Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fornverkaskólinn í Skagafirði hlýtur virtustu minjaverndarverðlaun Evrópu

„Við getum kannski ekki kosið Ísland í Eurovision í ár, en í þetta skiptið getum við heldur betur kosið Ísland og torf­húsa­arf­inn okkar í Evrópsku minja­vernd­ar­verð­laun­unum – áfram Ísland!“

Fornverkaskólinn í Skagafirði hlýtur virtustu minjaverndarverðlaun Evrópu

Forn­verka­skól­inn í Skaga­firði hefur hlotið Evrópsku minja­vernd­ar­verð­launin / Europa Nostra Awards 2026, sem telj­ast virt­ustu við­ur­kenn­ingar sinnar teg­undar í Evrópu.

Verð­launin eru veitt af Fram­kvæmda­stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins og Europa Nostra með stuðn­ingi úr Menn­ing­ar­á­ætlun ESB. Að þessu sinni fengu 30 verk­efni frá 18 löndum við­ur­kenn­ingu, en alls bár­ust 261 umsókn frá 40 löndum.

Vernda torfhúsaarfinn

Forn­verka­skól­inn er rek­inn af Byggða­safn Skag­firð­inga og var stofn­aður árið 2006 með það mark­mið að varð­veita hefð­bundnar íslenskar bygg­ing­ar­að­ferðir, sér­stak­lega torf­húsa­gerð.

Með verk­legri kennslu, rann­sóknum og end­ur­bygg­ingu frið­aðra húsa vinnur skól­inn að því að halda þess­ari sér­stöku hand­verks­hefð lif­andi og miðla henni til kom­andi kyn­slóða.

„Við erum gríð­ar­lega stolt af þess­ari við­ur­kenn­ingu á starfi síð­ustu tveggja ára­tuga. Við vonum að hún varpi ljósi á torf­húsa­arf­inn, sem er í hættu þar sem sífellt færri kunna hand­verkið,“ segir Berglind Þor­steins­dóttir, safn­stjóri Byggða­safns Skag­firð­inga.

Hundruð nemenda hafa tekið þátt

Frá árinu 2007 hefur skól­inn staðið fyrir um 50 nám­skeiðum með þátt­töku um 500 nem­enda, bæði frá Íslandi og erlendis. Kennslan hefur að stórum hluta farið fram á Tyrf­ings­stöðum í Skaga­firði, þar sem sögu­leg hús hafa verið end­ur­byggð og nýtt sem lif­andi kennslu­um­hverfi.

Í umsögn dóm­nefndar segir:

„Verk­efnið tekst á við hnignun þekk­ingar á hefð­bundnu bygg­ing­ar­hand­verki í Evrópu með því að miðla því áfram á lif­andi og áþreif­an­legan hátt. Það byggir á öfl­ugu kennslu­lík­ani um flutn­ing þekk­ingar á milli kyn­slóða sem tryggir bæði varð­veislu hús­anna sjálfra og þeirrar þekk­ingar sem þarf til að halda þeim við. Verk­efnið stendur á traustum grunni vand­aðs hand­verks og nýtur stuðn­ings af alþjóð­legu og fræði­legu sam­starfi, og er góð fyr­ir­mynd fyrir varð­veislu torf­húsa­arfs­ins.“

Hvetja landsmenn til að kjósa

Verð­launin verða afhent við hátíð­lega athöfn í Nikósíu á Kýpur 28. maí. Almenn­ingur getur jafn­framt kosið sitt upp­á­halds­verk­efni í net­kosn­ingu um „Public Choice Award“, þar sem sig­ur­veg­ari hlýtur 10.000 evrur.

„Við getum kannski ekki kosið Ísland í Eurovision í ár, en í þetta skiptið getum við heldur betur kosið Ísland og torf­húsa­arf­inn okkar í Evrópsku minja­vernd­ar­verð­laun­unum – áfram Ísland!“ segir Berglind og bendir á að hægt sé að greiða atkvæði til 12. maí á vef­síðu Europa Nostra.

Þetta er í annað sinn sem íslenskt verk­efni hlýtur þessi verð­laun frá því þau voru fyrst veitt árið 2002. Áður hlaut Franski spít­al­inn á Fáskrúðs­firði við­ur­kenn­ing­una árið 2016.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Landið

Landið

Límdu yfir hraða­mynda­vél lög­reglu

„Það er svo sannarlega þörf á hraðamælingum“
Landið

Forbes vekur athygli á nýju ferða­manna­gjaldi á Íslandi

Landið

Breskur stór­mið­ill velur fimm stór­kost­leg­ustu fossa Íslands

Landið

Vilja vernda nátt­úruperlu í Skriðdal

Landið

Skortur á leik­skóla­plássum tefur end­ur­komu starfs­fólks HSA

Landið

Björg­un­ar­bún­aður og bætt öryggi til skoð­unar við Stuðla­gil