Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Dóru Björt hótað vegna „Græna gímaldsins“

„Samt hef ég í á annað ár þurft að þola stans­laust áreiti“

Dóru Björt hótað vegna „Græna gímaldsins“
Dóra Björg Guð­jóns­dóttir borg­ar­full­trúi Vill vera borg­ar­full­trúi á næsta kjör­tíma­bili. Mynd: Víkingur

Dóra Björt Guð­jóns­dóttir, borg­ar­full­trúi Sam­fylk­ing­ar­innar, er allt annað en sátt með frétta­flutn­ing DV og Morg­un­blaðs­ins en miðl­arnir fjöll­uðu báðir um færslu sem Þröstur Ingólfur Víðisson, fyrr­ver­andi eft­ir­lits­maður við vetr­ar­þjón­ustu Reykja­vík­ur­borgar, setti fram.

Í henni heldur Þröstur því fram að Reykja­vík­ur­borg hafi valdið fjölda fólks alvar­legu lík­ams- og heilsutjóni, auk gríð­ar­legs fjár­hagstjóns. Ástæðan er sú að á þriðju­dag leit­uðu tæp­lega 100 manns á bráða­mót­tök­una vegna hálku­slysa. Telur Þröstur að þetta sé afleið­ing breyt­inga sem gerðar voru fyrir þremur árum og nefnir í pistl­inum sínum að Dóra hafi gortað sig af breyt­ing­unum.

Borg­ar­full­trú­inn bendir hins vegar á að hún hafi verið í fæð­ing­ar­or­lofi þegar vinna við breyt­ing­arnar fór fram.

„Nýverið hafa verið settar fram ásak­anir á hendur mér per­sónu­lega, meðal ann­ars í Facebook-pistli sem síðar var end­ur­birtur af DV (og nú MBL líka) gagn­rýn­is­laust, án þess að nokkur til­raun sé gerð til að sann­reyna stað­reyndir. Þar eru mér gerðar upp ákvarð­anir og vinna við vetr­ar­þjón­ustu­hand­bók Reykja­víkur sem ég ein­fald­lega kom ekki að þar sem ég var í fæð­ing­ar­or­lofi þegar vinnan fór fram. Burtséð frá inn­taki gagn­rýn­innar þá er lág­marks­krafa að farið sé rétt með ein­faldar stað­reyndir, hvað þá þegar þær draga dilk á eftir sér fyrir fólk,“ skrifar Dóra um málið.

„Ég tel mik­il­vægt að gagn­rýni í opin­berri umræðu byggi á réttum for­sendum. Ég tek ábyrgð á þeim verk­efnum og ákvörð­unum sem ég hef sjálf komið að og er til­búin að ræða þau af hrein­skilni. Það sem er hins vegar óásætt­an­legt er að vera ítrekað gerð ábyrg fyrir ákvörð­unum og verkum sem ég kom ekki að og þurfa stöðugt að verja mig gegn rang­færslum og ósönnum ásök­unum,“ heldur borg­ar­full­trúi áfram og upp­lýsir að henni hafi verið hótað.

Áreiti og hótanir

„Annað dæmi er hið svo­kall­aða „Græna gímald“. Ég sat ekki í skipu­lags­ráði þegar það skipu­lag var sam­þykkt, ekki á nokkrum tíma­punkti. Hvað þá sem for­maður. Samt hef ég í á annað ár þurft að þola stans­laust áreiti – og jafn­vel hót­anir – vegna máls sem ég bar enga ábyrgð á. Slíkt er ekki aðeins ósann­gjarnt heldur alvar­legt mál í lýð­ræð­is­legri umræðu,“ og tekur Dóra fram að hún vinni af heil­indum, fag­mennsku og með ein­lægan vilja til að gera hlut­ina vel.

„Ég er alltaf reiðu­búin að ræða hvað megi betur fara. En ég er orðin þreytt á því að sitja undir níði og per­sónu­legum árásum sem byggja á full­komnum rang­færslum. Dæmið mig af verkum mínum. Ekki af ein­hverju sem ég kom hvergi nærri,“ skrifar hún að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Pólitík

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

„Slíkur fals-flokkur á engan tilvistarrétt, því hann gerir meira ógagn en gagn“
  • Pólitík

    Dorrit skorar á for­seta Ísraels að hleypa arab­ískum flokkum í rík­is­stjórn

  • Pólitík

    Segir öfga­ísla­mista og öfga hægri­menn eiga margt sam­eig­in­legt

  • Pólitík

    „Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mann­rétt­inda á Alþingi“

  • Pólitík

    Kína vill efla tengslin við Ísland á lyk­ilsviðum

  • Pólitík

    Sig­mundur Davíð svarar fyrir fjar­veru sína úr öllum atkvæða­greiðslum