Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Meta getur nú lesið einkaskilaboð notenda Instagram

Fyr­ir­tækið hætti að bjóða upp á enda-til-enda dulkóðun í gær.

Meta getur nú lesið einkaskilaboð notenda Instagram
Mark Zuckerberg, fram­kvæmd­ar­stjóri META Zuckerberg er afar umdeildur millj­arða­mær­ingur Mynd: WALLY SKALIJ / GETTY IMAGES VIA AFP

Notendur Instagram geta ekki lengur sent svokölluð ofurör­ugg einka­skila­boð eftir að fyr­ir­tækið ákvað að slökkva á enda-til-enda dulkóðun (E2EE) í skila­boða­kerfi apps­ins um allan heim, í gær. Þetta kemur fram í frétt BBC.

Ákvörð­unin markar mikla stefnu­breyt­ingu hjá móð­ur­fé­lag­inu Meta sem hafði áður lýst tækn­inni sem gull­staðli í per­sónu­vernd á net­inu.

Enda-til-enda dulkóðun er talin örugg­asta form net­sam­skipta þar sem ein­ungis send­andi og mót­tak­andi geta lesið skila­boðin. Gagn­rýnendur hafa þó lengi haldið því fram að tæknin geri yfir­völdum erf­ið­ara fyrir að stöðva dreif­ingu skað­legs eða ólög­legs efnis á net­inu.

Með breyt­ing­unni mun Instagram nú geta nálg­ast inni­hald einka­skila­boða not­enda, þar á meðal myndir, mynd­bönd og hljóð­skila­boð.

Meta hafði árið 2019 lofað að inn­leiða enda-til-enda dulkóðun á sam­skipta­kerfi Facebook Messen­ger og Instagram undir slag­orð­inu „fram­tíðin er prí­vat“. Kerfið var tekið í notkun á Messen­ger árið 2023 og síðar boðið sem val­kostur á Instagram með það að mark­miði að gera það sjálf­gefið síðar meir.

Nú hefur fyr­ir­tækið hins vegar hætt við þá áætlun eftir sjö ára þró­un­ar­vinnu. Fram­vegis verður aðeins boðið upp á hefð­bundna dulkóðun á Instagram, sam­bæri­lega þeirri sem notuð er í þjón­ustum á borð við Gmail.

Skiptar skoðanir

Barna­vernd­ar­sam­tök hafa fagnað ákvörð­un­inni. NSPCC, sem hefur lengi varað við áhættu tengdri enda-til-enda dulkóðun, segir tækn­ina geta auð­veldað ger­endum að fela mis­notkun barna.

Per­sónu­vernd­ar­sinnar hafa hins vegar gagn­rýnt breyt­ing­una harð­lega. Big Brother Watch segir ákvörð­un­ina vera skref aftur á bak og ótt­ast að Meta sé að gefa eftir fyrir þrýst­ingi stjórn­valda.

Meta til­kynnti breyt­ing­una ekki opin­ber­lega heldur upp­færði skil­mála Instagram hljóð­lega í mars. Þar kemur fram að enda-til-enda dulkóðuð skila­boð verði ekki lengur studd eftir 8. maí 2026.

Fyr­ir­tækið segir ástæð­una vera þá að of fáir not­endur hafi kosið að virkja eig­in­leik­ann. Sér­fræð­ingar benda þó á að notkun val­frjálsra örygg­is­eig­in­leika sé oft lítil þar sem not­endur þurfi sjálfir að virkja þá sér­stak­lega.

Sumir sér­fræð­ingar telja einnig að ákvörð­unin teng­ist auk­inni áherslu Meta á þróun gervi­greindar. Victoria Baines, pró­fessor í upp­lýs­inga­tækni við Gresham College, segir sam­skipta­gögn not­enda geta verið afar verð­mæt við þjálfun gervi­greind­ar­lík­ana.

Meta hefur áður sagt að einka­skila­boð á Instagram séu ekki notuð til að þjálfa gervi­greind fyr­ir­tæk­is­ins.

Á meðan halda mörg önnur skila­boða­for­rit áfram að nota enda-til-enda dulkóðun sjálf­gefið, þar á meðal Signal, WhatsApp, iMessage frá Apple og Google Messages frá Google.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Tækið er sagt geta borið fjóra fullorðna einstaklinga
Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi