Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Framkvæmdastjóri telur þrif aðstandenda vera samverustund

„Til­gang­ur­inn er að fegra umhverfi íbú­anna fyrir sum­arið svo hægt sé að njóta sum­ars­ins“

Framkvæmdastjóri telur þrif aðstandenda vera samverustund
Hjúkr­un­ar­heim­ilið Skjól Mynd: Skjól

Sumir aðstand­endur íbúa á hjúkr­un­ar­heim­il­inu Skjóli á Klepps­vegi hafa lýst yfir óánægju eftir að þeim barst tölvu­póstur þar sem óskað var eftir aðstoð við ýmis garð- og við­halds­verk á heim­il­inu en DV greindi frá mál­inu í gær.

Í póst­inum voru ætt­ingjar og vinir hvattir til að mæta til vinnu­dags fimmtu­dag­inn 28. maí til að sinna verk­efnum á borð við að sópa, tína rusl, klippa tré, hreinsa stéttar, bera á úti­hús­gögn og setja niður blóm.

Þá voru þátt­tak­endur jafn­framt hvattir til að koma með eigin verk­færi, svo sem skóflur, sköfur og hanska. Fram kom að boðið yrði upp á pylsur og drykki í lok dags.

Charlotta Sverr­is­dóttir, sem á 95 ára móð­ur­systur á Skjóli, segir í færslu á Facebook beiðn­ina hafa komið sér á óvart. Hún segir móð­ur­systur sína greiða um 600 þús­und krónur á mán­uði fyrir dvöl­ina á heim­il­inu og telur óeðli­legt að aðstand­endur séu beðnir um að sinna slíkum verk­efnum.

Að hennar mati ætti hjúkr­un­ar­heim­ilið annað hvort að kaupa þjón­ust­una eða fá aðstoð í gegnum ung­linga­vinnu eða aðrar leiðir. Hún segir beiðn­ina gefa til kynna að verið sé að reyna að færa kostnað og vinnu yfir á aðstand­endur íbú­anna.

Mannlíf sendi fyr­ir­spurn á Skjól að fá þeirra hlið­ina á mál­inu.

„Til­gang­ur­inn er að fegra umhverfi íbú­anna fyrir sum­arið svo hægt sé að njóta sum­ars­ins og úti­veru við hvert tæki­færi eins fljótt og hægt er ásamt því að stuðla að góðri sam­veru við aðstand­endur í leið­inni,“ sagði Kjartan Kjart­ans­son, fram­kvæmda­stjóri fjár­mála- og rekstr­ar­sviðs Eirar, Skjóls og Hamra, við fyr­ir­spurn Mannlíf um málið.

„Í nokkur ár hefur komið upp sú umræða meðal starfs­fólks hvort ekki væri gaman að koma saman, njóta sam­veru og fegra umhverfi íbúa og kom upp sú hug­mynd að bjóða aðstand­endum að taka þátt með okkur,  þetta væri góð leið að bjóða aðstand­endum að taka þátt, hitta starfs­fólk og vinna saman að því sam­eig­in­lega mark­miði að bæta lífs­gæði íbúa.“

Þykir ykkur eðli­legt að fólk sem í mörgum til­fellum er að borga sé að borga fyrir vistun ætt­ingja sé að þrífa fyrir ykkur?

„Hjúkr­un­ar­heim­ilin okkar eru óhagn­að­ar­drifin og eru heim­ili ein­stak­ling­anna sem þar búa. Ætt­ingjum finnst oft­ast eðli­legt, sjálf­sagt og gott að geta lagt sitt af mörkum við að aðstoða þá við að hlú að umhverf­inu til að geta notið úti­veru og jafn­vel glugga­veð­urs,“ sagði Kjartan en tók fram að þetta væri í fyrsta skipti sem svona bón er send út.

„Svona sam­veru­stund hefur ekki verið haldin áður en við höfum oft fengið ætt­ingja í lið með okkur t.d. við að skreyta híbýli íbúa fyrir jól og páska. Haft Pálínu­boð í kringum jól og annað slíkt. Bæði aðstand­endur, íbúar og starfs­fólk njóta slíkra sam­vista.“

Eru ekki innheimtufyrirtæki

Hvar liggur línan, getur fólk búist við því að það þurfi mögu­lega að elda í heim­il­is­menn?

„Sam­veru­stund sem þessi er í fyrsta lagi ekki skylda – heldur boð til þeirra sem langar að vera með og vilja gera sér glaðan dag með fólk­inu sínu, sem býr á hjúkr­un­ar­heim­ili, ásamt starfs­fólki. Við trúum því að stund sem þessi geti verið aðstand­endum og starfs­fólki sér­lega gef­andi.“

Í svari sínu bendir Kjartan einnig á að hjúkr­un­ar­heim­ili lands­ins séu fjár­mögnuð með dag­gjöldum frá Sjúkra­trygg­ingum Íslands og að íbúar greiði því ekki beint til heim­il­anna fyrir dvöl sína. Hins vegar sé íbúum sam­kvæmt lögum gert að taka þátt í greiðslu dval­ar­kostn­aðar og sé það fyr­ir­komu­lag útfært af Trygg­inga­stofnun rík­is­ins.

Samkvæmt Kjartani reiknar Trygg­inga­stofnun út greiðslu­þátt­töku hvers íbúa og sendir síðan kröf­una á Sjúkra­trygg­ingar Íslands, sem dragi upp­hæð­ina frá dag­gjöldum við­kom­andi hjúkr­un­ar­heim­ilis. Í kjöl­farið sitji heim­ilin uppi með að inn­heimta greiðsl­urnar af íbú­unum fyrir hönd rík­is­ins.

Kjartan segir að hjúkr­un­ar­heim­ili hafi lengi barist fyrir því að losna undan þessu hlut­verki.

„Við sér­hæfum okkur í að reka hjúkr­un­ar­heim­ili en erum ekki inn­heimtu­fyr­ir­tæki,“ segir hann og telur að inn­heimtan eigi að vera á ábyrgð rík­is­ins en ekki stofn­an­anna sjálfra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Frétt

Svanur Jóhann­es­son er lát­inn

Fólk

Björk Guð­munds­dóttir er ólétt

Heimur

Óvenju­leg inn­rás mar­íu­bjalla vekur óhug

Menning

Ein besta rapp­sveit Íslands­sög­unnar snýr aftur á svið

Fólk

Selja fal­lega sveita­sælu í Ölfusinu með risa­stórri lóð

Innlent

Innlent

Fór í búð í Graf­ar­vogi en end­aði í fanga­geymslu

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl