Kristrún Frostadóttir
„Það verður að virða fullveldi og alþjóðalög“
Kristrún Frostadóttir
Menning

Martröð í Mið­húsa­skógi

Fólk

Hvenær verður daður að fram­hjá­haldi?

Innlent

Hekla inn­kallar til­tekna Audi-, Volkswagen- og Skoda-bíla

Heimur

Verkfall á Kanarí­eyjum getur raskað ferðum til og frá flug­völlum

Heimur

Ísra­elskir ferða­menn gagn­rýndir eftir að leið­sögu­manni var ýtt í sjó­inn

Peningar

Segir hluta­fjár­út­boð Bláa lóns­ins ótíma­bært vegna eldsum­brota

Peningar

Tveir þekktir skyndi­bita­staðir inn­sigl­aðir að beiðni Skatts­ins

Heimur

Katta­eig­endur sér­stak­lega varaðir við hættu­legri fuglaflensu

Innlent

Varað við neyslu á wasabi-hrískexi

Heimur

Kim Kar­dashian neyð­ist til að end­ur­greiða við­skipta­vinum

Drukkinn faðir dæmdur fyrir að ráðast á börn sín

Börnin reyndu að stía for­eldrum sínum í sundur.

Héraðsdómur Vesturlands er í Borgarnesi
Hér­aðs­dómur Vest­ur­lands er í Borg­ar­nesi Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint. Mynd: Wikipedia/Chensiyuan

Karl­maður hefur verið dæmdur í fang­elsi fyrir lík­ams­árás en málið var tekið fyrir í Hér­aðs­dómi Vest­ur­lands.

Hann var ákærður fyrir brot í nánu sam­bandi og gegn barna­vernd­ar­lögum með því að hafa árið 2025 veist að syni sínum og tekið með báðum höndum um háls hans og höfuð og hrist hann til og með þessu ógnað lífi, heilsu eða vel­ferð hans og með þessu jafn­framt sýnt af sér ósið­legt og rudda­legt athæfi gagn­vart drengnum.

Faðirinn var einnig ákærður fyrir að hafa veist að dóttur sinni og tekið um hendur hennar, haldið þeim og kreist þær og með þessu ógnað lífi, heilsu eða vel­ferð hennar og með þessu jafn­framt sýnt af sér ósið­legt og rudda­legt athæfi gagn­vart stúlkunni.

Samkvæmt dómnum var mað­ur­inn drukk­inn þegar atvikið átti sér stað. Hann við­ur­kenndi að hafa farið yfir strikið, eins og það er orðað í dómnum, en var ósáttur við þá full­yrð­ingu að hann hafi hrist börnin. Það myndi sjást á börn­unum ef hann myndi gera slíkt.

Hann seg­ist hafa lent í úti­stöðum við þáver­andi sam­býl­is­konu sína og börnin reynt að stía þeim í sundur.

Samkvæmt dómum hefur hann áður verið dæmdur fyrir að brjóta gegn börnum sínum og sam­býl­is­konu. Einnig hefur hann verið dæmdur fyrir vopna­laga­brot.

„Brotin eru að mati dóms­ins alvar­leg og ófyr­ir­leitin gagn­vart börnum ákærða inni á heim­ili þeirra sem á að vera þeim griða­staður. Að auki verður að horfa til þess að brotin eru framin, og skil­orð þar með rofið, ein­ungis rétt um þremur mán­uðum eftir að fyrri dómur féll.“

Pabbinn var dæmdur í þriggja mán­aða fang­elsi en sá dómur er skil­orðs­bund­inn til tveggja ára. Þá þarf hann að greiða syni sínum 400 þús­und krónur auk vaxta og dóttur sinni 300 þús­und krónur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Sendi­herra Rúss­lands í Banda­ríkj­unum lést skyndi­lega

Alexander Darchiev hafði aðeins gegnt embættinu frá því snemma árs 2025.
Heimur

HPV-bólu­setn­ingar taldar hafa komið í veg fyrir um 200 dauðs­föll í Englandi

Heimur

Rétt­ar­höld hafin vegna ban­vænnar hnífa­árásar á sextán ára stúlku

Landið

Andri Snær rifjar upp fórn­irnar sem fylgdu Kára­hnjúka­virkjun

Heimur

Leik­ar­inn Stacy Keach lát­inn 85 ára að aldri

Innlent

Innlent

Þarf að greiða 834 þús­und eftir tap í máli gegn gisti­stað

Heitavatnsleysið í kjölfar eldgossins í febrúar 2024 var að mati dómsins óviðráðanlegt atvik sem gat leyst gististaðinn undan ábyrgð.
Innlent

Mat­vöru­verð hækkar þrátt fyrir boð­aðar verð­lækk­anir

Innlent

Inn­köllun vegna eld­hættu í þremur teg­undum Volkswagen-raf­bíla

Innlent

Öskurapi í Vest­ur­bænum fannst ekki þrátt fyrir leit

Innlent

Krefjast opin­berrar afsök­un­ar­beiðni frá Morg­un­blað­inu

Innlent

Sonurinn áfram í gæslu­varð­haldi vegna mann­dráps í Breið­holti