Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Kona með sögu

Þórunn Valdi­mars­dóttir, sagn­fræð­ingur og rit­höf­undur, er eins og eld­fjall orð­anna. Það er sama hvort maður les text­ann hennar eða talar við hana - orðin virð­ast koma úr iðrum jarð­ar­innar eða sál­ar­innar og verða að lista­verki.

Kona með sögu

Hún sem söng ein­söng með stúlkna­kór í æsku, hún sem skrif­aði upp­skrúfað mál í rit­gerð þar sem hún vissi að slíkt höfð­aði til full­orðna fólks­ins, hún sem skráði sig í sagn­fræði þar sem hún var efst í ensku, íslensku og sögu á stúd­ents­prófi og sá að hún hefði gaman af því eða væri opin fyrir því, hún sem varð ást­fangin upp fyrir haus af unga sagn­fræð­istúd­ent­inum sem tog­aði í flétt­urnar hennar aftan frá, hún sem á erfitt með að taka ákvarð­anir nema þegar hún er að skrifa, hún sem hlustar stundum á barokk-tón­list eða ein­fald­lega þögn­ina þegar hún er að skrifa, hún sem horfði á eig­in­mann­inn taka síð­asta and­ar­drátt­inn á gólf­inu á heim­ili þeirra og sem hræð­ist ekki dauð­ann og hún sem hefur skrifað rúm­lega þrjá­tíu bækur og var til­nefnd til Bók­menna­verð­launa Norð­ur­landa­ráðs fyrir bók­ina Stúlka með fingur og tæpum tveimur ára­tugum síðar sæmd ridd­ara­krossi hinnar íslensku fálka­orðu segir: „Hvað er bók á pappír? Hálf­úrelt fyr­ir­bæri?“

--

Kona með hanska.

Kona með bláa gúmmí­hanska.

Þórunn Valdi­mars­dóttir, sagn­fræð­ingur og rit­höf­undur, stendur svart­klædd með stóra, bláa gúmmí­hanska á hönd­unum á pall­inum við inn­gang­inn að íbúð sinni í miðbæ höf­uð­borg­ar­innar. Hún seg­ist vera að þrífa kló­settið. Við göngum inn í íbúð­ina þar sem alls kyns myndir hanga á veggjum, til dæmis ein ljós­mynd af eig­in­manni hennar heitnum. Svart­hvít. Þórunn fer inn á bað­her­bergi, mundar svamp og klárar að þrífa kló­settið áður en við göngum inn í stofu til að spjalla. Opið er inn í aðra stofu. Þar stendur svartur gljá­andi flyg­ill og í einu horn­inu óum­búið rúm.

Rit­höf­und­ur­inn seg­ist vera orð­inn „lög­legt gam­al­menni“ en það varð Þórunn fyrir nokkrum árum. Hún lítur út fyrir að vera miklu yngri en hún er. Röddin gæti verið rödd ungrar stúlku. Við tölum um ræt­urnar.

„Ég monta mig af því að vera hálfur Vest­firð­ingur. Mér finnst það töff.“ Það er föð­ur­ættin. „Móðurafi flutti með for­eldrum sínum frá Snæ­fells­nesi í fyrra stríði og móð­ur­amma, ættuð úr Mýra­sýslu og Árnses­sýslu, fædd­ist í Reykja­vík. Til að skilja hvað það þýðir að vera Íslend­ingur þarf að átta sig á lífs­bar­átt­unni hér gegnum ald­irnar. Líf mitt sem sagn­fræð­ingur hefur snú­ist um að reyna að skila því á tíma­bil­inu 1800-1950.

Ég lærði mikið af því að skrifa bók­ina Horfinn heimur – árið 1900 í nær­mynd þar sem ég lúslas öll lands­mála­blöðin sjö. Þar dró ég upp nær­mynd blað­anna af líf­inu á Íslandi og heims­mynd­inni þá því þessi viku eða hálfs­mán­að­ar­legu blöð fluttu líka erlendar fréttir. Lítil vest­firsk frétt sagði allt um hve hart lífið gat verið og hve harðir Vest­firð­ingar urðu að vera. Árið 1900 reru tíu tól­fær­ingar út úr Arn­ar­firði á leið á Halamið að veiða björg í bú. Þeir héldu að þeir væru sterk­ari saman,en nátt­úran er öllu yfir­sterk­ari.“

Allt í einu birt­ist köttur eins og til að und­ir­strika þetta með afl nátt­úr­unnar. Stór, loð­inn norskur skóg­ar­köttur. „Þetta er Lubba, fullu nafni Gull­branda.“ Já, auð­vitað þarf að kynna sam­býl­iskött­inn. Svo heldur Þórunn áfram að tala um Vest­firð­inga. „Þeir reru út á Hala að afla fiskjar. Veð­ur­út­lit var gott en veðrið fór úr bönd­unum og þeir fór­ust allir. Þarna drukkn­uðu 120 dug­andi karlar úr Arn­ar­firði og nær­sveitum. Háski af þessu tagi mót­aði Vest­firð­inga. Þeir eru glaðir, hressir og þakk­látir. Hafa það í blóð­inu að lífið sé núna.“

Annar stór köttur kemur upp kisu­stiga og inn um lúgu af bíl­skúr upp á aðra hæð. „Þetta er bróðir Lubbu, Lobbi, fullu nafni Loð­brandur. Minni grimmd var í því að taka systk­ini, þau launa þann greiða með því að vera örugg­ari með sig og blíð­ari.“

Þórunn fædd­ist og ólst upp í Reykja­vík eins og móðir hennar og móð­ur­amma. Hún segir ræt­urnar að vestan vera blóð­rætur, hún hafi ein­ungis farið tvisvar í heim­sókn vestur á æsku­ár­unum. „Það slitn­uðu öll tengslin af því að föð­ur­afi okkar, Ólafur Bergþór Hjálm­ars­son, smit­að­ist af berklum í Bol­ung­ar­vík. Hann átti bróður sem dó úr sama sjúk­dómi, hvíta dauða. Upp úr seinna stríði brugðu for­eldrar pabba búi á Mosvöllum í Önund­ar­firði og fluttu til Reykja­víkur. Þau bjuggu heima í Hamra­hlíð 1 hjá mömmu og pabba fyrstu tvö árin mín. Amma hét Ragn­heiður Guð­munds­dóttir og ég elskaði hana afar heitt, flúði í frið­sælt fangið á henni. Hún tal­aði í kvæðum og vísum, allt frá Háva­málum til tæk­is­fær­is­vísna. Síðan lifir í mér næmni fyrir bundnum kveð­skap. Var náfrænka bræðr­anna á næsta bæ við Mosvelli, Kirkju­bóli í Bjarna­dal, Guð­mundar Inga skálds, Halldórs frá Kirkju­bóli, blaða­manns á Tímanum, og Ólafs Þ. Krist­jáns­sonar, skóla­stjóra í Flens­borg.“

Saknaði móðurfaðmsins

Þórunn segir að fyrsta æskuminn­ingin sé þegar hún fór vestur með föður sínum. „Það var sum­arið sem ég varð þriggja ára. Þá man ég eftir mömmu stand­andi eftir í dyr­unum. Auðvitað vildi ég vera hjá mömmu, Erlu Þórdísi Jóns­dóttur. Hún var í gráköflóttri mussu með stóran maga og ég vissi hvað það þýddi, var á leið að eign­ast annað yngra systk­ini. Þess vegna hefur pabbi tekið mig með. Þriggja ára og tvö yngri, skil­urðu. Það er ekk­ert skrýtið að maður sé svona eins og maður er.“

Þórunn er spurð hvað hún meini.

„Fyrstu tvö árin var ég mikið dek­ur­barn, átta manns vildu hafa mig í fang­inu, amma og afi og tveir bræður pabba, tvö eldri systk­ini auk for­eldra minna. Nú segja vís­indin að gott atlæti í frum­bernsku geri menn sterka. Þar er sterka Þórunn. Margt geð­rænt hjá fólki má rekja til fyrstu ást­ar­sorgar lífs­ins að missa móð­ur­fangið til yngra systk­inis. Það er til ljós­mynd af Lilju systur í fang­inu á pabba þar sem hún mænir á mömmu með Trausta bróður í fang­inu. Hann fædd­ist áður en hún varð eins árs. Þetta getur mótað fólk ævi­langt.“

Þórunn er spurð hvort hún telji að þetta hafi haft áhrif á hana.

„Ég veit það. Varð fljótt að vera stór, átti fjögur yngri systk­ini átta ára. Auðvitað varð það þá mitt að stjórna. Þá varð ég tíma­bundið lít­ill for­ingi. Var góð nema að ég hræddi þau með Grýlu. Auðvitað kenndi ég þeim það sem lá í loft­inu.“

Þórunn sakn­aði móð­ur­faðms­ins.

„Ég vildi ekki fara í ferð­ina með pabba en auð­vitað varð það eins og margt sem virð­ist kvíð­væn­legt mjög gaman. Pabbi minn, Valdimar Ólafsson, var flug­um­ferð­ar­stjóri og tók mig með í sjó­flug­vél sem hét Catalina og í Önund­ar­firði hittum við gamla konu með síða hvíta fléttu sem hét Petolína. Mér fannst stór­merki­legt að hún héti næstum eins og flug­vél. Við sváfum í gamla torf­bænum á Mosvöllum þarna síð­sum­ars 1957. Pabbi átti rauð­brúna gúmmí­vind­sæng, svaf á henni á gólf­inu og ég uppi í rúmi með enga brík. Ég rúll­aði um nótt­ina fram úr rúm­inu og ofan á pabba.“ Þórunn hlær. „Það var ynd­is­legt. Svona man maður. Auðvitað þurfti ég pabba­fang. Tvö kríli stelandi fang­inu á mömmu frá mér.“

„Við systk­inin urðum ennþá sam­rýmd­ari, skiln­aðir voru óal­gengir þá“

Var hún afbrýð­isöm út í yngri systk­ini?

„Nei, ég hafði þau eins og dúkkur og til­bað þau öll. Fékk nóg af flæð­andi oxytósíni. Við systk­inin höfum alltaf verið góðir vinir. For­eldrar okkar skildu þegar ég var að verða tíu ára og ytri erf­ið­leikar þjappa alltaf fólki saman. Við systk­inin urðum ennþá sam­rýmd­ari, skiln­aðir voru óal­gengir þá.“ Þórunn bjó ásamt fimm systk­inum áfram hjá móður sinni en Lilja og Trausti lentu pabba­megin.

„Ég sakn­aði pabba og systk­in­anna tveggja. Það var verið að slíta fjöl­skyld­una í sundur. Mikil fram­för var þegar umgengn­is­réttur varð lög­bund­inn, ég fagna því.“

Þar fornar súlur flutu á land

Leik­irnir í æsku voru alls konar. Þórunn nefnir teygju­tvist, yfir, felu­leik og klukk og segir að lög­reglu­maður á mjót­or­hjóli númer 3 hafi komið og leikið við krakk­ana eitt sumar. „Uppi á róló lék ég Grýlu undir renni­braut­inni og elti krakk­ana og setti þau í pott­inn. Það var rosa gaman.“

Þegar rit­höf­und­ur­inn er spurður um upp­á­halds­fögin í skól­anum segir hún ein­fald­lega „tón­list“. „Vigdís Her­manns­dóttir kenndi okkur allan barna­skól­ann og það var þægi­legur rammi að hafa einn kenn­ara öll þau ár. Hún lét okkur syngja í upp­hafi hvers dags ef ekki oftar. Það róaði okkur. Tónlist er gott skjól og fyr­ir­taks nær­ing fyrir taug­arnar.“

Þórunn er spurð hvaða lög þau sungu.

„Ég kann allan and­skot­ann, söng líka í kór Hlíða­skóla undir stjórn Guðrúnar Þor­steins­dóttur.

Þar fornar súlur flutu á land

við fjarð­ar­sund og eyja­band.

Þetta er eftir Einar Bene­dikts­son. Þetta var ekk­ert létt­meti eins og núna,“ segir hún og kímir.

Það kom fljót­lega í ljós að stelpan, sem brá sér stundum í hlut­verk Grýlu, gat skrifað eins og móðir hennar, Erla Þórdís, sem gaf ung út bók um barn­æsku móður sinnar, Þórunnar Elínar Jóns­dóttur í Reykja­vík, Bernsku í byrjun aldar.

„Við fórum með Vigdísi kenn­ara að skoða safn Ásgríms Jóns­sonar á Berg­staða­stræti og áttum að skrifa rit­gerð. Ég fékk verð­laun fyrir mína, póst­kort með mynd eftir Ásgrím sem hann mál­aði á Húsa­felli. Ég hef verið tíu eða ell­efu ára. Man hvað ég var fölsk af því að ég lék mér að því að skrifa yfir­skrúfað og fínt mál. „Mynd­irnar voru dásam­legar“,“ segir hún og hlær.

Hún las alls konar bækur á þessum árum og nefnir Á hverf­anda hveli, Íslenskar þjóð­sögur, Uglu­spegil, Ævin­týra­bæk­urnar eftir Enid Blyton og „þessar stelpu­bækur sem voru til og ein­hverjar stráka­bækur“ svo sem Árna í Hraun­koti.

Svo tölum við um ung­lings­árin og seg­ist Þórunn hafa verið bæði þæg og óþæg eins og börn eigi að vera. „Ég held það hafi haft góð áhrif á íslenskt sam­fé­lag að við vorum laus við her­þjón­ustu. Í Svíþjóð og Englandi og víðar er alltaf verið að skamma börn. Hermenn komu gegnum ald­irnar heim möl­brotnir með allar þessar and­skot­ans reglur í sér. Við varla lifðum af og þjóð­inni fjölg­aði ekki eins og öðrum þjóðum eftir svarta­dauða fyrr en á 19. öld þannig að við vorum glöð er börnin lifðu eftir allan þennan hung­ur­dauða og barna­dauða. Ég held að jákvæð óþekkt teng­ist þessu bless­aða aga­leysi því hún er skap­andi. Íslenskt sam­fé­lag var enda ótrú­lega dug­legt að rétta úr kútnum á síð­ustu öld. Á öllum sviðum eigum við dásam­legt fólk með lausnir og skap­andi hugsun.“

Stúlka með rödd

Hún sem var bæði þæg og óþæg eins og börn eiga að vera var ári á undan í skóla. Hlíða­skóla.

Á heima­síðu Þórunnar, thor­vald.is, er að finna upp­töku af því þegar hún sem barn söng Guð gaf mér eyra með Telpna­kór Hlíða­skóla. Þetta var í fyrsta skipti sem hún söng ein­söng og hún segir að þessi upp­taka hafi ein­hvern tím­ann verið flutt sem síð­asta lag fyrir fréttir í útvarp­inu.

Guð gaf mér eyra, svo nú má ég heyra,

Guð gaf mér augu, svo nú má ég sjá.

Guð gaf mér hendur, svo gjört gæti meira,

Guð gaf mér fætur, sem nú stend ég á.

„Það kom hingað sænskur útvarps­gaur og tók upp þátt eða þætti um íslenska æsku. Þá fórum við til Þing­valla og það vildi svo til að það var akkúrat á tíu ára afmæl­inu mínu sem ég söng á Þing­völlum. Svona er líf mitt nú róm­an­tískt á köflum.“

Hún seg­ist hafa sungið Ó blessuð sértu sum­ar­sól og Fyrr var oft í koti kátt. „Það eru þrjú erindi í báðum lögum og kór­inn söng fyrstu og síð­ustu erindin og ég ein erindið í miðj­unni. Svo lét ég þessum söng mínum lokið. Svo lék ég reyndar líka í Hárinu í Glaumbæ. Vinkona mín plat­aði mig í afleys­ingar þar. Það var rétt eftir lands­próf. Núna syng ég fyrir sjálfa mig og þegar við systk­inin hitt­umst þá dönsum við, syngjum og spilum.“

Þórunn er spurð hvernig tón­list höfði til hennar. „Alls konar músík nema léleg, þá á ég við góða lag­línu, rytma eða texta. Það er visst böl að vera mennt­aður í tón­list. Ég lærði að spila á píanó í fimm ár, mamma var ágætur píanó­leik­ari. Kenn­ar­inn kom heim. Tvær systur mínar eru atvinnu­menn í tón­list, Lilja horn­leik­ari og Ásdís víólu­leik­ari. Elísabet Erlings­dóttir, náfrænka mömmu í móð­ur­ætt, var óperu­söng­kona og þegar hún var í MR var hún kölluð „Elísabet með rödd­ina“ því að hún vildi ekki gaula með í rútu­ferða­lögum. Það var mikil músík mömmu megin; Jón Alex­and­ers­son, faðir hennar, var um tíma for­maður Félags íslenskra kóra. Jón Krist­jáns­son, móð­ur­afi mömmu, söng í jarð­ar­förum. Það eru margir heimar í tón­list. Íslensk tunga er að verða eins. Viss hópur kann klass­íska tungu og fílu­púkar úr þeim hópi eru sífellt að nöldra á Fésbók yfir mál­villum. Ég skil ekki hvernig þeir geta litið glaðan dag. Núna er verið að kenna okkur að slaka á og að við verðum að vera glöð þótt talað sé nýbúa­mál. Ég ætl­aði nýlega að leið­rétta inn­flytj­anda sem skrif­aði bjag­aða íslensku en svo hugs­aði ég að þetta væri þessi fína nýbúa­ís­lenska og að ég ætti að vera ánægð og fá mér te og rús­ínur.“

Það togn­aði úr stelp­unni með rödd­ina. Hún var kosin for­maður í sínum árgangi í fyrsta bekk í gaggó og hún og annar for­maður í öðrum bekk fengu það hlut­verk að stjórna árs­há­tíð gagn­fræða­deildar Hlíða­skóla í Lídó árið 1967. Hún hafði skrifað leik­rit sem heitir Harm­leik­ur­inn um hann Eika bítil sem var frum­sýnt á árs­há­tíð­inni. Þetta er ekki langt leik­rit. Mætti kannski kalla það örleik­rit.

„Hann lenti í því að mamma hans og pabbi klipptu af honum bítla­hárið þegar hann var sof­andi. Hann drekkti sér síðan í vaska­fötu.“

Þórunn seg­ist varla hafa lært heima nema fyrir prófin. „Ein­kunn­irnar fylgdu horm­ón­unum skulum við segja. Ég var með 10 í reikn­ingi á barna­prófi. Svo snar­fór það niður þegar maður var kom­inn í gaggó en smá príl­aði upp aftur og svo náði ég sæmi­legu stúd­ents­prófi í MH. Það er svo margt annað í líf­inu en skóla­bæk­urnar sem maður getur lært af eins og félags­starf. Ég tók alltaf þátt í leik­list, kór­söng og félags­lífi eins og ég gat.“

Myndskreytti ljóðabækurnar

Þegar Þórunn er spurð hvers vegna hún hafi farið í sagn­fræði segir hún. „Stundum eins og í morgun gat ég ekki vitað hvað ég ætti að gera. Ég er búin að sofa illa í þrjár nætur eða sex tíma hverja nótt. Ég vil sofa í átta eða níu tíma. Það er eitt­hvað álag á mér sem er bæði hægt að skýra og ekki hægt að skýra. Tunglið, reiki­stjörn­urnar og allur and­skot­inn spilar með. Suma morgna þegar ég vakna veit ég ekki hvað ég á að gera. Þess vegna er gott að eiga karl eða ein­hvern til að stjórna. Kisurnar láta mig vita hvað ég á að gera; sjóða ýsu. Ég held þeirri hefð síðan ég var lítil. Kisur eiga að fá soð­inn fisk á morgn­ana.“

Um morgn­ana segir hún ann­ars. „Dagurinn opn­ast eins og blóm. Hægt og rólega fer maður fram úr og fær sér te. Það er mikil ser­emónía. Við þurfum frelsi, röð og reglu af því að röð og regla róar mann. Við erum öll svo yfir­spennt.

Í morgun velti ég því fyrir mér hvort ég ætti að fara í bað. Ég er með við­kvæma húð og fæ mjög sterk kóf síðan eftir breyt­inga­skeið og þau fara ekk­ert af ein­hverjum ástæðum. Þá segi ég bara að það sé af því að ég sé svo „hot“ og reyni að vera rosa jákvæð. Þori ekki að taka horm­óna­lyf því að mamma dó ung úr krabba­meini. Við kófin streymir vatn í sjóð­heita húð svo hún verður við­kvæm. Þess vegna er ekk­ert snið­ugt að vera alltaf að fara í bað. Húðin er ekk­ert gefin fyrir sápu. Það eru örlitlar skepnur sem búa á okkur; þær vilja ekk­ert að ég sé að klóra mér í hár­inu eða á kinn­inni. Hvaða usla veldur það hjá litlu mítl­unum?“ Þórunn kímir. „Svo eru komnar enn smærri verur sem blessuð vís­indin eru búin að setja í haus­inn á manni. Af því að hárið er smá krullað þá er það eig­in­lega fal­legra skítugt. Það koma betri krullur. Sterk skila­boð eru í sam­fé­lag­inu um að maður eigi alltaf að vera að þvo sér. Jú, vatn er róandi. Ég fæ nóg af því þegar ég er að þvo ruslið sem ég flokka við renn­andi bæj­ar­læk­inn frammi.“

En hvað með það að velja sagn­fræði?

„Ég ætl­aði að skýra það þegar ég fór að tala um hvað ég eigi erfitt með að taka ákvarð­anir. Nema í texta. Það er allt annað mál. En hvað á ég að gera? Hver er þessi „ég“ og hvað á ég að gera? Ég leit á stúd­ents­skír­teinið mitt og sá að ég var efst í ensku, íslensku og sögu sem sýnd­ist benda til þess að ég hefði gaman af því eða væri opin fyrir því. Besta vin­kona mín í bekknum var að fara til Lundar í nám í sagn­fræði þar sem stóra systir hennar var í félags­fræði­námi og ég fór með henni. Hún komst svo að því að hún væri ólétt og fór heim en ég hélt þetta út í eitt ár og sé ekki eftir því. Ég lærði þarna hag­sögu og almenna sögu og kynnt­ist þess­ari dásam­legu þjóð, Svíum, sem geta líka verið óþol­andi alveg eins og fólk í Banda­ríkj­unum. Best að alhæfa sem minnst. Heima sett­ist ég svo í ensku­deild­ina á Aragötu og las sagn­fræði í Árna­garði.“

Þórunn hélt áfram í BA-námi í sagn­fræði við Háskóla Íslands og í miðju námi tók hún hlé á því og fór til Mexíkó þar sem hún var í eitt ár í lista­há­skóla og lærði sögu fyrir Columbus, lista­sögu og mynd­list. „Vinkona mín þekkti konu sem hafði verið að læra vefnað í Mexíkó og hún fékk þessa hug­mynd og töfraði mig með sér. Þetta var tví­tyngdur lista­há­skóli, Instituto Allende í San Miguel de Allende. Ég var líka í fullu námi um sum­arið af því að náms­lánin dugðu svo lengi. List­rænir krakkar frá Banda­ríkj­unum sóttu þennan skóla af því að þarna var ódýrt að lifa og skóla­gjöldin lægri en heima. Þetta var frá­bært ár. Maður fyllt­ist sekt hvíta manns­ins við að kynn­ast inn­fæddum og setja sig inn í þeirra kjör. Ég lærði mikið eins og allir gera sem fara í þriðja heim­inn. Það voru ekki svo margir sem ferð­uð­ust þá. Nú fljúga allir út um allt án þess að skamm­ast sín. Ég þyk­ist voða góð af því að ég fer bara þegar ég á erindi.“

List­námið í Mexíkó hefur borgað sig. Teikn­ingar eftir Þórunni hanga í römmum á veggnum með­fram stig­anum upp á aðra hæð þar sem íbúðin hennnar er. „Ég hélt mynd­list­ar­sýn­ingu í Gler­hús­inu haustið 2024. Ljóða­bækur mínar hef ég mynd­skreytt sjálf. Ef lífið opnar list­ræna æð í börnum býr oft í þeim hæfi­leiki til fleiri lista. Rit­höf­undar hafa margir líka getu í mynd­list og tón­list. Skóla­kerfið reynir að vekja þetta allt í okkur. Það lætur okkur skrifa rit­gerðir, það lætur okkur teikna og það lætur okkur syngja og allir geta sent börnin í lúðra­sveit. Tón­list­ar­skólar eru dýrir eins og allir vita.“

Hún kláraði BA-námið í Háskóla Íslands 1979 og kenndi eftir það í eitt ár við Reykja­skóla í Hrúta­firði. „Ég kenndi auk þess sam­fé­lags­fræði og sögu, tón­list, teikn­ingu og stjórn­aði kór. Það var ágætt. Maður hafði ekk­ert annað að gera. Ég átt­aði mig á því að með því að mennta mig betur í sagn­fræði þyrfti ég ekki að starfa við það ævi­langt að opna huga mis­mót­tæki­legra frum­t­án­inga. Það tók á. Þetta ár lærði ég að vinna og fór betur mótí­veruð í námið en ég hafði verið fyrir. Eftir cand. mag.-prófið lærði ég kennslu­fræði og ætl­aði að kenna í fram­halds­skóla. Þórunn amma var lærður og sigldur kenn­ari, kenndi ensku í Landa­kots­skóla áður en hún gift­ist afa.“

Brennheit ástin

Á cand. mag.-stigi í Árna­garði fann Þórunn verð­andi eig­in­mann í sama námi. Stóru ást­ina eins og það heitir. Dökk­hærður og sjar­mer­andi, dríf­andi og dug­legur.

„Ég man að við gáfum hvort öðru hýrt auga allt haustið, vorum þau einu sem nenntum úr rút­unni við Gullfoss í vondu veðri í rann­sókn­ar­ferð. Það var skýrt tákn­mál. Svo 13. des­em­ber á Hótel Borg tog­aði hann í flétt­urnar á mér aftan frá. Ég var að dansa við ein­hverjar stelpur á dans­gólf­inu. Það er voða gott áður en maður dembir sér í sam­band að vera búinn að velta því svo­lítið fyrir sér af því að þegar komin er of mikil nálægð þá sér maður ekki skóg­inn fyrir trénu.“

Eggert Þór heit­inn Ber­harðs­son tog­aði í flétt­urnar tvær. Og þau tog­uðu í hvort annað næstu ára­tugi.

„Ást er blóð­tengsl. Það er lík­ams­tengt. Það inni­felur í sér kyn­líf eða vera faðir eða móðir. Blóð og hold.“

Hvað er það sem dregur fólk að hvert öðru?

„Við vorum svo heppin að það var gagn­kvæmur dúr á milli Venusar og sólar.“

Jú, Eggert var stóra ástin.

„Já, sá sem maður eign­ast börnin með og fær að eiga í 34 ár er auð­vitað stóra ástin. Frábær heppni í ofaná­lag að vera í sama fagi, þá hefur maður alltaf eitt­hvað að spjalla um, kolleg­ana og allt sem fylgir því að skrifa sagn­fræði­bækur. Gagn­kvæmur skiln­ingur, reynsla og vina­heimur.“

Svo komu tveir synir í heim­inn með um tíu ára milli­blil. Það eru þeir Gunnar Theodór og Valdimar Ágúst. Barna­börnin eru fjögur.

Þórunn segir að það hafi verið stór­kost­legt að verða móðir.

„Við fæð­ingu skilur maður fyrst hvað þessi kven­lík­ami er. Það er best að lýsa því þannig.“

Hvernig móðir var rit­höf­und­ur­inn þegar syn­irnir voru litlir?

„Við þurftum aldrei að skamma þá af því að það var bara einn í einu og þá er ekk­ert nema sæla. Minni læti.“

Lífið sparkar í alla

Hjónin, Þórunn og Eggert, voru saman í 34 ár. Hann vann í ára­tugi við Háskóla Íslands, fyrst sem kenn­ari í sagn­fræði og síðar varð hann pró­fessor í hag­nýtri menn­ing­ar­miðlun, deild sem hann kom á lagg­irnar með hjálp Lands­banka Íslands fyrir hrun. Hann skrif­aði meðal ann­ars tvær bækur í rit­röð Sögu Reykja­víkur sem borgin gaf út, Undir báru­járns­boga um bragga­sög­una og rétt fyrir dauð­ann kom Sveitin í sál­inni út, saga búskapar í Reykja­vík, allt vel mynd­skreyttar glæsi­bækur.

„Hann fitn­aði og vann allt of mikið þannig að ég ótt­að­ist um hann rúmu ári áður en hann dó. Ég gaf honum í jóla­gjöf gjafa­bréf til að fara í rann­sókn hjá Hjarta­vernd en hann lét árið líða án þess að nota það. Hann sagði í háskól­anum milli jóla og nýárs að hann ætl­aði að fara til læknis eftir ára­mótin 2013- 2014, fann þá að hann var orð­inn úrvinda.“

Það var svo á gaml­árs­dag árið 2013 sem Eggert fékk hjarta­á­fall heima. Þórunn og yngri sonur þeirra reyndu að hnoða hann en Eggert lést áður en sjúkra­flutn­inga­menn komu. Æðar til hjart­ans voru kolstíflaðar. Sorgin tók við, maka­missir sem erfitt er fyrir utan­að­kom­andi að skilja.

„Sorgin er eðli­leg. Lífið sparkar í alla ein­hvern tím­ann á ævinni á allan mögu­legan hátt og við verðum bara öll að vera dug­leg. Maður verður bara að vera sáttur. Ég ýtti sorg­inni út í Faxaflóa. Bað hvítu hryss­urnar í fló­anum að nudda sorg­ina með hóf­unum og senda mér hana í smá­skömmtum. Þetta er sjálfs­stjórn. Ég er góð í sjálfs­stjórn þótt ég viti stundum ekki hvað ég eigi að gera. Þetta gerð­ist fyrir ell­efu árum. Það hjálpar að eiga kisur.“

Hún sem hefur reynslu af sorg­inni, maka­missi, er spurð hvað fólk í sömu sporum eigi að hafa í huga.

„Mik­il­vægt er að huga að heilsu þeirra er næstir standa eftir bestu getu. Þá verður sekt­ar­kenndin ekki eins óbæri­leg.“

Hvernig hefur sorgin breytt Þórunni?

„Auðvitað var maður varn­ar­laus og við­kvæmur, ég hafði aldrei á ævinni þurft að vera ein. Eftir ell­efu ár er þetta frekar tregi og dep­urð en sorg, það væri synd gagn­vart til­ver­unni að hund­skast ekki til að finna björtu hlið­arnar á líf­inu eftir allan þennan tíma. Þar er ég oft­ast, sól­ar­megin. Hef verið dug­leg að skrifa og gefa af mér, öll vinna er frá­bær. Ég vil frekar tala um ein­veru heldur en sorg. Maður hefur meiri tíma til að hugsa. Maður nýtur frelsis. Besta reglan er að sjá kost­ina í sinni stöðu. Muna að hreyfa sig. Núna er ég á nám­skeiði með Lilju systur sem heitir Bein í baki í Kram­hús­inu. Þetta er mús­ík­leik­fimi, bönnuð yngri en 65 ára. Við lærum að finna hvern ein­asta vöðva lík­am­ans og gera þá sterka. Flest sitjum við eins og rækjur á stól og það eyði­leggur stoð­kerfi margra. Best er að sitja svona,“ segir Þórunn sem stendur skyndi­lega upp, beygir sig hratt niður og situr á hækjum sér í nokkrar sek­úndur og reisir sig svo lið­lega upp. „Sitji maður á hækjum sér, eins og allar konur gerðu oft á dag áður en kló­settin komu, þá teyg­ist hrygg­ur­inn.“

Þórunn sem er liðug og ung í anda er spurð hvað dauð­inn sé í huga hennar.

„Frelsun. Það verður gott að þurfa ekki að vera til. Ekkert vesen. Í gamla daga var lífið stutt og allir deyj­andi, þá var gott að hafa trú­ar­brögð sem sann­færðu fólk um líf eftir dauð­ann.“

„Minn guð er til­veran“

Þannig að Þórunn ótt­ast ekki dauð­ann.

„Ég tek honum fagn­andi.“

Heldur hún að það taki eitt­hvað við eftir dauð­ann?

„Það taka við örverur, bakt­er­íur og svo koma víurnar, orm­arnir. Þannig heldur lífið áfram og í afkom­endum. Trúin er samt góð og þessi draumur um að fara í ljósið, lífið má kalla ljós og það heldur áfram sínum straumi. Minn guð er til­veran. Ég varð trúuð sem barn og ég bý að því ennþá.“

Flótti frá raunveruleikanum

Aftur að sagn­fræð­inni. Þórunn segir að sagn­fræði­námið hafi verið góð flótta­leið frá raun­veru­leik­anum alveg eins og bók­menntir og listir. „Alveg eins og slag­orðið þegar við máttum ekki vera hippar í gamla daga. Flóttinn frá raun­veru­leik­anum. Það var kallað dóp. En það er svo margt sem fram­kallar okkar eigið holla dópamín eins og dans og hreyf­ing, kyn­líf, bók­menntir, listir, nátt­úran og vís­indin. Við þurfum öll skjól frá raun­veru­leik­anum. Víst er stundum raun að vera. Við liggjum afvelta yfir skjám af ýmsum stærðum, í gamla daga voru það bækur og rímur og sögur. Allir eru fegnir að eiga sér­her­bergi eftir að hafa verið í bað­stof­unni með öllum hinum. Ég held að fólk hafi farið upp í gil til að gera hitt. Það er kallað að gilja. Og við erum með gilið,“ segir Þórunn og glennir sig. Það er hlegið. Hún er aug­ljós­lega með húmor. „Giljagaur. Hefur þú aldrei náð því, elskan mín? Það er aldrei talað um það hvað hann gerir.“ Enn er hlegið. „Það er svo margt falið í gagn­sæju tung­unni okkar. Ég er búin að vinna með hana alla ævi og hef lært að opna alls konar orð.“

Og það opn­að­ist heill heimur í fram­halds­nám­inu í sagn­fræði.

„Jú, á cand. mag.-stigi valdi ég kúrsa hjá Svein­birni Rafns­syni sem kenndi spenn­andi nám­skeið um nýjar stefnur og strauma sem kenndir eru við frönsku anna­listana. Þar var sú hugsun ríkj­andi að mikil og merki­leg saga fælist í hvers­dags­leik­anum. Minn sagn­fræð­istíll mót­að­ist af þessum skóla. Ég var svo mikil rola að ég lét kenn­ar­ana finna fyrir mig efni. Berg­steinn Jónsson spurði hvort ég vildi ekki skrifa BA-rit­gerð um fjár­kláð­ann síð­ari. Og vit­leys­ing­ur­inn ég sagði bara „mjá“. Og ég fann dýr­lega heima í þeirri sögu og kom henni í afmæl­is­rit Gunnars Karls­sonar sagn­fræð­ings löngu síðar.

Ég var kasól­étt af eldri syni mínum þegar komið var að því að velja mér cand. mag.-verk­efni. Mentor minn, Björn Þorseinsson mið­alda­fræð­ingur, sagði mér þá að Jarð­rækt­ar­fé­lag Reykja­víkur ætti pen­ing og vildi fá ein­hvern sagn­fræð­ing til að skrifa sögu sína. Ég hlýddi og þetta varð gæfa mín af því að fyrstu tvær bæk­urnar var ég beðin um að skrifa. Sögu­fé­lagið vildi gefa út Sveitina við sundin í rit­röð­inni Safn til sögu Reykja­víkur. Þá vann ég rit­gerð­ina áfram með styrkjum og úr varð ágætis bók. Þetta varð víð lýs­ing á Reykja­vík meðan hún var sveit með hestum, hundum og kúm. Heyjað var í Vatns­mýr­inni af því að það var ekki hægt að flytja mjólk yfir Hell­is­heiði. Eftir fyrra stríð fór Reykja­vík fyrst að vaxa að ráði. Dýrleg sveita­býli voru út um alla Reykja­vík, fjós og hest­hús við mörg hús. Gaman var að segja frá „súkkulaði­vögn­unum“ svoköll­uðu sem sóttu heim það sem var í kömr­unum og flutti niður í Vatns­mýri svo hægt væri að búa til gras og úr því mjólk og kjöt. Þetta var almenni­legt. Núna er þetta allt sett út í sjó. Þessi bók kom út hjá Sögu­fé­lag­inu.“ Þetta var bókin Sveitin við sundin: búskapur í Reykja­vík 1870-1950 sem kom út árið 1986. Sama ár kom út ævi­saga Einars Jóns­sonar í Lækj­ar­hvammi, Af Hala­miðum á Haga­torgi.

Ævin­týrið á rit­vell­inum var hafið.

Sprengiefni

„Þriðju bók­ina var ég beðin um að skrifa á meðan ég sat í Fram­leiðslu­ráði land­bún­að­ar­ins í Bænda­höll­inni, með vinnu­að­stöðu og fyrstu tölv­una árið 1986. Þangað kom gjald­keri Bún­að­ar­fé­lags Íslands, Sigurður Líndal frá Lækj­ar­móti, og spurði mig hvort ég vildi ekki skrifa um Snorra á Húsa­felli. Þá var ég búin að sanna mig með tveimur bókum, önnur fræði­bók og hin ævi­saga. Því fékk ég styrk úr vís­inda­ráði og lista­manna­laun og gat í þrjú ár skrifað þessa fínu bók um 18. öld­ina og séra Snorra, popp­stjörnu 18. aldar, rímna­skáld og galdra­mann sam­kvæmt þjóð­sög­unum.“ Bókin, Snorri á Húsa­felli: Saga frá 18. öld, kom svo út árið 1989. „Ég var til­nefnd til fyrstu íslensku bók­mennta­verð­laun­anna í tíu manna hópi úr öllum greinum bók­mennta. Þá klór­aði ég mér í hausnum og hugs­aði að ég hlyti að vera orðin rit­höf­undur. Það þurfti að segja mér að gera allt eins og þú heyrir en þessu með nýja stöðu mína í líf­inu náði ég sjálf þarna á pall­inum í góðu kompaníi.“

Hlédræg?

„Mér hefur þótt bækur vera svo prúðar. Þær fara upp í hillu og sitja þar. Að því leyti er ég prúð. En svo þegar maður opnar bók þá er í þeim alls konar sprengi­efni sem fer í hug­ann og maður losnar aldrei við. Bækur breyta heims­mynd og eru bar­áttu­tæki og allt sem bók er. Það sem mér þykir vænst um er að hafa skrifað Upp á Sig­ur­hæðir, ævi­sögu Matth­í­asar Jochumssonar, sem ég var í fimm ár að vinna. Matti sagði að það væru margar sýslur í sér, þá átt­aði ég mig á því að það eru nokkrar Þórunnar í mér. Það hefur glatt mig mest að skrifa sögu­legar ævi­sögur sem fram­kalla heilu tíma­bilin í Íslands­sög­unni sem hinn almenni les­andi með­tekur. Kunni maður að segja sögu verður sagn­fræðin skemmti­leg. Skáld­skap­ur­inn er meira draum­kenndur og síst vil ég gera lítið úr honum.“

Þórunn, sem átt­aði sig á því að það eru margar Þórunnar í henni, er beðin um að lýsa sér. „Ég myndi ekki einu sinni reyna það,“ segir hún, „en ég ætla að gefa þér eina litla bók. Litla bók um stóra hluti.“

Hún fer fram í stof­una þar sem gljá­andi flyg­ill­inn og rúmið eru og kemur stuttu síðar með litlu bók­ina sem er bleik á lit­inn. „Maður getur ekk­ert lýst sjálfum sér. Það er voða skrýtið en aðrir sjá mann allt öðru­vísi en maður sér sig sjálfur. Eig­in­lega allar konur ímynda sér að þær séu ekki sætar. Meira að segja sumar heims­frægar gyðjur hvíta tjalds­ins. Við erum fyrst og fremst hóp­verur. Við þurfum öll klapp á bakið, við þurfum stuðn­ing til þess að vera sú sem við erum í hvert og eitt sinn. Þá er gott að eiga vini, vin­konur og systk­ini. Ég hugsa að ég sé laun­frek. Nei nei, ég er ákveðin, þrjósk og þæg. Einhvern veg­inn lendi ég í ýmsu í líf­inu og má ekki gef­ast upp af því ég er Vest­firð­ingur. Þannig hef ég oft lent í bölv­aðri klemmu, sam­þykki eða ákveð að gera eitt­hvað og þá verður Þórunn rola að fara inn í skáp og hin að taka til hend­inni.“ Þórunn hlær. „Skella sér í þetta. En nú er ég orðin lög­legt gam­al­menni.“

Hún sem lítur út fyrir að vera miklu yngri en rúm­lega sjö­tug og er með rödd eins og ung stúlka segir að það hafi verið svo­lítil aðlögun að verða lög­leg. „Það kallar að vísu líka á aðlögun að verða fimm­tugur. Það eru rosa­legir ald­urs­for­dómar í sam­fé­lag­inu.“

Úrelt fyrirbæri?

Bækurnar eru orðnar þrjá­tíu og ein. 31 ef maður velur tölu­stafi.

„Maður verður betri og betri í því litla sem maður kann. Þangað til heil­inn fer að skemm­ast. Það hefur verið sagt að ég sé fjöl­hæf­asti rit­höf­undur sem Ísland hefur átt af því að ég skrifa í svo mörgum greinum, það þótti mér vænt um að heyra af því þetta hefur oft verið raun vera. Lífið er eins og að ganga upp á Esju og svo fer að halla undan fæti. Það heitir að vera á toppnum að vera þar sem ég stend núna. Ég skrif­aði full­orð­ins­ævi­sögu mína Stúlku með fálka. Skáldævi­sögu sem kom út fyrir síð­ustu jól til að minna sjálfa mig á þessa fjall­göngu sem skriftir mínar hafa verið. Það er fyrst og fremst iðni og tækni sem hjálpa manni að ná leikni við að skrifa.“

„Lífið er eins og að ganga upp á Esju og svo fer að halla undan fæti.“

Þórunn er spurð hvaða bók standi upp úr. „Matthías Jochumson er svo stór. Hann tók fimm ár og er næstum 800 síður. Hann gerði mig betri. Það var svo góð nær­vera. Mér þykir vænst um hann. Eftir alla mína karla­dýrkun í ævi­sögum er ég mér til afböt­unar á kell­inga­svið­inu, í kven­orkunni, í öllum skáld­skap,“ segir Þórunn og gerir rödd­ina djúpa og dimma. „En það er hug­mynda­saga sem lætur mig tikka,“ segir hún svo með sinni stúlkna­rödd. „Því skrifa ég frekar ævi­sögur karla en reyni alltaf að koma öllu að varð­andi kvenna­sögu sem ég finn. En það er bara svo falið það sem kon­urnar voru að gera.“

Blaða­maður hafði komið með eina skáld­sögu Þórunnar og biður hana að árita. Stúlka með fingur. Lista­verk. Svo hefur Þórunn skrifað Stúlka með maga og Stúlka með höfuð.

„Ég var með stærsta haus­inn í MH af stelp­unum þegar voru mældar stúd­ents­húfur. Svo er ég nátt­úr­lega búin að lifa í hausnum alveg hreint mest­allt lífið. Að skrifa er að lifa í hausnum í sér, er það ekki?“

Jú, það er margt sem ger­ist þar. Heill heimur.

Þessar þrjár bækur er ætt­mæðra­þrí­leikur. Stúlka með fingur er um móð­ur­ömmu hennar, Stúlka með maga er um móður hennar og Stúlka með höfuð er þroska­saga hennar sjálfrar.

Snjó­hrammur rétti hönd­ina úr fjall­inu eftir okkur. Guð rétt út fingur, benti á fjallið og prest­inn, hest­ana og hesta­strák­inn, mig og hund­inn. Náttúran, með allt sitt plan, hafði stillt saman leys­ing­una og hófa­dyn hest­anna þennan dag, hafði í árdaga skapað það fjall og válega hlíð­ina til þessa efnis. (Stúlka með fingur.).

Þórunn vill ekki tala um bók­ina sem hún er að vinna að. „Ég er stutt komin með stórt verk­efni og veit ekki hvernig það mun ganga, maður er nú að verða 72 ára.“

Skrifar rit­höf­und­ur­inn í þögn eða hlustar á tón­list á meðan lista­verkin verða til?

„Ég hlusta oft á barokk. Adagios. Rólegt barokk af því að sá heimur er eins og kirkja. Hann er svo róandi. Þegar ég skrifa á góðum degi þá fer ég í vímu ef ég er ekki stressuð. Það er eins og að dreyma sig burt og ranka við sér eftir nokkra tíma. Þetta er afbragðs flótti frá raun­veru­leik­anum.“

Textinn er stundum ljóð­rænn. Fegurðin ein.

„Maður fékk mikla æfingu í rit­gerða­smíð í sagn­fræð­inni og það tók svo­lítið á að þora að víkka þann stífa ramma. Þegar ég var búin að skrifa þrjár fyrstu bæk­urnar sem mér var sagt að skrifa þá skrif­aði ég ljóða­bók af því að ég var orðin hund­leið á því að hafa ekki frelsið. Það er frelsi og skipu­lag sem gildir.“

Einungis ein bók Þórunnar hefur verið þýdd. Stúlka með fingur.

„Það er visst böl að fæð­ast í þess­ari litlu tungu. Læsast þar inni. Sér­stak­lega fyrir fólk sem höfðar til lít­ils hóps í sam­fé­lag­inu. Ég er sátt við að skrifa fyrir mitt sam­fé­lag,“ segir Þórunn sem var til­nefnd til Bók­mennta­verð­launa Norð­ur­landa­ráðs fyrir bók­ina Stúlka með fingur - einu bók hennar sem hefur verið þýdd.

Er hún alveg sátt við að bæk­urnar séu ekki þýddar?

„Já, það er alveg nóg vesen að Íslend­ingar séu að lesa þetta,“ segir hún og hlær.

Mikið hefur verið fjallað um slakan lestr­ar­skiln­ing ung­linga og kannski eru ekki nógu margir sem taka sér bók í hönd.

„Áður byggði íslenskt sam­fé­lag sjálfs­traust sitt mjög á bók­menntum og íslenskri tungu. En það er svo margt annað í heim­inum. Ég er með of víða sögu­lega sýn til þess að sjá þetta sem ein­hverja hörm­ung. Það var mjög skemmti­legt sam­fé­lag áður en texti var fund­inn upp. Þess vegna eru skírn­ar­vottar og hjóna­vígslu­vottar af því að það var eng­inn pappír. Þetta voru vitni. Svo komu bækur og sumt fólk var alltaf með nefið ofan í bók. Þetta sem er að ger­ast í tækni­heim­inum er erfitt aðlög­un­ar­skeið. Ég les mik­inn góðan texta í sím­anum mínum. Hlusta á hljóð­bækur. Hvað er bók á pappír? Hálf­úrelt fyr­ir­bæri?“

Vill rit­höf­und­ur­inn sem sé ekki lesa bók­ina sjálfa? Fletta blöð­unum?

„Jú og skoða mynd­irnar! Auðvitað er það gaman. Það er allt gott og gaman sem við erum vön og við þekkjum. Besta mál að gera allt sem við getum til að styrkja bók­ina eins og við getum. Án góðs hand­rits verða ekki til góðar kvik­myndir, til dæmis. Lifi hin frá­bæra upp­finn­ing, text­inn og öll hand­rit, fyrr og síðar. Allir sem vett­lingi geta valdið ættu að skrifa minn­ingar sínar, fyrir sam­tím­ann og fram­tíð­ina.“

Auðmýkt og fangelsi

Lítil bók um stóra hluti kom út árið 2023. Þar er meðal ann­ars fjallað um „kyn­vini“ í fleir­tölu. „Var eitt­hvað að reyna að vera kúl. Einkalíf er frá­bært eins og sér­her­bergið. Mér finnst hall­æris­legt að tala um þetta. Að kell­ingar úti í bæ séu að smjatta á ein­hverju sem ég hef skrifað eða sagt. Bilaður ókunnur kall hringdi í mig og spurði hvort ég ætti tvo kærasta.

Hjóna­band og fast sam­band er auð­vitað fyrst og fremst varn­ar­garður um börnin og dásam­legt að góð hjón nái að eld­ast saman. Mér hefur ekki tek­ist að krækja í nýjan karl til eignar. Lilja systir sagði fyrir löngu að það væru tómir afgangar á lausu fyrir fólk í minni stöðu og frjálsir karlar haldnir sam­bands­fælni. Vilja eiga sitt frelsi skilj­an­lega. Svo er hin sorg­lega stað­reynd að sumir karl­menn verða getu­lausir með aldr­inum. Þetta er ekk­ert kræsi­legur mark­aður en bjargi hver sér segi ég nú bara. Svo er það hin grimma stað­reynd úr spen­dýra­rík­inu að bara eitt af hverjum fjórum karl­dýrum kemst nærri kven­dýri. Þar af leiðir að fjöl­kvæni er nátt­úr­legt? Ég er bara for­vitin telpa að reyna að skilja heim­inn.

„Svo er hin sorg­lega stað­reynd að sumir karl­menn verða getu­lausir með aldr­inum“

Um leið og þetta sam­fé­lag er að remb­ast við að vera meira og meira játn­inga­sam­fé­lag þá er það álag og hryll­ingur fyrir hvern og einn sem ber­skjaldar sig. Við þurfum fólk sem þorir að létta af álagi raun ver­unnar með því að tala um allt það sem bögglar okkur og gerir lífið óþarf­lega erfitt. Miklu skiptir að sam­fé­lagið eigi lið sem reynir að brjót­ast í gegnum þrönga hug­mynda­garða yfir í víð­ara dæmi en mann­fjand­sam­leg við­horf. Okkur tókst að frelsa konur og sigr­ast á ýmsum for­dómum. Opinská við­töl auðga mann­skiln­ing okkar og það er vel.“

Fálka­orðu­haf­inn sem tók á móti blaða­manni sem kona með hanska, gúmmí­hanska, er spurður hvert fal­leg­asta orðið sé að hans mati.

„Auðmýkt. Af því að það er and­staðan við rudda­skap og kennir okkur að sýna öllum virð­ingu. Öllu sem lifir. Og felur líka í sér til­beiðslu og trú.“

En ljótasta orðið?

„Ekkert orð er ljótt. Ég veit ekki um neitt ljótt orð eða að þau eru of mörg til að ég geti valið. Ég myndi bara segja „fang­elsi“. Það hlýtur að vera skelfi­legt að vera lok­aður inni. Ég er með inni­lok­un­ar­kennd, ekk­ert mikla en segi bara svona. Pabbi kastaði mér út í sund­laug. Vil ekki láta loka mig í kistu, það er hræði­legt að geta ekki teygt úr sér.“

Um sund­laug­ar­kastið segir hún svo: „Það gerðu þetta fleiri pabbar, það var tíska að lækna vatns­hræðslu á þennan hátt. En ég var svo grönn og labb­aði langt á botn­inum svo pabbi fann mig ekki. Er enn þarna í Gömlu laug­unum og búin að breyt­ast í tré.“

Hún sem er rúm­lega sjö­tug og með rödd ungrar stúlku er spurð hvað sé fram undan og hverjir draum­arnir séu.

„Maður ræður engu. Bara góð heilsa. Ef mér lán­ast að hafa góða heilsu þá er ég mjög þakk­lát.“

Kalla má trúna vöku­draum. Þið vitið það kannski ekki, en stundum renna tré sér upp úr jörð­inni og hlaupa um allan bæ á rótum sínum, upp í Heiðmörk, upp að jök­ul­rótum. Þau gera það í töfraraun­sæ­inu. Við erum frjáls og draum­ur­inn eilífð, sé hann góður. (Lítil bók um stóra hluti.)

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina