Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Morðingi rapparans Gaboro hlaut lífstíðardóm

„Öll morð eru hræði­leg, en þetta morð er lík­lega eitt það versta sem ég hef nokkru sinni feng­ist við“

Morðingi rapparans Gaboro hlaut lífstíðardóm
Gaboro Rapp­ar­inn hét réttu nafni Ninos Moses Khouri Mynd: Instagram-skjáskot

Alex­ander Nord, 22 ára gam­all maður, hefur verið dæmdur í lífs­tíð­ar­fang­elsi fyrir morðið á sænska rapp­ar­anum Gaboro sem var skot­inn til bana í bíla­geymslu í Norrköp­ing í des­em­ber árið 2024.

Alex­ander NordNord fékk lífs­tíð­ar­dóm fyrir morðið

Nord var sak­felldur fyrir morð og alvar­leg vopna­laga­brot en hann neit­aði sök. Annar maður, þrí­tugur að aldri, hafði verið ákærður fyrir hlut­deild í morð­inu og grun­aður um að hafa hvatt skot­mann­inn til verks­ins, en hann var sýkn­aður að fullu fyrir dóm­stólum.

Nafn hans á dauðalista

Samkvæmt rann­sókn lög­reglu hafði Gaboro farið í lík­ams­rækt áður en hann hélt að bif­reið sinni í bíla­geymslu húss­ins. Þar beið árás­armað­ur­inn hans.

Í rann­sókn­ar­gögnum kemur fram að nafn rapp­ar­ans hafi verið á svoköll­uðum dauða­lista sem tengd­ist átökum glæpa­gengja í Norrköp­ing. Þar hafi staðið: „Allir á þessum lista munu deyja fyrr eða síðar.“

Gaboro var hæfður fimm skotum og féll til jarðar í bíla­geymsl­unni. Nord tók árás­ina upp á mynd­band og síðar dreifð­ist upp­takan á sam­fé­lags­miðlum. Á henni má heyra kvala­öskur rapp­ar­ans eftir skotárás­ina.

Lög­reglan hefur lýst morð­inu sem sér­stak­lega mis­kunn­ar­lausu.

„Öll morð eru hræði­leg, en þetta morð er lík­lega eitt það versta sem rann­sókn­arteymið mitt og ég höfum nokkru sinni feng­ist við,“ sagði rann­sókn­ar­lög­reglu­mað­ur­inn Jan Staaf áður í yfir­lýs­ingu.

Tengdur við morðið með DNA

Samkvæmt lög­reglu bauð Nord sig sjálfur fram til að fram­kvæma morðið í gegnum spjall­hópa á net­inu. Rann­sak­endur tengdu hann við vett­vang­inn með DNA-sýnum úr bíla­geymsl­unni sem síðan voru rakin með ætt­fræði­legri grein­ingu.

Engin tengsl eru sögð hafa verið milli hans og rapp­ar­ans.

Í dóm­inum kemur fram að vitn­is­burður fólks nákom­ins Nord hafi vegið þungt. Fólkið sagð­ist hafa þekkt föt hans á mynd­skeið­inu af morð­inu.

Eitt vitnið sagði einnig að Nord hefði fyrir morðið sagt að hann ætl­aði að gera „eitt­hvað stórt“ og hefði keypt sér hanska. Eftir morðið hafi hann jafn­framt sagst vera mað­ur­inn sem sæist skjóta Gaboro í mynd­band­inu.

Þá hafi hann beðið við­kom­andi um að segja engum frá.

Samkvæmt vitn­is­burði sagði Nord einnig að hann fengi hærri greiðslu ef hann tæki morðið upp á mynd­band. Vitni báru jafn­framt að hann hefði gert grín að verkn­að­inum á eftir og virst stoltur af því sem hann hafði gert.

Dæmdur fyrir fleiri brot

Auk morðs­ins var Nord einnig dæmdur fyrir til­raun til mann­dráps og alvar­leg vopna­laga­brot vegna skotárásar á íbúð­ar­hús­næði í des­em­ber 2024, auk ann­ars vopna­laga­brots í mars 2025. Þá var hann einnig sak­felldur fyrir fíkni­efna­brot.

Gaboro naut mik­illa vin­sælda í Svíþjóð, meðal ann­ars á Spotify og TikTok, þar sem eitt laga hans sló í gegn fyrir nokkrum árum. Hann hafði einnig komið fram í sænska rík­is­út­varp­inu.

Rapp­ar­inn varð 23 ára gam­all. Hann lést dag­inn fyrir 24 ára afmælið sitt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Tækið er sagt geta borið fjóra fullorðna einstaklinga
Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi