Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Eiginkona sídrukkins ökumanns reyndi að bjarga honum fyrir horn

Dómurinn taldi þá skýr­ingu ekki trú­verð­uga

Eiginkona sídrukkins ökumanns reyndi að bjarga honum fyrir horn
Olís í Norð­linga­holti Mynd: Google Maps

Karl­maður hefur verið dæmdur í sex mán­aða óskil­orðs­bundið fang­elsi fyrir að aka tví­vegis undir áhrifum áfengis og sviptur öku­rétti, en Hér­aðs­dómur Reykja­víkur kvað upp dóm í mál­inu. Dómurinn áréttar jafn­framt ævi­langa svipt­ingu öku­réttar manns­ins.

Annað brotið átti sér stað í febr­úar 2025 þegar mað­ur­inn var stöðv­aður á Selfossi eftir að hafa ekið sviptur öku­rétti. Mældist vín­anda­magn í blóði hans 1,34 pró­mill. Hann ját­aði þá hátt­semi fyrir dómi.

Hitt brotið var framið í ágúst sama ár þegar til­kynn­ingar bár­ust lög­reglu um stór­hættu­legt akst­urs­lag bif­reiðar á Vest­ur­lands­vegi í átt að Reykja­vík. Lög­reglu­maður sem var á frí­vakt fylgdi bif­reið­inni eftir og lýsti því að henni væri ekið um allan veg. Þegar bif­reiðin nam staðar við Olís í Norð­linga­holti var mað­ur­inn hand­tek­inn. Blóð­rann­sókn sýndi síðar að vín­anda­magn í blóði hans var 2,27 pró­mill.

Maðurinn neit­aði sök vegna síð­ara brots­ins og hélt því fram að fyrr­ver­andi kærasta hefði ekið bif­reið­inni eftir að hafa sagt við skýrslu­töku að vinur sinn hefði ekið. Fyrir dómi sagð­ist eig­in­kona hans hafa ekið bílnum. Dómurinn taldi þá skýr­ingu ekki trú­verð­uga. Vísað var meðal ann­ars til fram­burðar lög­reglu­manns sem fylgdi bif­reið­inni, vitn­is­burðar ann­arra lög­reglu­manna og upp­töku úr örygg­is­mynda­vél sem þótti styðja að mað­ur­inn hefði sjálfur verið undir stýri.

Við ákvörðun refs­ingar leit dóm­ur­inn til þess að mað­ur­inn hafði áður ítrekað gerst sekur um sam­bæri­leg umferð­ar­laga­brot. Fram kemur að þetta sé í fimmta sinn sem hann er sak­felldur fyrir akstur undir áhrifum áfengis og/eða fíkni­efna eftir að hafa náð 18 ára aldri og í þriðja sinn fyrir akstur sviptur öku­rétti. Því voru ekki talin efni til að skil­orðs­binda refs­ing­una. Auk fang­els­is­vistar var honum gert að greiða rúm­lega 850 þús­und krónur í sak­ar­kostnað og málsvarn­ar­laun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina