„Það virð­ist sem hún hafi saka­skrá í Banda­ríkj­unum. Ég hef gefið upp fæð­ing­ar­dag hennar og kenni­tölu til rann­sóknar hjá XXX, við­staddri líf­verð­inum.“

Ed Miliband, þing­maður Verka­manna­flokks­ins, sagði í við­tali að slíkt væri „alls ekki eins og kon­ung­legir líf­verðir eiga að vera not­aðir“ og að málið þyrfti að rann­saka. Fjöl­skylda Giuffre hefur ítrekað sagt að hún hafi aldrei haft saka­skrá.

Fyrr­ver­andi yfir­maður örygg­is­sveita kon­ungs­fjöl­skyld­unnar, Dai Davies, sagði:

„Miðað við tölvu­póst­inn sem virð­ist vera raun­veru­legur, tel ég að nægar sann­anir séu til að lög­reglan rann­saki málið.“

Af hvaða toga var sam­band hans við Epstein?

Andrés hefur lengi þurft að svara fyrir vin­áttu sína við Epstein. Talið er að prins­inn hafi fyrst hitt Epstein árið 1999, í gegnum þáver­andi kær­ustu Epsteins, Ghislaine Maxwell. Árið eftir, í júní 2000, voru Epstein og Maxwell meðal gesta í veislu í Windsor-kast­ala og Andrés hélt einnig afmæl­is­veislu fyrir Maxwell í Sandring­ham, þar sem Epstein var við­staddur.

Sam­bandið virt­ist halda áfram og Epstein sótti aðra veislu í Windsor kast­ala í júlí 2006, eftir það seg­ist Andrés prins hafa slitið sam­bandi við Epstein þar til þeir hitt­ust aftur í des­em­ber 2010.

Í milli­tíð­inni, árið 2008, var Epstein sak­felldur í Banda­ríkj­unum fyrir að útvega ólög­ráða stúlku til vændis og dæmdur í 18 mán­aða fang­elsi. Eftir að Epstein slapp úr fang­elsi hitti Andrés prins hann í New York árið 2010. Andrew sagði að þessi fundur hafið verið boð­aður til að binda enda á sam­band þeirra.

Í frægu við­tali við BBC Newsnight árið 2019 sagð­ist hann hafa slitið öll tengsl við Epstein eftir að þeir voru mynd­aðir saman í New York í des­em­ber 2010.

Síðar komu þó í ljós tölvu­póstar frá febr­úar 2011 þar sem Andrew virð­ist hafa haldið sam­bandi við Epstein. Í einu skeyt­inu stóð:

„Haltu áfram að hafa sam­band og við leikum okkur meira fljót­lega! Við erum í þessu saman.“

Hvert var hlut­verk Söruh Ferguson?

Andrés er ekki sá eini sem hefur verið gagn­rýndur fyrir tengsl sín við Epstein, fyrr­ver­andi eig­in­kona hans, Sarah Ferguson, hefur einnig verið dregin inn í málið. Samkvæmt tölvu­póstum sem Daily Mail hefur undir höndum átti hún að hafa beðið Epstein um lán sem nam 50.000–100.000 doll­urum „til að greiða smá­reikn­inga“. Þá bað hún einnig um að fá að heim­sækja hann á einka­eyju barn­a­níð­ings­ins.

Epstein, sem var dæmdur fyrir barn­a­níð árið 2008, greiddi einnig skuldir sem Sarah skuld­aði fyrr­ver­andi starfs­manni. Talið er að hann hafi orðið reiður þegar hún greiddi ekki til baka eins og lofað hafði verið.

Að lokum þurfti Andrés sjálfur að greiða Giuffre 12 millj­ónir punda árið 2022 til að ljúka einka­máli sem hún höfð­aði gegn honum í New York.

Ekki hefur verið upp­lýst hvaðan féð kom, en orðrómur hefur verið um að drottn­ingin heitin hafi að hluta til greitt með tekjum úr eigna­sjóði sínum, Duchy of Lancaster.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco