Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Ellen Calmon fer í framboð

Er for­maður borg­ar­stjórn­ar­flokks Sam­fylk­ing­ar­innar

Ellen Calmon fer í framboð
Ellen Calmon Vill verða borg­ar­full­trúi Mynd: Aðsend

Ellen Calmon, for­maður borg­ar­stjórn­ar­flokks Sam­fylk­ing­ar­innar og vara­borg­ar­full­trúi í Reykja­vík, sæk­ist eftir 3.–5. sæti í raf­rænu flokksvali Sam­fylk­ing­ar­innar sem fer fram 24. jan­úar 2026. Ellen er menntuð grunn­skóla­kenn­ari með B.Ed.-gráðu, hefur lokið diplóma­námi í opin­berri stjórn­sýslu og er að ljúka meist­ara­námi í opin­berri stjórn­sýslu.

„Ellen hefur gegnt fjöl­mörgum trún­að­ar­störfum fyrir Sam­fylk­ing­una, meðal ann­ars sem for­maður Sam­fylk­ing­ar­fé­lags­ins í Reykja­vík í þrjú ár, þar á meðal á krefj­andi tímum COVID-far­ald­urs­ins, og setið í fram­kvæmda­stjórn flokks­ins. Hún hefur jafn­framt víð­tæka reynslu úr þriðja geir­anum, einkum á sviði vel­ferðar-, mann­rétt­inda- og jafn­rétt­is­mála. Hún var for­maður Öryrkja­banda­lags Íslands í fjögur ár og sat í stjórn banda­lags­ins í sjö ár, auk þess sem hún hefur starfað mark­visst að rétt­indum fatl­aðs fólks og barna og tekið virkan þátt í jafn­rétt­is­bar­áttu, meðal ann­ars í tengslum við kvenna­hreyf­ing­una. Þá hefur hún setið í stjórnum og nefndum bæði inn­an­lands og á alþjóða­vett­vangi, þar á meðal hjá European Women’s Lobby og European Disa­bility Forum, verið for­maður Fjöl­smiðj­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, og á í dag sæti í stjórn Lána­trygg­inga­sjóðs kvenna,“ segir í til­kynn­ingu hennar.

„Í fram­boði sínu leggur Ellen Calmon áherslu á jafn­rétti, inn­gild­ingu og mann­rétt­indi sem grunn að rétt­látri og öfl­ugri borg. Hún vill að Reykja­vík­ur­borg sé fyr­ir­mynd í bar­átt­unni gegn mis­munun og að algild hönnun verði ávallt grunn­við­mið í allri stefnu­mótun, þjón­ustu og skipu­lagi. Sérstök áhersla er lögð á mál­efni barna, þar sem rétt­indi þeirra, öryggi og jöfn tæki­færi frá upp­hafi eigi að vera leið­ar­ljós í ákvörð­unum borg­ar­innar, með Barna­sátt­mála Sam­ein­uðu þjóð­anna sem lif­andi ramma.

Ellen leggur jafn­framt áherslu á sterkt sam­starf heim­ila, skóla og sam­fé­lags, öfl­ugar for­varnir gegn ofbeldi með sér­stakri áherslu á börn og ung­menni, og aðgengi­lega þjón­ustu sem styður við fjöl­breyttar fjöl­skyldur, meðal ann­ars for­eldra með annað móð­ur­mál en íslensku. Hún vill byggja upp barn­væna borg í verki, meðal ann­ars með jöfn­un­ar­tækjum vel­ferð­ar­sam­fé­lags­ins, auknum menn­ingar- og frí­stunda­tæki­færum barna og upp­bygg­ingu barna­menn­ing­ar­húss að nor­rænni fyr­ir­mynd.

Þá vill Ellen vinna að ald­ur­svænni og inn­gild­andi borg þar sem eldra fólk getur lifað með reisn, öryggi og virkni alla ævi, með þjón­ustu sem styður sjálf­stætt líf, auk­inni félags­legri þátt­töku og mark­vissum for­vörnum gegn ofbeldi. Sérstök áhersla er lögð á að ná betur til eldra fólks með annað móð­ur­mál en íslensku og tryggja að eng­inn verði ósýni­legur í þjón­ustu borg­ar­innar.

Í borg­ar­skipu­lagi og stjórn­sýslu vill Ellen efla virkt lýð­ræði, end­ur­vekja íbúa­ráðin og styrkja reglu­legt sam­ráð við íbúa í hverf­unum. Hún leggur áherslu á sann­gjarnar og sjálf­bærar lausnir í umferð­ar­málum, þar sem lífs­gæði, heilsa, umhverfi og rétt­lát nýt­ing borg­ar­rým­is­ins eru í for­grunni, og að íbúar fái raun­veru­legt val og áhrif á þróun nærum­hverfis síns.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Pólitík

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

„Slíkur fals-flokkur á engan tilvistarrétt, því hann gerir meira ógagn en gagn“
  • Pólitík

    Dorrit skorar á for­seta Ísraels að hleypa arab­ískum flokkum í rík­is­stjórn

  • Pólitík

    Segir öfga­ísla­mista og öfga hægri­menn eiga margt sam­eig­in­legt

  • Pólitík

    „Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mann­rétt­inda á Alþingi“

  • Pólitík

    Kína vill efla tengslin við Ísland á lyk­ilsviðum

  • Pólitík

    Sig­mundur Davíð svarar fyrir fjar­veru sína úr öllum atkvæða­greiðslum