Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Volæði Windsor-fjölskyldunnar

Beta Dís á barmi tauga­á­falls, Fergie í felum og kon­ungur í kreppu.

Volæði Windsor-fjölskyldunnar
Vil­hjálmur, Andrew og Katrín Vandræði Windsor-fjöl­skyld­unnar eru nú stærri en nokkru sinni Mynd: ADRIAN DENNIS / AFP

Fyrr­ver­andi prins­inn Andrew eyddi stórum hluta 66 ára afmælis síns í haldi lög­reglu. Hann var hand­tek­inn grun­aður um mis­ferli í opin­beru starfi, síðar sleppt en sætir áfram­hald­andi rann­sókn, en í kjöl­farið hefur komið fram að bresk stjórn­völd hygg­ist íhuga að svipta hann sæti í erfða­röð­inni þegar öllum lög­reglu­rann­sóknum lýkur.

Andrew er nú átt­undi í röð­inni til krún­unnar, en ef öll sam­veld­is­ríkin sem Karl III er þjóð­höfð­ingi yfir sam­þykkja, gæti þingið sett lög sem myndu afnema þetta síð­asta form­lega tákn kon­ungs­stöðu hans. Karl kon­ungur hefur þegar svipt bróður sinn titlum og heið­urs­nafn­bótum, en það hefur ekki dugað til að slá á reiði almenn­ings vegna tengsla Andrews við hinn dæmda kyn­ferð­is­brota­mann Jeffrey Epstein.

Birting millj­óna skjala, svo­kall­aðra Epstein-skjala, af hálfu banda­ríska dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins hefur varpað nýju ljósi á vin­áttu Andrews og Epstein, sem og tengsl fyrr­ver­andi eig­in­konu hans, Söruh Ferguson við níð­ing­inn. Á bak við luktar dyr stendur Windsor-ættin frammi fyrir einni alvar­leg­ustu krísu í sögu sinni.

Óstöðugur og í afneitun

Sér­fræð­ingar í mál­efnum kon­ungs­fjöl­skyld­unnar segja að Andrew eigi erfitt með að sætta sig við fall sitt. Fyrr­ver­andi frétta­rit­ari BBC, Jennie Bond, segir hann lifa í stöð­ugum ótta um hvað komi næst í ljós. Aðrir heim­ild­ar­menn segja hann hafa neitað að yfir­gefa Royal Lodge í Windsor og verið í afneitun gagn­vart raun­veru­legri stöðu sinni.

Andrew er sagður hafa misst tengsl við raun­veru­leik­ann og halda enn í form­lega ávarpið „Sir“ gagn­vart starfs­fólki, þrátt fyrir að hann hafi í raun enga eigin starfs­menn lengur. Heim­ildir herma einnig að hann sé æfur yfir því að þurfa að aflétta áformum um rík­is­út­för sína.

„[Hann] sá fyrir sér stór­feng­lega athöfn í kapellu heilags Georgs í Windsor, sem yrði sjón­varpað til syrgj­andi þjóðar, en áætl­anir hans hafa verið settar í tæt­ar­ann.“

Karl konungur sleginn

Karl kon­ungur er sagður „sund­ur­laus af sorg“ yfir hand­töku bróður síns. Samkvæmt The Times hafði hann grun um að frek­ari upp­lýs­ingar um tengsl Andrews við Epstein myndu koma fram, en hafi tekið frá­sögn bróður síns trú­an­lega af tryggð. Nú hyggst hann þó styðja lög­reglu að fullu í rann­sóknum sínum, að sögn heim­ilda innan hall­ar­innar.

Dætur Andrews í krísu

Dætur Andrews, Berta Dís prinsessa og Evgenía prinsessa, eru sagðar eiga mjög erfitt með ástandið. Í Epstein-skjöl­unum koma fram tölvu­póstar sem gefa til kynna að Beta Dís hafi, sem ung kona, verið hluti af félags­legum tengslum for­eldra sinna við Epstein. Sér­fræð­ingar segja slíkar upp­lýs­ingar „grimmi­legar“ og afar þung­bærar fyrir dótt­ur­ina.

Heim­ildir herma að Beta Dís sé á barmi tauga­á­falls og glími við umfang ásak­ana á hendur föður hennar. Evgenía á hins vegar að hafa slitið sam­skiptum við hann, meðal ann­ars í ljósi starfa sinna með sam­tökum gegn man­sali.

Ferguson í felum

Sarah Ferguson hefur haldið sig fjarri sviðs­ljós­inu eftir að málið bloss­aði upp. Hún dvaldi um tíma á lúxus-heilsu­bót­ar­mið­stöð í Sviss og er nú sögð vera í felum hjá vinum í Bret­landi, miður sín og sígrát­andi. Höf­und­ur­inn Andrew Lownie telur að hún þurfi að bera vitni fyrir banda­ríska þing­inu um það sem hún viti um Epstein.

Þögn Harrýs og spenna hjá Vilhjálmi

Harrý prins hefur enn ekki tjáð sig opin­ber­lega, þrátt fyrir að hafa áður gagn­rýnt með­ferð stofn­un­ar­innar á máli Andrews í ævi­sögu sinni Spare. Heim­ildir segja ólík­legt að hann taki þátt í umræð­unni nú.

Á sama tíma birt­ust Vil­hjálmur krón­prins og Katrín prinsessa opin­ber­lega í fyrsta sinn eftir hand­tök­una á Bafta-hátíð­inni. Lík­ams­tján­ing­ar­sér­fræð­ingar telja merki um bælda spennu hafa verið greini­leg, og Vil­hjálmur við­ur­kenndi sjálfur að hann væri ekki í „rólegu hug­ar­á­standi“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Epstein-skjölin

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife