Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Vilja vernda ímynd Íslands

„Orðspor Íslands er afar dýr­mætt“

Vilja vernda ímynd Íslands
Þor­gerður Katrín utan­rík­is­ráð­herra Mynd: Víkingur

Sam­komu­lag um sam­starf vegna hags­muna­gæslu landa­heit­is­ins Ísland/Iceland hefur verið und­ir­ritað af stjórn­völdum og lyk­il­að­ilum úr atvinnu­líf­inu en greint er frá þessu í til­kynn­ingu frá stjórn­völdum.

Markmið sam­starfs­ins er að vernda ímynd Íslands og gæta hags­muna íslenskra útflutn­ings­greina þegar landa­heitið er notað við mark­aðs­setn­ingu vara og þjón­ustu á erlendum mörk­uðum.

Að sam­komu­lag­inu standa full­trúar utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins, menn­ingar-, nýsköp­unar- og háskóla­ráðu­neyt­is­ins, Samtaka atvinnu­lífs­ins, Hug­verka­stof­unnar, Icelandic Tra­de­mark Holding ehf. og Íslands­stofu. Íslands­stofa mun hafa umsjón með vöktun landa­heit­is­ins auk þess að stýra verk­efn­inu og sam­ræma sam­starfið.

Með sam­komu­lag­inu verður komið á sam­eig­in­legu verk­lagi til að fylgj­ast með notkun landa­heit­is­ins erlendis og grípa til aðgerða þegar slíkt er talið geta skaðað hags­muni íslenskra fyr­ir­tækja eða útflutn­ings­greina. Mark­miðið er að tryggja að landa­heitið sé ekki notað með þeim hætti að það dragi úr sér­stöðu Íslands eða skapi rugl­ing á erlendum mörk­uðum.

Sam­starfið byggir meðal ann­ars á reynslu sem íslensk stjórn­völd hafa aflað í langvar­andi vöru­merkja­deilu við Iceland Foods. Deilan sner­ist um rétt­inn til notk­unar á heit­inu Iceland og lauk með nið­ur­stöðu sem talin var Íslandi í hag. Málið vakti alþjóð­lega athygli og und­ir­strik­aði mik­il­vægi þess að standa vörð um landa­heitið Ísland/Iceland sem hluta af ímynd lands­ins og verð­mæta­sköpun íslensks útflutn­ings.

Aðilar að sam­komu­lag­inu telja að aukið sam­starf og sam­ræmd við­brögð muni styrkja stöðu Íslands á alþjóða­vett­vangi og stuðla að því að vernda þau verð­mæti sem fel­ast í landa­heit­inu fyrir íslenskt sam­fé­lag og atvinnu­líf.

Efla vernd Íslands

„Það er Íslandi mjög mik­il­vægt að við verndum áfram okkar dýr­mæta landa­heiti sem Ísland er og tryggjum að það sé ekki mis­notað. Ég fagna því að aðilar sam­ein­ist nú um að byggja áfram á þeirri góðu vinnu sem þegar hefur verið unnin á þessu sviði. Ég er þess full­viss að sam­starf atvinnu­lífs og stjórn­valda muni efla enn frekar vernd og vöktun landa­heit­is­ins Ísland og þar með hags­muni íslensks atvinnu­lífs.“ segir Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, utan­rík­is­ráð­herra.

„Orðspor Íslands er afar dýr­mætt fyrir útflutn­ings­grein­arnar okkar og ekki síst fyrir skap­andi greinar og menn­ing­ar­tengdan útflutn­ing. Við höfum staðið í tölu­verðri bar­áttu um rétt íslenskra fyr­ir­tækja til að kenna sig við landið en slík upp­runa­teng­ing er nú á tímum sér­lega mik­il­væg,“ segir Logi Ein­ars­son, menn­ingar-, nýsköp­unar- og háskóla­ráð­herra. „Okkar saga hefur verið öðrum þjóðum inn­blástur og því hefur Ísland verið leið­andi í umræðu um aukna vernd fyrir landa­heiti innan alþjóð­lega vöru­merkja­kerf­is­ins. Það er því mikið gleði­efni að stjórn­völd og atvinnu­líf taki nú höndum saman um að standa skipu­lega og mark­visst að verndun og vöktun landa­heit­is­ins á alþjóða­mark­aði.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi