Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Aldamótabarn alin upp undir regnboga

Silja Sóley Birg­is­dóttir reisti sig upp úr félags­kvíða og minni­mátt­ar­kennd og stendur nú í stafni fyrir Sós­í­alista­flokk­inn í Reykja­vík. Hún ólst upp við tón­list, fjöl­breyti­leika og póli­tíska rétt­læt­is­kennd. Reynslan úr skóla­kerf­inu og upp­vöxtur í lit­ríkri fjöl­skyldu mót­aði sýn hennar á sam­fé­lagið, sem hún segir frá í Mann­lífs­við­tali.

Aldamótabarn alin upp undir regnboga
Silja Sóley Reis upp úr minni­mátt­ar­kennd og beitir sér í stjórn­málum. Mynd: Golli

Silja Sóley Birg­is­dóttir, odd­viti sós­í­alista í Reykja­vík, segir mik­il­vægt að kerfið leggi áherslu á mannúð og skiln­ing. Þegar kemur að áherslu­málum Sós­í­alista­flokks­ins segir hún að skóla­málin standi sér næst.

Hún er með BS-próf í sál­fræði og stefnir á að fara í fram­halds­nám í skóla­sál­fræði síðar meir en hefur frestað þeim áformum í bili í þágu stjórn­mál­anna. Hún hefur bæði unnið á leik­skóla og verið stuðn­ings­full­trúi í grunn­skóla auk þess sem hún hefur sinnt stuðn­ings­kennslu í fram­halds­skóla.

Silja Sóley býr ásamt kærasta sínum heima hjá ömmu hans og afa og forð­ast þau leigu­mark­að­inn til að fest­ast ekki þar. Sós­í­alista­flokk­ur­inn leggur áherslu á að stofnað verði Bygg­inga­fé­lag Reykja­víkur og að fram­boð af ódýrum íbúðum verði stór­aukið.

Silja Sóley er alin upp í regn­boga­fjöl­skyldu. Hún er dóttir Birgis Þór­ar­ins­sonar, Bigga veiru í GusGus, sem hefur vakið athygli fyrir kven­legan klæða­burð. Hún minn­ist þess að hafa stundum fund­ist það erfitt þegar hún var yngri. Eftir því sem hún elt­ist telur hún hins vegar að þetta hafi veitt sér dýr­mæta sýn á fjöl­breyti­leika mann­lífs­ins.

„Ég held að það sé mik­il­vægt að fjöl­breyti­leiki sam­fé­lags­ins sé sýni­legur og að við fögnum honum.“

Silja Sóley seg­ist alltaf hafa verið mjög vinstrisinnuð.

„Mér finnst engin lógík í að vera neitt annað. Fólkið á að vera grunn­ur­inn. Stjórn­völd eiga að vinna mark­visst að því að skapa betra sam­fé­lag fyrir alla og tryggja öllum bak­land af því að það er fullt af fólki sem hefur ekki sterkt bak­land og þá þarf kerfið að vera það. Og það er mik­il­vægt að kerfið leggi áherslu á mannúð og skiln­ing.“

Barðist við minnimáttarkennd

Hún seg­ist hafa færst lengra og lengra til vinstri og skráð sig snemma í Sós­í­alista­flokk­inn. Hún hafi þó ekki byrjað að taka virkan þátt í flokks­starf­inu fyrr en í fyrra­vor.

„Ég barð­ist lengi við ákveðna minni­mátt­ar­kennd. Ég myndi ekki segja að ég berj­ist við hana núna en síð­ustu ár hafa verið mjög góð. En varð­andi póli­tík þá leið mér alltaf eins og það væri svo mik­ill veggur sem kæmi í veg fyrir að maður gæti byrjað að hafa áhrif og að þetta væri ekki eitt­hvað sem væri aðgengi­legt.“

Það hafi í raun ekki verið fyrr en kær­asti hennar, Halldór Ísak Ólafsson, sem er í átt­unda sæti á list­anum, byrj­aði að taka þátt aðeins á undan henni, að hún sá að hægt væri að hafa jákvæð áhrif. Þá hafi hún byrjað að taka virkan þátt í flokks­starf­inu.

„Við erum að reyna að byggja eitt­hvað upp sem getur haft jákvæð áhrif á sam­fé­lagið. Margt ungt fólk tekur ekki virkan þátt í póli­tík sem er ákveðið vanda­mál og ég held að það sé af því að því líður eins og það geti ekki haft áhrif. Ég hef hins vegar fundið að ef maður hefur áhug­ann og vilj­ann þá er svo sann­ar­lega hægt að hafa áhrif.“

Byrjaði í flokknum í fyrravor

Silja Sóley segir að eftir að hún fór að taka virkan þátt í starfi flokks­ins í fyrra­vor hafi hún verið dug­leg að mæta á fundi, tala, gagn­rýna og bæta í umræð­una, bæði hjá ung­liða­hreyf­ing­unni og hjá flokknum sjálfum.

„Ég reyndi líka mikið að kynn­ast fólki og læra. Þegar upp­still­ing­ar­ferlið fór í gang ætl­aði ég ekki að sækja um, talandi um að manni líði eins og maður geti ekki gert hlut­ina. Ég fékk hins vegar hvatn­ingu frá þó nokkrum félögum og þau höfðu séð eitt­hvað sem ég sá ekki en sem ég er byrjuð að sjá núna sem er að ég gæti verið góður fram­bjóð­andi.“

Hún gaf því kost á sér og seg­ist hafa treyst upp­still­ing­ar­nefnd­inni til að finna sér stað. Hún fór í gegnum ferlið, öll við­tölin og samdi ræður, og segir upp­still­ing­ar­nefnd­ina hafa unnið hörðum höndum.

„Síðan fékk ég boð um þetta sæti og það kom mér veru­lega á óvart miðað við hvað ég hafði verið virk í flokknum í stuttan tíma. En ég stóð mig bara mjög vel og ég tel að ég hafi sannað mitt gildi í kosn­inga­bar­átt­unni.“

Silja Sóley segir sögu sína að ein­hverju leyti tengj­ast því sem hún kallar „unknown potential“.

„Ég held ég hafi alltaf verið aðeins hlé­dræg­ari og metið mig aðeins minna en ég gæti. Ef ég verð borg­ar­full­trúi þá á það ekki fyrst og fremst að vera um mig. Þetta á að vera um hvað við erum að gera og fyrir hvern.“

Ekki nógu góður skilningur

Silja Sóley segir að þegar kemur að áherslu­málum flokks­ins standi skóla­málin sér næst.

„Það er eitt­hvað sem ég hef kynnst hvað best og mér finnst vera mik­il­vægt að við komum á betra fyr­ir­komu­lagi varð­andi starfs­að­stæður og stuðn­ing í skóla­kerf­inu, bæði fyrir börn og starfs­fólk.“

Silja Sóley vann sem stuðn­ings­full­trúi í grunn­skóla frá því í fyrra­haust og þar til hún fór á fullt í kosn­inga­bar­átt­una. Hún seg­ist hafa verið mjög heppin þar sem hún, sem stuðn­ings­full­trúi, fékk und­ir­bún­ings­tíma sem sé ekki sjálf­sagt.

„Ég veit að kenn­arar eru einmitt að berj­ast við kerfið til að fá stuðn­ing­inn inn. Það er fullt af frá­bæru fólki með frá­bæra þekk­ingu - svo sem sál­fræð­ingar, tal­meina­fræð­ingar og atferl­is­fræð­ingar - sem hefur unnið með börnum og veit ákveðna hluti um hvað virkar og er með ráð og leið­bein­ingar en er oft dálítið fjar­lægt skóla­starf­inu.“

Hún segir sam­vinn­una ekki jafn­mikla og þurfi. Ef stuðn­ing þurfi inn í bekk, hvort sem einn nem­andi þurfi stuðn­ing eða bekk­ur­inn í heild, þurfi önnur mann­eskja að vera inni. Oft sé eng­inn und­ir­bún­ings­tími fyrir stuðn­ings­full­trúa og því geti þeir ekki til­einkað sér námið eða reynt að fræð­ast meira.

„Við þurfum að nýta betur þessa frá­bæru fag­þekk­ingu sem við erum með í kerf­inu þannig að það sé hægt að vera með miklu rík­ara sam­starf og þannig hægt að koma miklu betur til móts við börnin, sér­stak­lega ef börn eru með námsörð­ug­leika eða ef þau sýna erf­iða hegðun.“

Silja Sóley segir fullt af fólki vita hvernig hægt væri að bregð­ast betur við en því sé kannski ekki miðlað áfram eða leið­beint hvernig það sé í fram­kvæmd.

„Leið­sögnin þarf að vera á staðnum og það þarf að vera virkt sam­starf milli kenn­ara og þeirra sem sinna stuðn­ings­þjón­ust­unni.“

Kerfið getur brotið börn

Annar bróðir Sóleyjar hafi til dæmis haft allt aðra reynslu af skóla­kerf­inu en hún sjálf, að hennar sögn. Hann hafi sýnt mjög erf­iða hegðun á tíma­bili og ekki alltaf mætt miklum skiln­ingi.

„Ég sá seinna meir hvað það var mik­ill munur á okkar reynslu af því að við fylgd­umst að í gegnum allan skól­ann. Það er svo skrýtið að tala um þetta vegna þess að börn geta ekki alltaf beint haft stjórn á sinni eigin hegðun en hann var oft að lenda upp á kant við kenn­ar­ana. Hann er bráð­klár og ótrú­lega snjall og átti auð­velt með námið sjálft.“

Hún seg­ist hafa séð hvað kerfið var öðru­vísi við hann en hana. Hann hefði getað átt mun ánægju­legri æsku og skóla­göngu ef rík­ari skiln­ingur og stuðn­ingur hefði verið inni í kerf­inu.

„Svona hlutir geta virki­lega brotið börn og haft grafal­var­legar afleið­ingar.“

Silja Sóley seg­ist einnig hafa séð í starfi sínu í skóla­kerf­inu að ekki sé nógu góður skiln­ingur á því hvernig börn eru og hvernig koma eigi til móts við þau þegar þau sýna erf­iða hegðun eða erf­iðar til­finn­ingar.

„Þau ann­að­hvort vita ekki hvað þau eiga að gera eða kunna ekki og það þarf að grípa miklu betur utan um þau. Ég hef séð hvað raun­veru­legur stuðn­ingur og ein­stak­ling­smiðuð nálgun getur munað miklu.“

Hún nefnir að hún hafi eftir stúd­ents­próf aðstoðað nem­anda í fram­halds­skóla sem hafði ekki náð stærð­fræði 200 þrátt fyrir nokkrar til­raunir. Hann hafi endað á að ná góðum tökum á efn­inu og klárað stærð­fræði 500.

Gífurleg álagning

Sós­í­alista­flokk­ur­inn leggur áherslu á að stofnað verði Bygg­inga­fé­lag Reykja­víkur og að fram­boð af ódýrum íbúðum verði stór­aukið.

„Hús­næð­is­mark­að­ur­inn eins og hann er í dag bæði hvað varðar leigu­hús­næði og eigið hús­næði er orðið allt of dýr fyrir marga. Ég sem ung mann­eskja hef forð­ast leigu­mark­að­inn eins og heitan eld og við búum hjá ömmu og afa kærasta míns og erum mjög lánsöm.“

Hún segir mjög erfitt fyrir fólk sem fer út á leigu­mark­að­inn að kom­ast út af honum. Þá sé erfitt að safna fyrir kaupum og það taki mjög langan tíma, mun lengri tíma en áður.

„Grunn­ur­inn að lífi fólks er að vera með öruggt hús­næði; það er eig­in­lega ekki hægt að gera neitt ef fólk er ekki með öruggt hús­næði.“

Þá leggur flokk­ur­inn áherslu á að allar lóðir fari til óhagn­að­ar­drif­inna og félags­legra verk­efna.

„Auðvitað kostar að byggja en það ætti ekki að vera þessi mikla hagn­að­ar­krafa á hús­næð­is­mark­aðnum. Það er gíf­ur­leg álagn­ing sett ofan á hús­næði sem gerir það að verkum að þetta er orðið mjög dýrt og líka á leigu­mark­aðnum.“

Þegar fólk kaupi sér hús­næði fari það í gegnum greiðslu­mat og megi aðeins verja ákveðnum hluta ráð­stöf­un­ar­tekna í að greiða lánið mán­að­ar­lega. Á leigu­mark­aðnum sé ekk­ert slíkt.

„Mörg leigu­fyr­ir­tæki græða því­líkt á fólki og margir eru að verja stórum hluta af sínum ráð­stöf­un­ar­tekjum, stundum meiri­hluta þeirra, í leigu. Fólk finnur fyrir fram­færslu­ótta og á miklu erf­ið­ara með að ná endum saman.“

Hún segir að ef auka eigi jöfnuð í sam­fé­lag­inu verði hús­næð­is­mark­að­ur­inn að vera á óhagn­að­ar­drifnum for­sendum.

„Það bara verður.“

Verði óhagnaðardrifin

Aðspurð um borg­ar­lín­una segir Silja Sóley að Sós­í­alista­flokk­ur­inn sé hlynntur öllum betrum­bótum í almenn­ings­sam­göngu­kerf­inu og að borg­ar­línan sé vissu­lega hluti af þeirri lausn.

„Það er mik­il­vægt að strætó nái að greiða frá umferð­inni - hann sé ekki bund­inn við venju­legu umferð­ar­tepp­una af því að þetta er líka einmitt að fólk kom­ist auð­veld­lega í og úr vinnu. Borg­ar­línan mun ekki leysa allan sam­göngu­mát­ann og það þarf að bæta teng­ingar á milli hverfa miklu betur.“

Hún segir mjög erfitt að ferð­ast á milli hverfa í Reykja­vík og að laga þurfi það sem er umfram borg­ar­línu­á­ætl­un­ina.

„Við viljum tryggja að allur rekstur varð­andi borg­ar­lín­una sé óhagn­að­ar­drif­inn. Við viljum ekki að þetta kerfi, eins og hægt og rólega er að ger­ast með strætó­kerfið, verði einka­vætt af því að við borg­ar­búar erum að borga fyrir þessar fram­kvæmdir sem borg­ar­línan verður og við ættum að njóta góðs af því.“

Silja Sóley ferð­ast um á eigin bíl og segir það bæði vegna þess að hún verði svo bíl­veik í stræt­is­vögnum og vegna þess að ekki sé mik­ill sparn­aður fólg­inn í því að nota strætó miðað við hversu tíma­frekt það er. Of dýrt sé í strætó, of langt á milli vagna og teng­ingar milli hverfa séu of lélegar.

Pabbi í GusGus

Hver er odd­viti Sós­í­alista í Reykja­vík?

„Ég fædd­ist árið 2000 þannig að ég er alda­móta­barn,“ segir Silja Sóley. „Fyrstu sjö ár ævi minnar bjó ég í mið­bænum, við Bald­urs­götu. Við fjöl­skyldan vorum mjög dug­leg að fara í Hljóm­skála­garð­inn og á Klambratún og svo var það Hjarta­garð­ur­inn niðri í bæ.“

Hún var á leik­skól­anum Lauf­ás­borg sem hún segir vera í fal­legri bygg­ingu.

„Ég sagði alltaf að ég væri í skóla í kast­ala af því að utan­húss minnir bygg­ingin á kast­ala. Ég á þaðan góðar minn­ingar. Ég átti stóran vin­konu­hóp en skóla­starfið var kynja­skipt.“

Silja Sóley seg­ist hafa verið félags­lynd sem barn, ekki aðeins á leik­skóla­ár­unum heldur líka þegar árin liðu. Henni hafi þótt gaman að eign­ast vini og átt auð­velt með það.

„Ég var mjög fjörugt barn en líka mjög vör um mig. Ég hef alltaf verið mjög mikið að fylgj­ast með öðrum og pinku tengd við það og ég hef alltaf haft gaman af ýmiss konar föndri. Í dag prjóna ég mikið og bý til skart og mér finnst vera gaman að hafa fal­legt í kringum mig og ég fer mikið á nytja­mark­aði og er smá safn­ari.“

Silja Sóley, sem á tvo yngri bræður, var sjö ára þegar fjöl­skyldan flutti í Smá­í­búða­hverfið. Hún segir það hafa verið góða breyt­ingu.

„Við bjuggum í göt­unni fyrir neðan göt­una þar sem önnur amma mín og afi bjuggu og ég náði að vera mikið hjá þeim sem mér þótti mjög kært. Ég gat farið til ömmu eftir skóla þannig að ég var að stórum hluta hjá henni af því að báðir for­eldrar mínir voru að vinna.“

Móðir hennar, Sigrún Dan­í­els­dóttir, er sál­fræð­ingur og verk­efn­is­stjóri hjá hinu opin­bera um geð­rækt, og faðir hennar tölv­un­ar­fræð­ingur og tón­list­ar­maður. Síðustu ár hefur hann helgað sig algjör­lega tón­list­inni. Hann er Birgir Þór­ar­ins­son, eða Biggi veira, með­limur hljóm­sveit­ar­innar GusGus.

„Ég var mjög mikið á Sirkus-barnum sem barn að degi til auð­vitað, til dæmis þegar var sum­ar­há­tið í bak­garð­inum. Ég man að þar var dósa­vél þar sem maður gat fengið hnetur í dós sem mér fannst vera mjög skemmti­legt.“

Hún fékk líka stundum að fara með á NASA þegar hljóm­sveitin æfði fyrir tón­leika og einu sinni fór hún með móður sinni þegar GusGus var með tón­leika frekar snemma að kvöldi.

„Þá sátum við í box­inu hjá hljóð­mann­inum og héngum bak­sviðs. Ég fékk síðan alltaf að fara á tón­leika með pabba þegar ég varð eldri. Það var alltaf mikil tón­list heima og pabbi var dálítið mikið að túra. Ég fer ennþá á alla tón­leik­ana og skemmti mér alltaf vel. Ég er mik­ill GusGus-aðdá­andi.“

Fjölbreytileikinn

Silja Sóley var tíu eða ell­efu ára þegar faðir hennar „byrj­aði að klæða sig eins og hann vill klæða sig“, eins og hún orðar það, en hann klæðir sig gjarnan í kven­manns­föt.

„Ég man að það var mikið sjokk fyrir mig þá. Þetta var mikil breyt­ing. Þetta breytti aldrei sam­bandi mínu við pabba og þetta var aldrei eitt­hvað sem mér fannst vera óþægi­legt þegar frá leið.“

Hún segir að þar sem hún var svo ung hafi henni hins vegar fund­ist óþægi­legt að allir vissu eitt­hvað um fjöl­skyld­una og að utan­að­kom­andi fólk spurði hana um föður hennar.

„Það var ýmis­legt sagt og ein­hverjir strákar í skól­unum sögð­ust ekki vilja vera eins og pabbi minn,“ segir hún og kímir.

„Ég man að það var mikið sjokk fyrir mig.“

Hún segir þetta ekki hafa haft afger­andi áhrif.

„Ég myndi segja að við séum mjög lit­rík fjöl­skylda og for­eldrar mínir hafa alltaf lagt mikla áherslu á að vera ekki með for­dóma og að sýna sam­kennd. Ég var ekki alveg jafn­fé­lags­lynd á þessum tíma eins og þegar ég var yngri, en það var út af erf­iðum vina­sam­skiptum, en ég hefði viljað peppa mig upp af því að allt í einu var svo mikil athygli á okkur. Mér fannst það vera óþægi­legt af því að fólk var að horfa. Sumir vissu ekki hvernig þeir áttu að bregð­ast við eða voru jafn­vel með for­dóma og ég held að það hafi aðal­lega verið það sem mér fannst vera óþægi­legt. Við vorum að labba niðri í bæ og fólk var að horfa og ég varð svo reið. Ég var svo ung og hefði helst viljað að eng­inn tæki eftir mér.“

Ég var ekki alveg jafn­fé­lags­lynd á þessum tíma eins og þegar ég var yngri, en það var út af erf­iðum vina­sam­skiptum, en ég hefði viljað peppa mig upp af því að allt í einu var svo mikil athygli á okkur. Mér fannst það vera óþægi­legt af því að fólk var að horfa.“

Tala þau feðginin um föt?

„Við eigum það sam­eig­in­legt að hafa mik­inn áhuga á fötum, skrauti og skarti. Við erum samt ekki með sama stíl. Það er líka kyn­slóða­munur.“

Það að faðir Silju Sóleyjar hafi komið út á þennan hátt opn­aði augu hennar fyrir for­dómum og því að fólk er alls konar.

„Ég held að það hafi sýnt mér mik­il­vægi þess að vera með fjöl­breyti­leik­ann sýni­legan. Það grass­era ekki ein­hverjir for­dómar hjá fólki. Fólk er hrætt við það sem það þekkir ekki. Og ef það er ekki sýni­legt þá getur það aldrei þekkt það.“

Hún seg­ist þess vegna reyna að nálg­ast allt með jákvæðni.

„Ég held að það sé mik­il­vægt að fjöl­breyti­leiki sam­fé­lags­ins sé sýni­legur og að við fögnum honum.“

Samanburður og kvíði

Silja Sóley minnt­ist á minni­mátt­ar­kennd sem hún fann fyrir þegar hún var yngri.

„Ég held að minni­mátt­ar­kenndin hefi tengst því að mann lang­aði að gera meira. Mann lang­aði að láta gott af sér leiða og vera dug­legri og hjálp­legri. Ég held að það sé bara það. En maður þarf smá að kasta sér í djúpu laug­ina.“

Fannst henni hún ekki standa sig nógu vel?

„Ég myndi frekar segja að ég vil alltaf verða betri. Það kemur bara með full­orð­ins­ár­unum að maður byrjar að sýna sér aðeins meiri mildi. Ég held að maður sé alltaf miklu gagn­rýnni á sjálfan sig þegar maður er yngri af því að maður er ekki alveg eins full­mót­aður og maður er seinna meir.“

Hún segir fólk alltaf vera að þroskast en þegar það er yngra sé það enn að finna út hver það er. Þá hafi fólk ákveðna sýn á hvernig það ætti að vera og sú sýn sé alltaf á aðeins hærri staðli en það sjálft.

Silja Sóley talar líka um kvíð­ann sem hún hefur alltaf fundið svo­lítið fyrir.

„Ég hef alltaf verið smá kvíðin og kannski tengd­ist það á ung­lings­ár­unum, til­finn­inga­flækj­unni sem það er að vera ung­lingur en ég varð þá mjög félags­kvíðin. Ég held að það hafi tengst því að ég vildi mjög lengi ekki vera sýni­leg sem er mjög fyndið núna þegar ég er í fram­boði - ég gæti ekki verið sýni­legri,“ segir hún og kímir.

Hún segir það þó enn stundum geta verið óþægi­legt, en að það venj­ist.

„Ég þurfti að vinna mig út úr kvíð­anum á sínum tíma og fór meðal ann­ars í tíma til sál­fræð­ings. Ég er þó með leifar eftir þetta og tár­ast stundum ef ein­hver hrósar mér mikið af því að ég á svo erfitt með að taka því eða mér finnst það snerta hjarta­ræt­urnar aðeins of djúpt. En partur af þessu held ég að sé bara að ég er til­finn­inga­rík mann­eskja sem ég held að sé líka góður kostur.“

Silja Sóley, sem er með BS-próf í sál­fræði, segir að ástæður kvíða séu mis­jafnar og alltaf ein­stak­lings­bundnar.

„Ég held að gíf­ur­lega mik­ill sam­an­burður í sam­fé­lag­inu í dag ýti undir kvíða. Lífið er alltaf að verða hrað­ara og flókn­ara og það verður sífellt meiri sam­keppni á vinnu­mark­aðnum. Það er ekki jafn­mikil sam­heldni í sam­fé­lag­inu og var kannski áður fyrr; fólk er ekki alveg jafn­tengt.“

Hún segir sam­fé­lags­miðla hafa verið að koma þegar hún var ung­lingur og að það hafi kannski spilað eitt­hvað inn í kvíða þá. Hún telur sam­fé­lags­miðla líka hafa áhrif á lífs­sýn­ina.

„Ég held að þessi stöðugi sam­an­burður sé mikið mein í sam­fé­lag­inu og að það leiði til þess að við horfum of mikið inn á við. Maður verður svo­lítið þröng­sýnn þegar maður horfir svona mikið inn á við. Ég held að það þurfi að breyt­ast hvernig við horfum á lífið.“

Hún segir lífið ekki eiga að snú­ast um svona mikla sam­keppni eða hörku. Fólk ætti að horfa meira á aðra og það sé margt sem hægt sé að læra af öðrum.

„Ég held að það sé í raun og veru það sem mótar mann lang­mest. Áföll hafa líka mjög mikil mót­un­ar­á­hrif og líka af því að þau eru svo eft­ir­minni­leg. En það er í raun og veru fólk sem er manni náið sem mótar mann sér­stak­lega.“

Hún telur að allir geti að ein­hverju leyti speglað sig í fjöl­skyldu sinni og vinum og séð eig­in­leika hjá öðrum sem þá langar að til­einka sér. Það sé það sem hafi mótað hana mest.

Stoðkennsla í stærðfræði

Silja Sóley fór í Mennta­skól­ann í Reykja­vík og seg­ist hafa notið sín þar.

„Ég var í mjög góðum bekk, mér leið vel í skól­anum og hef alltaf haft gíf­ur­legan áhuga á stærð­fræði. Ég gat á öðru ári valið á milli þess að fara á nátt­úru­fræði­braut eða eðl­is­fræði­braut og ég valdi að fara á eðl­is­fræði­braut sem voru smá mis­tök.“

Hún seg­ist hafa haldið að áhug­inn á stærð­fræði myndi yfir­fær­ast á eðl­is­fræði, en svo varð ekki. Hún átti erfitt með eðl­is­fræði og hafði ekki mik­inn áhuga á henni.

Um sum­arið eign­að­ist hún marga vini sem voru í Mennta­skól­anum við Hamra­hlíð og ákvað að skipta yfir í MH. Þar kláraði hún skóla­göng­una og lagði meiri áherslu á stærð­fræði og síðar sál­fræði, eftir að áhugi á sál­fræði kvikn­aði.

„Ég naut mín mjög á mennta­skóla­ár­unum og þá fann ég að ég hafði áhuga á kennslu. Ég hef alltaf haft áhuga á að hjálpa og ég hef fundið að ég er frekar góð í að miðla upp­lýs­ingum til ann­arra.“

Hún hjálp­aði því nokkrum bekkj­ar­fé­lögum í gegnum stærð­fræð­ina, bæði í MR og MH.

„Ég hef örugg­lega bjargað mörgum frá falli í stærð­fræði. Það er mjög gef­andi. Síðan fékk ég einmitt tæki­færi eftir mennta­skóla­göng­una að vera með stoð­kennslu í stærð­fræði í MR og var með nám­skeið fyrir nem­endur sem höfðu ekki stað­ist próf.“

Fjölbreytileiki barna

Silja Sóley útskrif­að­ist sem stúd­ent í lok haust­annar 2019 og ákvað að fara að vinna í hálft ár áður en hún færi í sál­fræði­nám. Hún fór að vinna á leik­skóla en ákvað svo að fresta háskóla­nám­inu þegar Covid-heims­far­ald­ur­inn skall á, þar sem henni fannst við­vera í sál­fræði­nám­inu mik­il­væg en víða var fjar­kennsla á Covid-tím­anum.

Silja Sóley vann í leik­skól­anum í tvö og hálft ár.

„Ég kynnt­ist fjöl­breyti­leika barna og að hvert barn þarf mis­mun­andi nálgun. Þá byrj­aði ég að fá auk­inn áhuga á að hafa aðeins víð­tæk­ari áhrif á skóla­kerfið og hef áhuga á að læra síðar skóla­sál­fræði.“

Hún fór síðan í BS-nám í sál­fræði við Háskóla Íslands og útskrif­að­ist í fyrra­vor. Hvað taki við eftir kosn­ingar eigi eftir að koma í ljós.

„Ann­að­hvort fer ég einmitt að vinna í mennta­mál­unum og ein­hvern tím­ann seinna á lífs­leið­inni langar mig að fara í nám í skóla­sál­fræði.“

Eftir útskrift í fyrra­vor fór Silja Sóley að vinna sem stuðn­ings­full­trúi í grunn­skóla. Hún segir að áður en hún færi í nám í skóla­sál­fræði hafi hún viljað kynn­ast grunn­skól­anum og hvernig dag­legt líf þar væri.

„Það var mjög áhuga­vert að vinna á gólf­inu og sjá einmitt það ríka og fjöl­breytta starf sem á sér stað inni í skól­anum. Núna er ég komin í leyfi út af kosn­inga­bar­átt­unni.“

Upplifði sig utangarðs

Silja Sóley er tutt­ugu og fimm ára og með ýmis­legt í bak­pok­anum þegar kemur að lífs­reynslu.

„Ég hef alveg upp­lifað erf­ið­leika eins og allir. Ég hef þó ekki upp­lifað mikið af ein­hverjum gígantískum eða miklum áföllum sem hafa haft afger­andi áhrif á mig og ég er mjög lánsöm.“

Hún þagnar og heldur áfram.

„Ég held að sú lífs­reynsla sem hefur mótað mig mest hafi eflaust haft áhrif á af hverju ég brenn svona mikið fyrir skóla­málum. Ég sjálf átti far­sæla skóla­göngu og mér gekk vel í námi. Ég var alltaf mjög þægt og jákvætt barn sem þurfti ekk­ert mikið að pæla í en ég átti alveg erfitt félags­lega seinna meir sem skildi eftir sig smá far en ég var mjög félags­kvíðin sem ung­lingur eins og ég sagði. Ég veit ekki hvort þetta hafi mótað mig varð­andi bar­áttu­mál en það hefur 100% mótað mig varð­andi hvernig ég horfi út á við.“

Var hún lögð í ein­elti?

„Nei, ég myndi ekki segja það. Þetta var erf­iður vina­hópur sem var ekki á góðum stað um tíma og ég upp­lifði mig mjög utan­garðs. Ég ætla ekki að fara djúpt í það en ég er vinur margra enn í dag.“

Sem lífs­reynd kona gæti Silja Sóley sem borg­ar­full­trúi eflaust sett sig betur inn í spor borg­ar­búa.

„Maður veit aldrei raun­veru­lega hvað ein­hver er að ganga í gegnum og í hvaða erf­ið­leikum fólk er í. Það eru svo margir hópar í sam­fé­lag­inu sem hafa mjög sér­tæk vanda­mál og það er svo mik­il­vægt að ákveða ekki fyrir fólk.“

Hún segir ekki far­sælt að giska á hvað væri gott fyrir fólk. Ef hún verði borg­ar­full­trúi telji hún mik­il­vægt að vera í ríkum sam­ræðum, bæði þegar hug­myndir og til­lögur séu ræddar og þegar ákvarð­anir séu teknar eða reynt sé að laga kerfi sem virka ekki.

„Það sé alltaf á for­sendum þess hóps sem það á að gagn­ast. Ef við tölum um mál­efni fatl­aðra þá ættu þau að hafa lang­mest að segja og mál­efni eldri borg­ara og jafn­vel mál­efni barna. Það er svo mik­il­vægt að reyna að kynna sér hvað er að hafa áhrif á þau.“

Hún segir margt sem borgin geri hafa gíf­ur­leg áhrif á líf fólks.

„Nálgunin á alltaf að vera af mannúð, af til­lits­semi og raun­veru­legri sam­vinnu við fólk en ekki ein­hverjum fjár­hags­sjón­ar­miðum eða eftir því sem hentar kerf­inu.“

Mikil samheldni eftir klofninginn

Það hefur ekki alltaf verið dans á rósum hjá Sós­í­alista­flokknum sem klofn­aði á sínum tíma. Silja Sóley segir að í dag sé starfið mjög virkt og mikil sam­heldni þannig að flokk­ur­inn hafi jafnað sig.

„Klofn­ing­ur­inn varð vegna þess að það var vilji félags­manna að hafa breyttar áherslur. Mikið fjár­magn fór í annað en að byggja upp flokks­starfið og fólk vildi líka bara meira gegn­sæi og lýð­ræð­is­legri vinnu­brögð en ég held að það hafi eng­inn beint búist við öllu því sem kom í kjöl­farið.“

„Mikið fjár­magn fór í annað en að byggja upp flokks­starfið“

Hún segir að auð­vitað hafi tekið tíma að koma starf­inu aftur í gang. Flokk­ur­inn þurfti að skipta um hús­næði og mikil vinna fór í að byggja hann upp á ný.

„En ég myndi segja að núna sé sam­heldnin mikil og við erum mjög virk og það er góður andi í flokknum.“

Lýðræðinu stafi ógna af nýfrjálshyggju

Oddviti Sós­í­alista­flokks­ins í Reykja­vík seg­ist vona og trúa að flokk­ur­inn kom­ist inn í þessum kosn­ingum. Hún seg­ist hlakka mjög til að efla sam­starf við hina ýmsu hags­muna­hópa og koma ein­hverju jákvæðu í gegn í kerf­inu.

„Ég vona að flokk­ur­inn haldi áfram að stækka og nái að breiða út sinn boð­skap. Ég veit að fyrir suma getur nafnið kannski verið frá­hrind­andi vegna gam­alla teng­inga en í grunn­inn, ef fólk kynn­ist hverju við berj­umst fyrir, þá er það bara rétt­lát­ara sam­fé­lag.“

Silja Sóley segir sam­fé­lagið hafa þró­ast of mikið í átt að nýfrjáls­hyggju og að verið sé að snúa frá þeim áherslum sem hafi skapað nor­rænu vel­ferð­ar­ríkin.

„Það er engin til­viljun að lífs­gæði eru best á Norð­ur­lönd­unum, það er sterkum vel­ferðar- og jöfn­un­ar­á­herslum að þakka. Á hinum end­anum sjáum við hvað verður um sam­fé­lög sem fórna almenn­ings­hags­munum í þágu einka­væð­ingar og auð­magns, til dæmis í Banda­ríkj­unum þar sem sam­fé­lagið fer smám saman að molna niður.“

Hún segir þetta bein­línis ógn við lýð­ræðið. Vinstri flokk­arnir sem hafi kom­ist til valda­stóla á Íslandi hafi verið mjög passí­vir gagn­vart þess­ari þróun og þess vegna sé fólk að gef­ast upp á vinstr­inu.

„Það hefur orðið fyrir gíf­ur­legum von­brigðum. Við viljum end­ur­nýja þessa von. Við viljum að fólki líði vel og sé með öfl­ugan stuðn­ing í grunn­inn. Við munum alltaf berj­ast fyrir hag almenn­ings þannig að allir geti lifað mann­sæm­andi lífi og sam­fé­lagið sé öruggt, frið­sælt og gott.“

Hún segir kosn­inga­bar­átt­una hafa verið mikið þroska­tíma­bil fyrir flokk­inn og að gaman hafi verið að sjá. Mikil nýliðun sé í flokknum og hann sé að ná til unga fólks­ins. Hún telur starf flokks­ins mik­il­vægt og rödd hans mik­il­væga í sam­fé­lag­inu.

„Varðandi mig per­sónu­lega þá vona ég að ég nái að láta gott af mér leiða. Ég sjálf er ekki með neina sér­staka frama­drauma. Það er ekki það sem knýr mig áfram. Ég vil bara nýta mína krafta og ég veit að ég get verið mjög kröftug í að hafa jákvæð áhrif á sam­fé­lagið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Pólitík

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

„Slíkur fals-flokkur á engan tilvistarrétt, því hann gerir meira ógagn en gagn“
  • Pólitík

    Dorrit skorar á for­seta Ísraels að hleypa arab­ískum flokkum í rík­is­stjórn

  • Pólitík

    Segir öfga­ísla­mista og öfga hægri­menn eiga margt sam­eig­in­legt

  • Pólitík

    „Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mann­rétt­inda á Alþingi“

  • Pólitík

    Kína vill efla tengslin við Ísland á lyk­ilsviðum

  • Pólitík

    Sig­mundur Davíð svarar fyrir fjar­veru sína úr öllum atkvæða­greiðslum