Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Gervigreindarfyrirtæki bauð Unu Stef fúlgu fjár fyrir rödd hennar

„Ég gæti orðið næsta Siri!“

Gervigreindarfyrirtæki bauð Unu Stef fúlgu fjár fyrir rödd hennar
Una Stef Una Stef svar­aði boð­inu neit­andi Mynd: Instagram

Tón­list­ar­konan Una Stef­áns­dóttir eða Una Stef eins og hún kallar sig, seg­ist hafa hafnað til­boði frá erlendu fyr­ir­tæki sem vildi fá hana til að taka upp hund­ruð klukku­stunda af tali og söng á íslensku til að þjálfa gervi­greind­ar­kerfi.

Una greinir frá þessu í færslu á sam­fé­lags­miðlum þar sem hún segir fyr­ir­tækið hafa haft ítrekað sam­band við sig.

„Það er erlent fyr­ir­tæki búið að hafa ítrekað sam­band við mig til þess að fá mig til að vinna fyrir sig. Ég á að taka upp hund­ruði klukku­tíma af sjálfri mér að tala íslensku og sömu­leiðis á ég að syngja enn fleiri klukku­tíma af efni á íslensku,“ skrifar hún.

Mark­miðið hafi verið að þjálfa gervi­greind til að tala og syngja á íslensku og mögu­lega nota rödd hennar í fram­tíð­inni.

„Jú, þeir vilja þjálfa AI mód­elið sitt til þess að læra íslensku og að öllum lík­indum kaupa svo rétt­inn á að nota rödd­ina mína í vör­una sína. Ég gæti orðið næsta Siri! Nema alís­lensk OG syngj­andi!“

Að hennar sögn var henni boðið mjög há greiðsla fyrir verk­efnið en hún seg­ist ekki hafa þurft að hugsa sig lengi.

„Fyrir þetta er mér boðið heeeeeellingur af pen­ingum en ég þurfti ekki að hugsa mig tvisvar um. Svarið er nei.“

Una segir að hún vilji ekki að rödd hennar verði notuð á opin­berum vett­vangi þar sem hún hafi enga stjórn á því í hvaða sam­hengi hún birt­ist.

„Ég vil ekki selja rödd­ina mína á opin­beran vett­vang þar sem hver sem er getur notað hana í hvað sem er,“ skrifar hún og bendir á að röddin gæti jafn­vel verið notuð í aug­lýs­ingar eða efni sem hún vilji ekki tengj­ast.

Hún segir söng­rödd sína vera afrakstur margra ára vinnu og reynslu og vill ekki að gervi­greind læri að end­ur­gera hana.

„Ég er búin að eyða mörgum árum, pen­ingum, tíma í námi, á sviði og í hljóð­veri til þess að æfa söng­rödd­ina mína og verða að söng­kon­unni sem ég er í dag.“

Í færsl­unni hvetur hún aðra lista­menn til að íhuga vel áður en þeir sam­þykkja sam­bæri­leg til­boð og spyr: „Hvers virði er röddin ykkar?“

Una segir jafn­framt að hún hafi áhyggjur af áhrifum gervi­greindar á tón­list­ar­iðn­að­inn og kallar eftir skýr­ari reglum.

„Það vantar skýr­ari lag­ara­mma í kringum hvað má og hvað má ekki,“ skrifar hún og segir að nú þegar sé gervi­greind notuð til að búa til tón­list fyrir aug­lýs­ingar, sjón­varp og streym­isveitur.

Hún segir þó að hún sé ekki and­víg gervi­greind í sjálfu sér.

„Að því sögðu þá er ég eng­inn AI hater,“ skrifar hún og segir tækn­ina geta verið gagn­lega, svo lengi sem hún vinni með lista­fólki en taki ekki vinn­una af því.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina