Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Nýjar Epstein-myndir sagðar sýna Andrew prins með ungum konum

Breska pressan hefur leitað eftir svörum frá prins­inum fyrr­ver­andi

Nýjar Epstein-myndir sagðar sýna Andrew prins með ungum konum
Andrew, fyrrum prins Enn eru öll kurl ekki komin til grafar Mynd: JUSTIN TALLIS / AFP

Ljósmynd sem virð­ist sýna Andrew Mountbatten-Windsor, fyrr­ver­andi her­toga af Jórvík, með meintu fórn­ar­lambi Jeffrey Epstein sitj­andi í fang­inu á sér hefur nú verið birt af banda­ríska dóms­mála­ráðu­neyt­inu.

Á mynd­inni sést maður í blárri skyrtu og grárri hettu­peysu með hand­legg­ina utan um ljós­hærða konu sem situr í fang­inu á honum. Aldur kon­unnar er óþekktur. Myndin virð­ist hafa verið tekin í húsi Epsteins á Man­hattan og mað­ur­inn lík­ist Andrew prins­inum

Á annarri mynd sem einnig var birt í dag, sést sami maður sitja á stól á meðan önnur ung kona stendur fyrir aftan hann með hand­legg­ina um háls hans. Andlit kvenn­anna tveggja hafa verið hulin af yfir­völdum, líkt og gert er með allar konur sem dóms­mála­ráðu­neytið telur hafa verið fórn­ar­lömb Epsteins.

Mynd­irnar eru litlar og í lágri upp­lausn en virð­ast hafa verið teknar í borð­stofu rað­húss Epsteins í New York. Þær eru meðal um 180.000 ljós­mynda sem banda­ríska dóms­mála­ráðu­neytið hefur birt sam­kvæmt lögum um gagn­sæi í Epstein-skjöl­unum.

Andrew, sem er 66 ára, dvaldi í húsi Epsteins á Man­hattan í heila viku í des­em­ber árið 2010. Í við­tali við BBC-þátt­inn Newsnight árið 2019 sagð­ist hann hafa farið þangað vegna þess að hann væri „of heið­virður“ til að kveðja ekki dæmda barn­a­níð­ing­inn per­sónu­lega.

Skjöl og sam­skipti sem dóms­mála­ráðu­neytið hefur birt benda hins vegar til þess að þeir hafi eytt tíma saman í sam­kvæmislífi í ferð­inni og haldið áfram sam­skiptum eftir hana. Ein mynd sem birt var í jan­úar sýnir Andrew á fjórum fótum halla sér yfir unga konu. Talið er að hún hafi einnig verið tekin í borð­stofu heim­ilis Epsteins í heim­sókn­inni árið 2010.

Rann­sak­endur hafa bent á að Andrew virð­ist á mynd­unum klæð­ast svip­uðum galla­buxum og hann var í þegar hann var mynd­aður á göngu í Central Park 2. des­em­ber 2010. Á mynd­unum má einnig sjá áber­andi rauð- og hvít­strípaðan dúk á borði í bak­grunni.

Andrew prins dró sig að mestu úr opin­beru lífi eftir að Virginia Giuffre sak­aði hann um að hafa beitt sig kyn­ferð­is­of­beldi þegar hún var 17 ára, eftir að Epstein hefði „lánað“ hana honum. Andrew hefur ávallt neitað þeim ásök­unum. Í fyrra svipti Karl III Breta­kon­ungur bróður sinn síð­ustu kon­ung­legu titlum hans.

Eftir birt­ingu um þriggja millj­óna skjala sem tengj­ast Epstein var Andrew hand­tek­inn í febr­úar, grun­aður um mis­ferli í opin­beru starfi. Lög­reglan í Thames Valley rann­sakar ásak­anir um að hann hafi látið Epstein í té við­kvæmar upp­lýs­ingar á meðan hann starf­aði sem við­skipta­full­trúi Bret­lands.

Tölvu­póstar sem birtir hafa verið und­an­farið virð­ast einnig benda til þess að Epstein hafi kynnt Andrew fyrir ungum konum eftir að fjár­mála­mað­ur­inn var dæmdur árið 2008 í Flórída fyrir að hafa sótt sér vændi hjá ólög­ráða stúlku.

Í tölvu­pósti frá ágúst 2010 bauð Epstein Andrew að hitta „fal­lega“ 26 ára rúss­neska konu. Í síðar sendum pósti sagð­ist konan hafa átt „frá­bært kvöld“. Mánuði síðar skrif­aði Epstein að hann myndi koma með nokkrar konur í kvöld­verð í Buckingham-höll, þar á meðal eina sem hann lýsti sem „rúm­enskri og mjög sætri“.

Vinátta Andrew við Epstein hefur lengi verið til skoð­unar. Epstein umgekkst marga auð­uga og áhrifa­mikla ein­stak­linga í heimi kon­ungs­fjöl­skyldna, við­skipta og stjórn­mála.

Andrew var einnig vinur Ghislaine Maxwell, breskrar yfir­stétt­ar­konu sem aðstoð­aði Epstein við að halda utan um tengsla­net hans og eignir. Hún var dæmd í New York árið 2021 fyrir meðal ann­ars man­sal á ólög­ráða stúlkum og sam­særi um að laða ungar stúlkur til Epsteins.

Maxwell, dóttir fjöl­miðla­mó­gúls­ins Roberts Maxwell, afplánar nú 20 ára fang­els­is­dóm.

Epstein sjálfur var hand­tek­inn í júlí 2019 fyrir alrík­is­á­kærur um man­sal á ólög­ráða stúlkum. Mánuði síðar fannst hann lát­inn í fanga­klefa í New York þar sem hann beið rétt­ar­halda. Dauði hans var úrskurð­aður sjálfs­víg með heng­ingu, þó að hann hafi vakið miklar vanga­veltur almenn­ings.

Breskir miðlar hafa leitað eftir við­brögðum Andrew við nýju mynd­unum en engin svör hafa borist. Hann hefur ávallt neitað öllum ásök­unum um mis­ferli.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Epstein-skjölin

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife