Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Mér líkaði einfaldlega aldrei við Jeffrey“

Dorrit Moussaieff seg­ist hafa þróað með sér inn­sæi gagn­vart fólki frá unga aldri

„Mér líkaði einfaldlega aldrei við Jeffrey“

Skart­gripa­drottn­ingin og fyrr­ver­andi for­seta­frúin Dorrit Moussaieff, seg­ist hafa í sér hálf­part­inn genat­ískt inn­sæi og því hafi hún skynjað fljótt að Jeffrey Epstein væri maður sem hún vildi ekk­ert hafa með.

Mannlíf ræddi við Dorrit Moussaieff, fyrr­ver­andi for­seta­frú Íslands, um tengsl hennar við Jeffrey Epstein og Ghislaine Maxwell, í ljósi opin­berrar umræðu um málið bæði hér­lendis og erlendis.

„Halló og bless!“

Fram hefur komið að síma­númer Dorritar hafi verið skráð í tengilið­a­lista Epsteins. Spurð hvort hún hafi átt mörg sím­töl við hann segir hún:

„Einu sam­tölin sem ég hef átt við Jeffrey Epstein voru varð­andi lyftu í bygg­ing­unni okkar sem virk­aði ekki, þar sem hann var svo vin­gjarn­legur að bera upp far­ang­ur­inn fyrir mig.“

Aðspurð hvenær hún hafi síð­ast talað við Epstein segir Dorrit:

„Síðasta skiptið sem ég tal­aði við Epstein var fyrir 25 árum.“

Um hvað sam­talið hafi snú­ist svarar hún ein­fald­lega:

„Halló og bless! Ég gekk út á stund­inni sem hann gekk inn.“

Dorrit segir jafn­framt að hún hafi síð­ast hitt Epstein fyrir 25 árum og að sam­skiptin hafi þá einnig verið tak­mörkuð:

„Halló og bless.“

Hún segir aldrei hafa rætt mál­efni íslenska rík­is­ins við Epstein og kveðst hafa forð­ast sam­skipti við hann eins og hún gat.

„Nei, ég reyndi af fremsta megni að forð­ast að eiga sam­töl við hann.“

Spurð hvort hún hafi nokkurn tím­ann hitt Epstein ásamt eig­in­manni sínum, fyrr­ver­andi for­seta Íslands Ólafi Ragnari Gríms­syni, segir hún:

„Já, við hitt­umst við sama tæki­færi fyrir 25 árum. Ég krafð­ist þess að við yfir­gæfum bæði her­bergið þegar í stað.“

Innrætt innsæi

Mannlíf spurði Dorrit hvers vegna hún forð­að­ist Epstein en hún seg­ist hafa treyst inn­sæi sínu.

„Frá unga aldri vann ég í búð föður míns í Jer­úsalem. Ég byrj­aði að vinna þar 10 ára gömul. Þetta var löngu fyrir tíma kredit­korta. Alls konar fólk kom inn. Samn­ingar voru gerðir með handa­bandi. Maður þró­aði með sér inn­sæi, til­finn­ingu fyrir því hvers konar per­sónu maður var að eiga við, hvort þeir eru trausts­ins verðir.“

Hún segir þessa til­finn­ingu hafa fylgt sér alla tíð.

„Þetta hefur verið inn­rætt í mig og fjöl­skyldu mína í kyn­slóðir. Þetta er næstum orðið hluti af genum okkar.“

Dorrit segir ólæsan föður sinn hafa hvatt hana til þess að þróa inn­sæið.

„Faðir minn, sem var ólæs, hafði frá­bært inn­sæi, hann hvatti mig til að þróa það. Það er eins og loft­net sem varar mann við. Svolítið eins og til­finn­ingin sem Samson [íslensk-þýskur fjár­hundur Ólafs og Dorritar] fær þegar hann hittir ein­hvern sem honum líkar ekki við.“

Hún segir í sam­tali við Mannlíf að hana hafi aldrei líkað við Epstein.

„Mér lík­aði ein­fald­lega aldrei við Jeffrey. Og vildi ekki vera í félags­skap hans. Auðvitað gat ég ekki forð­ast að rekast á hann á leið inn og út úr bygg­ing­unni okkar.“

Árið 2019 svar­aði hún í sam­tali við DV að hún hefði ekki tekið eftir neinu furðu­legu varð­andi Epstein en Mannlíf spyr Dorrit hvers vegna hún seg­ist nú hafa forð­ast hann.

„Það var ekk­ert skrítið við hann. Mér lík­aði bara ekki við hann, svo­lítið slepju­legur,“ svarar Dorrit.

Um sam­band sitt við Ghislaine Maxwell segir Dorrit að hún hafi vitað, líkt og aðrir í Bret­landi, að Maxwell væri í sam­bandi við Epstein, en ekki haft vit­neskju um eðli þess.

„Ég vissi, eins og allir aðrir sem bjuggu í Bret­landi, að Ghislaine var í sam­bandi með Jeffrey. Hvers konar sam­band það var hafði ég ekki hug­mynd um.“

Hún kveðst ekki hafa átt náið sam­band við Maxwell.

„Ég held ég hafi aldrei séð þau saman. Ég átti ekki þannig vin­skap við hana.“

Í sím­tali við blaða­mann ítrekar Dorrit að hún hafi „alls ekki“ varað Maxwell við Epstein þar sem hún „átti ekki þannig sam­band við hana“.

Innsæið virð­ist hafa brugð­ist Dorrit þegar kom að Maxwell, sem dæmd var í 20 ára fang­elsi fyrir hennar þátt í glæpum Epsteins. Aðspurð hvort það hafi komið henni á óvart að Maxwell hafi verið dæmd fyrir man­sal og sam­særi um að útvega Epstein stúlkur, allt niður í 14 ára aldur, segir Dorrit:

„Já, ég var afar hissa og í áfalli. Ég skil það enn ekki.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Epstein-skjölin

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina