Jódís Skúladóttir
„Ég nenni ekki að hlusta á þennan tappa snúa út úr orðum mínum“
Jódís Skúladóttir
Minning

Lárus Heið­ars­son lát­inn

Skoðun

Ég fór til vinnu – ekki til að missa heils­una

Pólitík

„Ef það má bjóða ein­hverjum bit­urð og kven­fyr­ir­litn­ingu, endi­lega lesið Moggann í dag“

Fólk

Líf á mörkum friðar og átaka

Heimur

Alanis Moris­sette kemur út sem pankyn­hneigð

Minning

Sæmi Rokk er fall­inn frá

Heimur

Jessica Delfino segir Russell Brand hafa ítrekað boðið sér heim til sín

Innlent

„Það er alls ekki hryðju­verk að hleypa dýrum út“

Frétt

„Vændi snýst um sam­fé­lagið í heild“

Heimur

Stakk nágranna sinn í brjóstið eftir deilur um lausan hund

Fluttu inn kók í steyptu borði

Var sent til Íslands frá Banda­ríkj­unum

Fluttu inn kók í steyptu borði
Hér­aðs­dómur Reykja­víkur sá um málið Mynd: Brynhildur Jensdóttir

Hér­aðs­dómur Reykja­víkur hefur dæmt tvo menn til fang­els­is­vistar fyrir til­raun til stór­fellds fíkni­efna­laga­brots vegna inn­flutn­ings á rúmu kílói af kóka­íni sem falið var í steyptu borði og sent til Íslands frá Banda­ríkj­unum með póst­send­ingu árið 2024.

Annar mann­anna, Audrius Ablingis, var dæmdur í 20 mán­aða fang­elsi en Jonas Mockevicius hlaut 18 mán­aða fang­els­is­dóm.

Samkvæmt ákæru og nið­ur­stöðu dóms­ins stóðu menn­irnir saman að inn­flutn­ingi á 1.003,59 grömmum af kóka­íni sem hafði mjög mik­inn styrk­leika. Fíkni­efnin voru ætluð til dreif­ingar hér á landi í ágóða­skyni. Toll­gæsla stöðv­aði send­ing­una við kom­una til lands­ins og lög­regla fjar­lægði fíkni­efnin áður en send­ingin var afhent. Í stað­inn var komið fyrir gervi­efnum ásamt eft­ir­farar- og hlust­un­ar­bún­aði.

Dómurinn rekur að skráður mót­tak­andi hafi sótt send­ing­una á póst­hús í Reykja­vík 4. sept­em­ber 2024 og flutt hana á bif­reiða­verk­stæði við Elds­höfða. Þaðan sótti Ablingis pakk­ann og fór með hann í bíl­skúr við Álfheima sem hann hafði á leigu ásamt Mockevicius.

Lögregla fylgd­ist með ferðum mann­anna þann dag og taldi hegðun þeirra bera með sér að þeir væru mjög varir um sig. Meðal ann­ars fóru þeir í akstur til að kanna hvort fylgst væri með þeim og sneru síðar aftur á reið­hjólum til að nálg­ast bíl­skúr­inn. Þegar þeir opn­uðu pakk­ann náð­ist hljóð­upp­taka úr bún­aði lög­reglu þar sem tveir menn ræddu saman um inni­hald send­ing­ar­innar og þann búnað sem þar fannst.

Mockevicius neit­aði sök og hélt því fram að hann hefði ekki vitað hvað væri í send­ing­unni. Dómurinn taldi þó sannað að hann hefði fylgst með ferðum pakk­ans og tekið virkan þátt í fram­kvæmd brots­ins. Þá þótti það einnig þungt vega að hann lagði á flótta þegar lög­regla hafði afskipti af honum.

Menn­irnir voru jafn­framt dæmdir til að greiða veru­legan sak­ar­kostnað og málsvarn­ar­laun verj­enda sinna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Erlendir ferða­menn í bílnum sem lenti í Kleifá

Straumurinn bar bílinn í gegnum ræsi og þurfti að draga hann úr ánni áður en hægt var að ná öðrum ferðamanninum út.
Heimur

Ungur maður lést í umferð­ar­slysi á Kanarí­eyjum

Heimur

Fyrsti dagur Brands í Wandsworth-fang­els­inu sagður nið­ur­lægj­andi

Heimur

Huckabee segir Satan stjórna and­stæð­ingum Íran­stríðs­ins

Heimur

Ísra­elskur sjón­varps­maður lát­inn víkja eftir rasísk ummæli

Innlent

Innlent

Kristrún segir ekki þörf á fastri við­veru banda­rísks her­liðs á Íslandi

„Sambandið hefur breyst síðan þá. Við berum nú meiri ábyrgð sjálf og mér finnst það hafa gengið vel“
Innlent

Einar Logi birtir mynd­band úr inn­broti sínu hjá Stjörnu­grís

Innlent

Tveir rot­uðu mann í miðbæ Reykja­víkur

Innlent

Ökumaður ók á tvo ljósastaura og umferð­ar­eyju

Innlent

Brennu­varg­arnir í Sorpu komnir aftur á stjá

Innlent

MAST segir að aðgerðir vegna dýra­vel­ferðar megi ekki auka þján­ingar dýra