Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Guðmundur blæs á sögusagnir um kosningasímtöl frá föngum

„Það er ótrú­legt hvað ímynd­un­ar­aflið virð­ist vera virkt þegar líður á flokksvalið“

Guðmundur blæs á sögusagnir um kosningasímtöl frá föngum
Guð­mundur Ingi sæk­ist 3. sæt­inu hjá Sam­fylk­ing­unni Hefur barist fyrir mann­rétt­indum fanga.

Guð­mundur Ingi Þór­odds­son, for­maður Afstöðu, er einn af þeim sem bjóða sig fram í próf­kjöri Sam­fylk­ing­ar­innar en hann sæk­ist eftir þriðja sæt­inu.

Umrætt er innan flokks­ins hversu dug­legur Guð­mundur hefur verið að fá fólk til að skrá sig í flokk­inn og er talið að stuðn­ingur hans gæti hrein­lega ráðið því hvort Pétur Hafliði Mart­eins­son eða Heiða Björg Hilm­is­dóttir verði odd­viti í kom­andi borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingum.

Fólk innan flokks­ins er sam­mála því að bar­áttan í þetta sinn sé sér­stak­lega hörð og hefur sú saga gengið milli fólks að Guð­mundur sé með fanga í afplánun á sínum snærum til að hringja í fólk til að hvetja það til að kjósa Guðmund en fáir hafa barist jafn mikið fyrir rétt­indum fanga og hann.

„Það er ótrú­legt hvað ímynd­un­ar­aflið virð­ist vera virkt þegar líður á flokksvalið,“ sagði Guð­mundur um málið við Mannlíf „Ég tek þessu þó af fullri ró, enda er hér ekki verið að lýsa raun­veru­leik­anum heldur ágætu dæmi um hvernig sögur verða til þegar stressið eykst.“

Hann tekur þó fram að hann hafi ekki heyrt þessa sögu sjálfur og ekki heldur fólkið í kringum sig.

„Stað­reynd­irnar eru ein­faldar og ekk­ert leynd­ar­mál. Ég er með virkt kosn­inga­kerfi og eigin kosn­inga­skrif­stofu þar sem öll sím­töl koma, úr síma­núm­eri skráð á mig per­sónu­lega, fylgt er hand­riti og ein­ungis mælt með mínu fram­boði. Þar er eng­inn að hringja undir dul­nefni og eng­inn að starfa utan kerfis. Ef ein­stak­lingar í opnum úrræðum nýta þann rétt sem þeir hafa til að hringja í fólk og láta í ljós stuðn­ing við fram­boð mitt þá finnst mér það ein­ungis jákvætt. Það er hluti af lýð­ræð­is­legri þátt­töku og þeir hafa fulla heim­ild til að hringja. Slík sím­töl eru hins vegar á þeirra eigin vegum en ekki mínum og alls ekki hluti af skipu­lagðri kosn­inga­vinnu af minni hálfu,“ segir Guð­mundur og seg­ist aldrei hafa haft uppi til­raunir til að beina kosn­inga­bar­áttu sinni að föngum sjálfum og að hann muni ekki gera það.

Hefur kallað eftir stuðningi fanga og fólks með vímuefnavanda

„Það væri hvorki fag­legt né í sam­ræmi við þau gildi sem ég starfa eftir. Áherslur mínar hafa verið skýrar og opnar. Ég hef kallað eftir stuðn­ingi aðstand­enda fanga, heim­il­is­lausra, fólks með vímu­efna­vanda, aðstand­enda barna og ung­menna með fjöl­þættan vanda og þeirra sem vilja öfl­ugt og mann­úð­legt vel­ferð­ar­kerfi í Reykja­vík þar sem fólk fellur ekki á milli kerfa. Ég hef jafn­framt höfðað til starfs­fólks í vel­ferð­ar­þjón­ustu og þeirra sem styðja skaða­minnkun,“ segir Guð­mundur um próf­kjörið og hvað hann stendur fyrir.

„Ef þessi saga leiðir eitt­hvað gott af sér þá er það von­andi sú umræða að fleiri átti sig á því að fólk sem hefur upp­lifað jað­ar­setn­ingu, þar á meðal fólk í opnum úrræðum, hefur rödd, skoð­anir og rétt til þátt­töku í lýð­ræð­inu. Það tel ég ekki vanda­mál heldur styrk. Ég mun áfram halda fókus á mál­efnin, vel­ferð borg­ar­búa og þá sýn að Reykja­vík sé borg sem setur fólk í for­gang. Þar liggur mitt erindi og þar liggur mín orka,“ sagði fram­bjóð­and­inn að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Pólitík

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

„Slíkur fals-flokkur á engan tilvistarrétt, því hann gerir meira ógagn en gagn“
  • Pólitík

    Dorrit skorar á for­seta Ísraels að hleypa arab­ískum flokkum í rík­is­stjórn

  • Pólitík

    Segir öfga­ísla­mista og öfga hægri­menn eiga margt sam­eig­in­legt

  • Pólitík

    „Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mann­rétt­inda á Alþingi“

  • Pólitík

    Kína vill efla tengslin við Ísland á lyk­ilsviðum

  • Pólitík

    Sig­mundur Davíð svarar fyrir fjar­veru sína úr öllum atkvæða­greiðslum