Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Segir Andrew hafa fengið vændiskonur í Buckinghamhöll

Um leið og lög­reglu­menn­irnir sáu prins­inn forð­uðu þeir sér, sumir földu sig undir bílum til að láta ekki sjá sig.

Segir Andrew hafa fengið vændiskonur í Buckinghamhöll
Andrew Mountbatten-Windsor Andrew á ekki sjö dag­ana sæla um þessar mundir Mynd: AARON CHOWN / POOL / AFP

Fyrr­ver­andi örygg­is­vörður bresku kon­ungs­fjöl­skyld­unnar hefur haldið því fram að hann hafi séð Andrew Mountbatten-Windsor, fyrr­ver­andi prins með vænd­is­konum í Buckinghamhöll þegar hann starf­aði við örygg­is­gæslu kon­ungs­fjöl­skyld­unnar. Það sem hann sagð­ist hafa séð þegar Andrew yfir­gaf húsið var þó enn ótrú­legra.

Paul Page starf­aði hjá örygg­is­sveit lög­regl­unnar í Lundúnum (Metropolitan Police Royal Protection Unit) frá 1998 til 2004, þar sem hann sinnti fyrst og fremst örygg­is­gæslu Elísa­betar drottn­ingar, Fil­ippusar prins og Andrésar prins, eins og hann var kall­aður þá, á meðan þau dvöldu í höll­inni.

Í við­tali við Reach PLC lýsti hann atviki þar sem Andrew á að hafa komið með tvær „flissandi“ konur inn í vist­ar­verur sínar í Buckinghamhöll og verið með þeim þar í um klukku­stund. Reyndir örygg­is­verðir sögðu Paul að kon­urnar væru nær örugg­lega vænd­is­konur, og Paul segir nú að miðað við ásak­anir sem hafa komið fram und­an­farið, telji hann það lík­legt.

Paul sagði frá atvik­inu:

„Við fengum sím­tal frá stjórn­stöð­inni. Þeir sögðu: „Hann [Andrés] er með tvo kven­gesti sem koma með leigu­bíl fljót­lega. Þú átt ekki að stöðva bíl­inn, hann á að fara beint inn í garð­inn“.“

Paul og teymi hans ótt­uð­ust örygg­is­á­hættu við að hleypa óþekktum gestum inn í höll­ina án eft­ir­lits, og ákváðu að virða fyr­ir­mælin að vettugi og stöðva bíl­inn. Samkvæmt Paul voru kon­urnar „í mjög stuttum pilsum og með mjög flegna toppa“ og virt­ust „eins og þær hefðu drukkið áfengi“.

Sögu­sagnir breidd­ust hratt meðal örygg­is­varða um kvöldið og þeir ákváðu að þegar kon­urnar myndu fara, þá yrði sá sem væri við hliðið lát­inn hringja út til að allir gætu séð þær með eigin augum.

Konurnar voru í íbúð Andrews í um það bil klukku­stund. „Svo fáum við sím­tal, „Konurnar eru að koma út úr íbúð­inni hans“,“ sagði Paul. „Þú hefðir haldið að þetta væri stór örygg­is­við­burður, fimmtán lög­reglu­menn hlaup­andi á fullri ferð niður að hlið­inu til að sjá þessar vænd­is­konur.“

Paul sagði að margir hefðu troð­ist saman við hliðið, þar sem iðn­að­ar­menn og þjón­ustu­fólk nota inn­gang­inn. „En hálf­vit­inn í stjórn­stöð­inni gleymdi að segja okkur að Andrew væri með þeim.“

Um leið og lög­reglu­menn­irnir sáu prins­inn forð­uðu þeir sér, sumir fölldu sig undir bíla til að láta ekki sjá sig. Paul útskýrði að venju­lega, þegar óform­legir gestir yfir­gefa höll­ina, fylgir þeim þjónn eða starfs­maður. En það sem gerð­ist næst var enn ótrú­legra.

„Í þetta skipti,“ sagði Paul, „ákvað Andrew að koma sjálfur, og ekki bara það, heldur gekk hann út að sjálfu Buckingham-hlið­inu með þeim, sem ger­ist aldrei, og stóð þar úti á göt­unni með þessum tveimur óþekktu konum í um tíu mín­útur, þar til hann veif­aði niður leigu­bíl, sett hann kon­urnar inn í hann og kvaddi þær.“

„Meðlimur bresku kon­ungs­fjöl­skyld­unnar gerir þetta ein­fald­lega ekki.“

Paul sagði að þetta væri ekki bara brot á siðum og reglum kon­ungs­fjöl­skyld­unnar, heldur einnig stórt örygg­is­frá­vik. Hann sagði: „Hver sem er hefði getað tekið hann eða tekið myndir af honum. Hann var þarna í a.m.k. tíu mín­útur, því við þurftum að liggja undir f****** bíl­unum og bíða eftir að hann f****** færi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco