Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fimm ára drengur lést eftir að hafa andað að sér helíum

Systir Karltons varar for­eldra við ban­vænni hættu sem leyn­ist í hel­íumblöðrum

Fimm ára drengur lést eftir að hafa andað að sér helíum
Karlton Noah Donaghey Systir Karlton litla varar for­eldar við hel­íumblöðrum Mynd: Samsett

Fimm ára drengur lést eftir að hafa andað að sér hel­íum úr blöðru, og fjöl­skylda hans varar nú for­eldra við hætt­unni sem fylgir slíkum vörum.

Karlton Noah Donaghey var aðeins í burtu frá móður sinni í nokkrar mín­útur þegar slysið varð á heim­ili fjöl­skyld­unnar 23. júní 2022. Það dugði þó til að hann næði í hel­íumblöðru með ban­vænum afleið­ingum.

Eldri systir hans, Kaitlin, hefur nú stigið fram og segir að jafn­vel einn sog úr hel­íumblöðru geti verið lífs­hættu­legt, þar sem gasið ryður súr­efni úr lung­unum og sviptir lífs­nauð­syn­leg líf­færi súr­efni.

Dagurinn hafði ann­ars verið venju­legur og ánægju­legur. Fjöl­skyldan naut sól­ríks sum­ar­dags í garð­inum, þar sem Karlton lék sér meðal ann­ars í lít­illi sund­laug. Þegar hann kom upp úr vatn­inu bað hann um knús, en móðir hans og systir voru upp­teknar við að gefa tví­bura­börnum að borða.

Karlton fór þá inn á bað­her­bergi, og það var í síð­asta sinn sem fjöl­skyldan heyrði hann tala.

Þegar hann hafði verið óvenju lengi inni fór móðir hans að athuga með hann. Þar blasti við hræði­leg sjón. „Þegar ég kom inn var mamma með hann í fang­inu, líf­lausan. Hann var þegar dáinn,“ segir Kaitlin í sam­tali við Mirror.

Dreng­ur­inn fannst liggj­andi á gólf­inu með hel­íumblöðru yfir and­lit­inu. Móðir hans hafði reynt að gera blöðr­una örugg­ari með því að klippa snúr­una af, en vissi ekki af hætt­unni sem hel­íum getur valdið.

Kaitlin hóf end­ur­lífgun og kall­aði á sjúkra­bíl, en þrátt fyrir við­brögð nágranna og sjúkra­flutn­inga­manna var ástand Karltons mjög alvar­legt. Hann var fluttur á sjúkra­hús þar sem hann barð­ist fyrir lífi sínu í sex daga.

Að lokum urðu læknar að til­kynna fjöl­skyld­unni að heilaskað­inn væri óaft­ur­kræfur og ekk­ert væri hægt að gera. Fjöl­skyldan tók þá þá erf­iðu ákvörðun að slökkva á tækjum sem héldu honum á lífi.

Kaitlin segir miss­inn enn óbæri­legan og að fjöl­skyldan berj­ist enn við sorg­ina. Hún vill þó að saga bróður síns verði öðrum við­vörun.

„Þetta er of mikil áhætta. Þú ert að leika þér að lífi og dauða,“ segir hún og bætir við að margir geri sér ekki grein fyrir hversu hættu­legt það er að anda að sér hel­íumi.

Hún seg­ist hafa heyrt um fleiri til­vik þar sem börn hafa lát­ist af sömu ástæðu og vill að for­eldrar verði með­vit­aðir um hætt­una áður en það er of seint.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Heimur

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Skoska lög­reglan rann­sakar tengsl Andrews við Epstein

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta