Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Netanyahu þrýstir á nýtt stríð við Íran

„Ísraelar munu sífellt færa mark­miðin til að tryggja að átökin við Íran verði enda­laust stríð.”

Netanyahu þrýstir á nýtt stríð við Íran
Benjamin Net­anyu­ahu Net­anyahu vill við­halda stríði við Íran Mynd: Trausti Hafsteinsson

For­sæt­is­ráð­herra Ísraels, Benjamin Net­anyahu, hefur í meira en 30 ár varað við alvar­legri ógn sem hann segir stafa af Íran, bæði gagn­vart Ísrael og umheim­inum.

Í júní tók Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, undir þær við­var­anir og lét sprengja kjarn­orku­mann­virki í Teheran. En þrátt fyrir það virð­ist Net­anyahu ekki sáttur og mun beita sér fyrir frek­ari hern­að­ar­að­gerðum gegn Íran þegar hann snýr aftur til Banda­ríkj­anna á sunnu­dag til að hitta Trump á Mar-a-Lago-setr­inu í Flórída, að því er fram kemur í frétt Al Jazeera.

Að þessu sinni bein­ist athyglin að eld­flauga­kerfi Írans.

Ísra­elskir ráða­menn og banda­menn þeirra í Banda­ríkj­unum hvetja aftur til harðra aðgerða og segja að bregð­ast verði við eld­flaugum Írans án tafar.

Sér­fræð­ingar segja þó að frek­ari átök við Íran fari beint gegn yfir­lýstum áherslum Trump í utan­rík­is­málum.

Sina Toossi, sér­fræð­ingur hjá Center for International Policy, segir að á meðan Trump vilji efla efna­hags- og stjórn­mála­sam­starf Ísraels og arabaríkja, sé Net­anyahu ein­ungis að stefna að hern­að­ar­legum yfir­ráðum í Mið­aust­ur­löndum.

„Þessi þörf fyrir stöðuga aðkomu Banda­ríkj­anna og stöðug stríð gegn Íran til að brjóta niður íranska ríkið end­ur­speglar mark­mið Ísraels um óum­deilda yfir­burði og útþenslu,” segir Toossi.

„Ég held að þetta liggi að rótum mark­miða Net­anya­hus og þeirrar stefnu sem hann vill þrýsta á að Banda­ríkin styðji. En þar mun koma að árekstri við hags­muni Banda­ríkj­anna, sem vilja stöð­ug­leika á svæð­inu án beinnar hern­að­ar­þátt­töku.”

Trump segist hafa skapað frið – þrátt fyrir brot Ísraels á vopnahléi

Frá því að Trump miðl­aði vopna­hléi á Gaza, sem Ísrael hefur brotið nær dag­lega, hefur hann lýst sér sem frið­ar­sinna og haldið því fram að hann hafi komið á friði í Mið­aust­ur­löndum í fyrsta skipti í 3.000 ár.

Í nýrri þjóðar­ör­ygg­is­stefnu Banda­ríkj­anna segir að Mið­aust­ur­lönd séu „að verða svæði sam­starfs, vin­áttu og fjár­fest­inga” og að svæðið sé ekki lengur for­gangs­mál fyrir Banda­ríkin.

Frá kjarnorku til eldflauga

Á sama tíma og Banda­ríkin boða minni við­veru í Mið­aust­ur­löndum virð­ist Ísrael reyna að koma af stað átökum sem gætu dregið Banda­ríkin inn í nýtt stríð.

Í ára­tugi hefur Ísrael full­yrt að kjarn­orku­á­ætlun Írans sé helsta ógnin. En Trump heldur því fram að loft­árásir banda­ríska hers­ins í júní hafi „þurrkað út” þá áætlun. Þrátt fyrir að sú full­yrð­ing sé umdeild hafa yfir­lýs­ingar Trump knúið Ísrael til að finna nýja ógn til að varpa fram, sam­kvæmt sér­fræð­ingum.

Trita Parsi, aðstoð­ar­for­stjóri Quincy Institute, segir að vegna þess að Trump haldi því fram að kjarn­orku­málin séu leyst, snúi Ísrael nú athygl­inni að eld­flaugum.

„Net­anyahu er að ýta Banda­ríkj­unum út í annað stríð við Íran, nú með áherslu á eld­flaug­arnar, meðal ann­ars vegna þess að Trump vill ekki ræða kjarn­orku­málin, hann heldur því fram að hann hafi lagað þau, að hann hafi „gjör­eytt” áætl­un­inni,” segir Parsi.

„Ísraelar munu sífellt færa mark­miðin til að tryggja að átökin við Íran verði enda­laust stríð.”

Íran hefur ávallt haldið fram að kjarn­orku­á­ætlun sína sé frið­sam­leg, ólíkt Ísrael, sem talið er að hafi ótil­kynnt kjarn­orku­vopn. Þá hefur Íran aldrei ráð­ist á Ísrael með eld­flaugum nema eftir árásir eða hern­að­ar­at­hafnir Ísraels.

Þrátt fyrir það hafa Ísrael og banda­menn þeirra varað við því að eld­flauga­fram­leiðsla Írans sé að taka við sér.

AIPAC sagði í tölvu­pósti til stuðn­ings­manna að Ísrael telji Íran enn hafa 1.500 eld­flaugar af um 3.000 sem landið hafði áður.

Öld­unga­deild­ar­þing­mað­ur­inn Lindsey Graham, einn helsti gagn­rýn­andi Írans í Repúblikana­flokknum og náinn banda­maður Trump, hélt því fram í Ísrael að Íran væri að fram­leiða eld­flaugar „í mjög miklum mæli“.

Gagn­rýnendur segja að Ísrael sé ekki ein­ungis að reyna að verj­ast ógn heldur vilji tryggja yfir­ráð í hér­að­inu. Að lokum sé mark­miðið ann­að­hvort að koma íranskri stjórn frá eða halda land­inu veiku með reglu­bundnum árásum.

„Ísrael mun koma á sex mán­aða fresti með nýja áætlun um að sprengja Íran,” segir Parsi. „Og það mun ekki enda fyrr en Trump stoppar það.”

Bandaríska hægrið klofið – grasrótin vill ekki stríð

Hauk­arnir í utan­rík­is­málum sem vilja valda­skipti í Íran hafa lengi verið ráð­andi í Repúblikana­flokknum, en nú er stór hluti gras­rót­ar­innar andsnú­inn hern­að­ar­í­hlutun.

Tucker Carlson, Steve Bannon og aðrir áhrifa­miklir hægri­s­inn­aðir fjöl­miðla­menn hvöttu Trump ein­dregið til að ráð­ast ekki á Íran síð­ast­liðið sumar.

Carlson hefur nú gagn­rýnt Net­anyahu harð­lega:

„Það eru ekki liðnir sex mánuð síðan Trump tók áhættu og setti Banda­ríkin í stríð við Íran fyrir Net­anyahu, en samt krefst for­sæt­is­ráð­herr­ann meira,“ skrif­aði hann. „Þetta er skil­grein­ingin á sníkju­sam­bandi.“

Þrátt fyrir það er meiri­hluti repúblik­ana á þingi hlynntur Ísrael og Marco Rubio, utan­rík­is­ráð­herra Trump, er þekktur gagn­rýn­andi Írans. Þá hafa stórir styrkt­ar­að­ilar Trumps, þar á meðal Miriam Adelson, þrýst á um harða afstöðu.

Hætta á stórum átökum ef farið verður í aðra árás

Trump gat lýst yfir „sigri“ eftir loft­árás­irnar í júní, án þess að Banda­ríkin drag­ist inn í langt stríð en sér­fræð­ingar vara við að Íran muni ekki sýna sama sjálfs­stjórn í annað sinn.

„Viðbrögð Írans yrðu mun harð­ari og skjót­ari,“ segir Parsi. „Ef þeir bregð­ast ekki harka­lega við, þá verður Íran land sem Ísrael bombar á sex mán­aða fresti.”

Hann segir einnig að Ísrael gæti ráð­ist ein­hliða á Íran og treyst á banda­rísk loft­varn­ar­kerfi á svæð­inu til að draga Banda­ríkin óbeint inn í stríð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Tækið er sagt geta borið fjóra fullorðna einstaklinga
Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi