Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Tveir starfsmenn hjúkrunarheimilisins Hraunbúða handteknir vegna andláts

Yfir­maður á stofn­un­inni tví­vegis áður sak­aður um kyn­ferð­is­lega áreitni

Tveir starfsmenn hjúkrunarheimilisins Hraunbúða handteknir vegna andláts
Vest­manna­eyjar Tveir starfs­menn eru í haldi lög­reglu Mynd: Í eigu Vestmannaeyjabæjar.

Tveir starfs­menn sjúkra­stofn­unar í Vest­manna­eyjum hafa nú verið hand­teknir vegna rann­sóknar á grun­sam­legu and­láti á sjúkra­stofn­un­inni. Annar þeirra er yfir­maður á heim­il­inu.

Samkvæmt heim­ildum Mannlífs er sjúkra­stofn­unin hjúkr­unar- og dval­ar­heim­ilið Hraun­búðir. Þar er heim­ild er fyrir 32 hjúkr­un­ar­rýmum, tveimur dval­ar­rýmum og einu hvíld­ar­rými.

Hraun­búðirStarfs­fólk Hraun­búða er í sjokki

Mannlíf hefur reynt að ná tali af fjölda manns vegna máls­ins sem bera ábyrgð tengda mál­inu og stofn­unum sem við­koma því, þar á meðal Jóni Gunnari Þór­halls­syni, yfir­lög­reglu­þjóni hjá lög­regl­unni á Suð­ur­landi, sem fer með rann­sókn máls­ins, deild­ar­stjóra og hjúkr­un­ar­for­stjóra Hraun­búða.

Þegar þetta er skrifað hefur Heil­brigð­is­stofnun Suð­ur­lands, sem Hraun­búðir heyra undir, ekki gefið neinar upp­lýs­ingar um málið og ekki næst í yfir­menn stofn­un­ar­innar.

Starfs­maður hjúkr­un­ar­heim­il­is­ins sagði aðspurður starfs­fólkið vera í sjokki, en vildi að öðru leyti ekki tjá sig um málið. „Já, vænt­an­lega,“ svar­aði starfs­mað­ur­inn. Ekki náð­ist sam­band við yfir­menn, sem fyrr segir.

Fram hefur komið að rann­sakað sé and­lát vegna lyfja­gjafar. Samkvæmt heim­ildum Mannlífs eru mál­efni Hraun­búða altöluð í Vest­manna­eyjum, bæði árangur með sjúk­linga og starfs­manna­mál.

Tvisvar kvartað yfir yfirmanni Hraunbúða

Heim­ildir Mannlífs herma að tveir starfs­menn hafi kvartað áður undan kyn­ferð­is­legri áreitni frá kven­kyns yfir­manni hjúkr­un­ar­heim­il­is­ins en DV sagði frá mál­inu í apríl árið 2024.

Samkvæmt frétt DV kvart­aði ungur karl­kyns starfs­maður heim­il­is­ins undan kyn­ferð­is­legri áreitni árið 2023 og það sama gerði ungur kven­kyns starfs­maður Hraun­búða árið 2024.

Kvenkyns starfs­mað­ur­inn fór mik­inn á TikTok á sínum tíma þar sem hún sagði frá áreitn­inni en hefur nú eitt þeim mynd­skeiðum. Þar sagði hún meðal ann­ars:

„Þú gekkst langt yfir mörk sem yfir­maður með því að fokk­ing káfa á mér og reyna að fokk­ings slumma upp í mig.“

Bæði málin komu upp á skemmtun starfs­manna Hraun­búða en í hvort skiptið var yfir­mann­inum sagt upp eða færður í starfi. Hún fór þó í sex vikna leyfi eftir að seinna málið kom upp en snéri eftir það aftur til starfa.

Samkvæmt heim­ildum DV var mikil ólga meðal starfs­fólks Hraun­búða vegna mál­anna.

Yfir­maður á Hraun­búðum sagði hins vegar í Facebook-við­tali við Heil­brigð­is­stofnun Suð­ur­lands í sept­em­ber 2024 að starfsandi væri „ein­stakur“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ