Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

McDonald's tekið á teppið í Þýskalandi

McDonald's kaus að verj­ast ekki kröf­unum og sam­þykkti nið­ur­stöðu máls­ins

McDonald's tekið á teppið í Þýskalandi
McDonald's matur Ekki hægt að fá svona á Íslandi Mynd: Brett Jordan/Unsplash

Hér­aðs­dómur í München hefur bannað skyndi­bita­keðj­unni McDonald's að aug­lýsa í Þýska­landi að fyr­ir­tækið stefni að kolefn­is­hlut­leysi árið 2050, eftir að umhverf­is­vernd­ar­sam­tökin DUH höfð­uðu mál vegna full­yrð­ing­anna.

Málið sner­ist um yfir­lýs­ingar á heima­síðu McDonald's þar sem fyr­ir­tækið sagð­ist ætla að verða „kolefn­is­hlut­laust“ fyrir árið 2050, þar með talið í allri aðfanga­keðju sinni. DUH taldi lof­orðið vill­andi og gagn­rýndi að fyr­ir­tækið hefði ekki lagt fram skýra áætlun um hvernig mark­mið­inu yrði náð.

Samkvæmt sam­tök­unum breytti McDonald's orða­lagi aug­lýs­ing­anna eftir að hafa fengið form­lega aðvörun, en neit­aði að skuld­binda sig til að end­ur­taka ekki slíkar full­yrð­ingar. Í kjöl­farið var málið tekið fyrir fyrir dómi í München.

McDonald's kaus að verj­ast ekki kröf­unum og sam­þykkti nið­ur­stöðu máls­ins. Í dómi sem kveð­inn var upp fyrr í mán­uð­inum segir að fyr­ir­tæk­inu sé óheim­ilt að aug­lýsa að það stefni að því að verða kolefn­is­hlut­laust á heims­vísu í veit­inga­stöðum sínum og aðfanga­keðju fyrir árið 2050.

Verði bannið brotið getur fyr­ir­tækið átt yfir höfði sér allt að 250 þús­und evra sekt, jafn­virði um 36 millj­óna íslenskra króna. Þá geta stjórn­endur fyr­ir­tæk­is­ins átt yfir höfði sér allt að sex mán­aða fang­els­is­dóm.

Jürgen Resch, fram­kvæmda­stjóri DUH, fagn­aði nið­ur­stöð­unni og sagði McDonald's hafa reynt að hagn­ast á grænni ímynd sem fyr­ir­tækið ætti ekki skilið. Hann benti meðal ann­ars á umfangs­mikla kjöt­vinnslu fyr­ir­tæk­is­ins og mikið magn einnota umbúða.

McDonald's segir að umdeilt orða­lag hafi verið fjar­lægt af vef­síðu fyr­ir­tæk­is­ins fyrir nokkrum mán­uðum og að það verði ekki notað aftur. Fyr­ir­tækið hafn­aði hins vegar ásök­unum um að hafa vís­vit­andi blekkt neyt­endur og gagn­rýndi harða mál­sókn­ar­stefnu DUH.

DUH hefur á und­an­förnum árum staðið að fjölda mála sem tengj­ast lofts­lags­málum og hefur meðal ann­ars stefnt þýskum stjórn­völdum vegna nýrrar lofts­lags­á­ætl­unar sem sam­tökin telja ekki ganga nógu langt til að ná lög­bundnum mark­miðum um sam­drátt í losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Tækið er sagt geta borið fjóra fullorðna einstaklinga
Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi