Breskir vinningshafar úr National Fish & Chip Awards 2026 héldu ánægðir og reynslunni ríkari heim eftir viðburðaríka heimsókn til Íslands í byrjun júní.
Gestirnir fengu að kynnast í ferðinni íslenskum sjávarútvegi af eigin raun, heimsækja fyrirtæki, smakka íslenskt hráefni og upplifa sjómannadagshelgina á Patreksfirði.
Að mati gestanna stóðu hlýjar móttökur heimamanna sérstaklega upp úr en Vestfirðirnir settu sterkan svip á ferðina.
Ferðin var farin á vegum Seafood from Iceland, markaðsverkefnis sem Íslandsstofa vinnur að í samstarfi við Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi um land allt.































Athugasemdir