Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

„Vottar Jehóva reyndu að drepa mig”

Mikael Torfason elskar Banda­ríkin og segir Sölva Tryggva allt um það í nýjasta hlað­varps­þætti Sölva.

„Vottar Jehóva reyndu að drepa mig”
Mikael Torfason Mikael Torfason líður vel í Banda­ríkj­unum Mynd: YouTube-skjáskot

Mikael Torfason rit­höf­undur seg­ist elska Banda­ríkin og sér ekki fyrir sér að flytja aftur til Íslands. Mikael, sem er nýjasti gest­ur­inn í podcasti Sölva Tryggva­sonar, segir mynd­ina sem fólk hefur af Banda­ríkj­unum oft mjög skakka og þar hafi hann fundið hluti sem finn­ist hvergi ann­ars staðar:

„Mér finnst Banda­ríkin almennt vera ynd­is­leg og kraft­ur­inn og orkan eru úti um allt. Ég elska Banda­ríkin. Við fáum í gegnum fjöl­miðla mikið af nei­kvæðum hlutum frá Banda­ríkj­unum, en það heyr­ist minna um hitt. Fólkið í Banda­ríkj­unum er almennt mjög hjálp­legt og gott og það er eitt­hvað í menn­ing­unni sem kallar á sjálfs­á­byrgð. Fólk horfir á vanda­mál í sam­fé­lag­inu og hugsar strax: „Hvað get ég gert í því?”. Ekki bara að kerfið eigi að laga alla hluti eins og vill vera við­kvæðið hérna heima og í Evrópu. Umræðan á Íslandi fer alltaf þangað að það sé allt kerf­inu að kenna og stjórn­mála­menn og kerfið eigi að laga hluti. Það er eitt­hvað fal­legt við að fólk hugsi það frekar þannig að það sé á þeirra eigin ábyrgð að breyta hlutum. Maður hittir varla mann­eskju í Banda­ríkj­unum sem er ekki í sjálf­boða­starfi eða gefur til góð­gerða­mála. Það er ein­hver frum­kvöðla­kraftur sem svífur yfir Banda­ríkj­unum og ef það er eitt­hvað vanda­mál, þá finnur fólk lausnir á því.”

Mikael æfir alla morgna eldsnemma með öðrum karl­mönnum sem eru í grúppu sem kall­ast F3, eða „Fitness, Fellowship og Faith.”:

„Ég æfi með félögum mínum yfir­leitt á hverjum ein­asta morgni klukkan 5 eða 5:30. Við hitt­umst á bíla­stæðum eða görðum og gerum „burpees”, arm­beygjur og fleiri æfingar í klukku­tíma á hverjum morgni, sjö daga vik­unnar. Þessi karla­grúppa er starf­rækt um allan heim og það eru engin gjöld til að vera með og þetta er í alla staði frá­bær félags­skapur. Það er eitt­hvað mjög fal­legt við þetta og lík­ams­rækt á að vera eitt­hvað sem allir geta gert án þess að þurfa að borga fyrir það. Það að bæta svo við trú og tján­ingu á meðal karl­manna inn í þetta gerir þetta svo enn betra. Þegar æfingin er búin erum við með það sem kall­ast „Circle of trust”, þar sem menn deila með hinum hvað er að ger­ast í lífi þeirra. Að bæta við þessum and­lega stuðn­ingi gerir þetta að frá­bærri blöndu. Það hefur gert mjög mikið fyrir mig að vera í þessum félags­skap og í gegnum hann hef ég eign­ast mjög góða vini.”

Mikael segir trú­rækn­ina tals­vert meiri í Banda­ríkj­unum en á Íslandi og styttra í guð, sem hann seg­ist kunna mikið að meta á þessum tíma­punkti í lífi sínu:

„Ég hef alltaf verið leit­andi og hef gert alls konar hluti í gegnum tíð­ina. Ég hef gert grín að því að ég hafi verið eins og fólkið sem er alltaf að drekka kakó og reyna að finna sjálft sig. Mér var rosa­lega upp­sigað við krist­in­dóm­inn þegar ég var yngri, en var samt alltaf leit­andi. Ég fór meira að segja á viku­langt „silent retr­eat” þegar ég varð fer­tugur. Á þessum tíma var ég rit­stjóri Frétta­blaðs­ins, aðal­rit­stjóri 365 og yfir frétta­stofu Stöðvar 2 og Bylgj­unnar. Svo fór ég bara beint í djúpu laug­ina alveg kaldur og inn í viku­langa þögn þó að ég hafi ekki hug­leitt í svo mikið sem 10 mín­útur fyrir þetta. Þarna var ég í algjörri þögn og hug­leiddi með öðrum í sjö sól­ar­hringa. Þetta hafði mikil áhrif á mig og ég man að eftir 4 daga gat ég farið úr lík­am­anum og baðað mig í hvítu ljósi. Það er kannski ekki til­viljun að ég var rek­inn aðeins 2 mán­uðum eftir að ég kom aftur heim. Ég var breyttur maður eftir þetta og tengdi mikið við búdd­isma. Brjál­æðið í að reka fjöl­miðla á Íslandi pass­aði kannski ekki sér­stak­lega mikið við búdd­isma,” segir Mikael, sem var lengi í upp­reisn gagn­vart trú, sem er ekki skrýtið miðað við sögu hans:

„Vottar Jehóva reyndu í raun að drepa mig. Ég fædd­ist veikur og for­eldrar mínir voru með mik­inn metnað fyrir mína hönd og vildu að ég myndi lifa að eilífu í para­dís. En sam­kvæmt þessarri trú myndi það ekki ger­ast ef ég fengi við­eig­andi lækn­is­með­ferð. Þannig að þau voru að berj­ast við lækn­ana og það var í raun læknir sem bjarg­aði lífi mínu með því að gefa mér blóð á næt­urna þegar þau vissu ekki af. En þau voru að biðja bænir og héldu að þau hefðu verið bæn­heyrð á meðan raunin var sú að lækn­ir­inn var að dæla í mig blóði á næt­urna og bjarg­aði mér þannig. Þannig að það er kannski ekki skrýtið að ég hafi séð trú­ar­brögð sem upp­haf alls ills lengi vel. Svo fór ég að sjá trú­ar­brögð í stærra sam­hengi fór reiðin að minnka hjá mér. Trú­ar­brögð bjuggu til fyrstu spít­al­ana, skól­ana og bjuggu í raun til Vest­ur­lönd eins og við þekkjum þau. Þannig að eftir því sem árin hafa liðið hef ég orðið sífellt þakk­lát­ari fyrir þau gildi sem ég ólst upp við í Voga­skóla og ég hef mýkst mikið gagn­vart kristni­dóm­inum.”

Mikael segir það hafa verið frá­bært fyrir sig á sínum tíma að hafa fengið ítrekað nei frá launa­sjóði rit­höf­unda, þó að honum hafi ekki endi­lega liðið þannig strax:

„Það góða við að hafa verið rit­höf­undur á Íslandi er að maður lærir að þurfa að afkasta miklu til að sjá fyrir sér. Það kom til dæmis ár þar sem ég skrif­aði og gaf út bók, skrif­aði leik­rit fyrir Borg­ar­leik­húsið, sjón­varps­s­eríu fyrir RÚV, tvær heim­ilda­ser­íur fyrir Rás eitt, leik­rit fyrir Osló og leik­rit fyrir Þýska­land, bara til að ná endum saman. Það að þurfa að gera þetta allt bara til að geta borgað af hús­næð­is­lán­inu kennir manni vinnu­semi og að eiga við álag. En það er samt bara stað­reynd að þú munt lepja dauð­ann úr skel ef þú ert bara að skrifa á Íslandi. Þannig að ég sé það svo­leiðis að það besta sem hafi komið fyrir mig hafi verið að fá ítrekað nei frá Launa­sjóðnum. Ég man þegar ég fann hvað það var mikið frelsi að þurfa ekki að treysta á að vera rit­höf­undur á Íslandi.”

Hægt er að nálg­ast við­talið við Mikael og öll við­töl og pod­köst Sölva Tryggva­sonar inni á sol­vi­tryggva.is

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina