Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

„Þeir komu með mig hingað til að drepa mig“

Þekktur læknir frá Gaza í lífs­hættu í ísra­elsku fang­elsi

„Þeir komu með mig hingað til að drepa mig“
Dr. Hussam Abu Safiya Abu Safiya seg­ist ekki eiga langt eftir Mynd: Skjáskot

Einn þekkt­asti læknir Gaza, Hussam Abu Safiya, er nær óþekkj­an­legur eftir alvar­lega áverka sem hann er sagður hafa hlotið í haldi í Ísrael. Lögmaður hans segir líf hans vera í bráðri hættu eftir 18 mán­aða gæslu­varð­hald án ákæru eða rétt­ar­halda, að því er fram kemur í frétt Guardian.

Abu Safiya hitti lög­mann sinn, Nasser Odeh, þann 2. júlí eftir að hafa verið fluttur í lok júní í neð­an­jarð­ar­fang­elsið Rakefet í Ísrael.

Samkvæmt Odeh átti lækn­ir­inn erfitt með öndun og tal, var svo mátt­far­inn að hann gat vart setið upp­réttur og virt­ist ítrekað vera við það að missa með­vit­und.

Abu Safiya, sem stýrði áður Kamal Adwan-sjúkra­hús­inu á norð­ur­hluta Gaza þar til ísra­elskir her­menn hand­tóku hann, sagð­ist ótt­ast að hann myndi ekki lifa fanga­vist­ina af.

„Þeir komu með mig hingað til að drepa mig. Ég sé ekki fyrir mér að ég lifi þetta af. Þetta er endir­inn,“ hefur Odeh eftir honum í sam­eig­in­legri yfir­lýs­ingu með Physicians for Human Rights Israel, sem ásamt fleiri sam­tökum krefj­ast taf­ar­lausrar lausnar hans úr haldi.

Segja árásir á heilbrigðiskerfið hluta af stærra mynstri

Milena Ansari hjá Physicians for Human Rights Israel segir fang­elsun Abu Safiya hluta af víð­tækara mynstri árása Ísraels á heil­brigð­is­kerfi Palest­ínu.

Á sama tíma greindi fjöl­skylda fjög­urra mán­aða palest­ínsks drengs, Ahmad Maarouf Zaid, frá því að hann hefði lát­ist eftir að ísra­elskir her­menn hefðu komið í veg fyrir að fjöl­skyldan kæm­ist að sjúkra­bíl við eft­ir­lits­stöð á Vest­ur­bakk­anum.

Að sögn fjöl­skyld­unnar þurftu þau sjálf að aka barn­inu um ógreið­færa fjall­vegi til Ramallah, sem tafði með­ferð þess um rúma klukku­stund.

„Fréttir af nýbura sem deyr eftir tafir við eft­ir­lits­stöð, hand­taka læknis sem veitti heil­brigð­is­þjón­ustu og síversn­andi mann­úð­ar­á­stand á Gaza eru ekki ein­angruð atvik,“ sagði Ansari. „Þau end­ur­spegla kerf­is­bundið mynstur þar sem grafið er undan for­sendum fyrir rétti Palest­ínu­manna til heil­brigðis.“

Barinn daglega

Fyrir hand­töku sína varð Abu Safiya eitt helsta and­lit heil­brigð­is­starfs­manna á Gaza sem reyndu að sinna sjúk­lingum meðan þjóð­ar­morð stóð sem hæst.

Hann er í hópi þús­unda palest­ínskra óbreyttra borg­ara sem eru í haldi án dóms og laga. Ísraelsk mann­rétt­inda­sam­tök hafa sakað fang­els­is­yf­ir­völd um að reka fang­elsi sem jafn­gildi pynt­inga­búðum.

Lögmaður hans segir að Abu Safiya hafi í lok maí verið fluttur í ein­angrun í Ganot-fang­elsið án skýr­inga. Þar hafi fanga­verðir ráð­ist á hann með hömrum og kylfum skömmu eftir að hann kom fram í gegnum fjar­fund­ar­búnað við mál­flutn­ing fyrir hæsta­rétti vegna gæslu­varð­halds síns.

Síðar hafi hann verið fluttur í Rakefet-fang­elsið þar sem heilsu hans hafi hrakað veru­lega.

„Ég hef heim­sótt dr. Abu Safiya nokkrum sinnum frá því hann var hand­tek­inn, en sá maður sem ég hitti nú var ekki sami ein­stak­lingur og áður,“ sagði Odeh og kall­aði eftir taf­ar­lausri óháðri lækn­is­skoðun.

Samkvæmt lög­mann­inum sagð­ist Abu Safiya hafa verið bar­inn dag­lega í Rakefet og misst með­vit­und nokkrum sinnum vegna áverka sinna.

Ísraelsk fangelsisyfirvöld hafna ásökunum

Rakefet-fang­elsið, þar sem fangar sjá aldrei dags­ljós, var reist á níunda ára­tugnum fyrir hátt­setta skipu­lagða glæpa­menn en síðar lokað þar sem það þótti ómann­úð­legt. Fang­elsið var opnað á ný að fyr­ir­skipun þjóðar­ör­ygg­is­ráð­herra Ísraels, Itamar Ben-Gvir.

Aðrir palest­ínskir fangar sem þar hafa verið í haldi hafa einnig lýst loft­leysi og köfn­un­ar­til­finn­ingu í yfir­fullum og óloft­ræstum klefum.

Tals­maður ísra­el­skra fang­els­is­yf­ir­valda hafn­aði ásök­unum Odeh og sagði þær „rangar og algjör­lega án stað­reynda“, en vildi ekki tjá sig um heilsu­far Abu Safiya og vís­aði til per­sónu­verndar.

„Hin endanlega niðurlæging“

Eins og segir frá hér fyrir ofan var dauði hins fjög­urra mán­aða gamla Ahmads til­kynntur á sunnu­dags­kvöld. Dreng­ur­inn fædd­ist eftir margra ára glasa­frjóvg­un­ar­með­ferð og hafði verið við góða heilsu þar til hann fékk háan hita á sunnu­dags­morgun.

Fjöl­skyldan kall­aði eftir sjúkra­bíl sem beið við hlið Ein Ayoub-hliðs­ins í flótta­manna­búð­unum Deir Ammar.

Frá 7. októ­ber 2023 hefur Ísrael reglu­lega bannað öku­tækjum, þar á meðal sjúkra­bílum, að fara um þessa leið sem er helsta teng­ingin við Ramallah og sjúkra­hús borg­ar­innar.

Að sögn fjöl­skyld­unnar stöðv­uðu fjórir ísra­elskir her­menn for­eld­rana þegar þau reyndu að kom­ast að sjúkra­bílnum, þrátt fyrir ítrek­aðar bænir þeirra um að fá að fara í gegn.

Frændi barns­ins, Arafat Ahmad Zaid, sagði að dreng­ur­inn hefði þurft súr­efni og að lífi hans hefði hugs­an­lega verið bjargað ef hann hefði kom­ist tím­an­lega á sjúkra­hús.

Ísra­elski her­inn neitar því að hafa komið í veg fyrir að fjöl­skyldan fengi lækn­is­að­stoð.

„Það eru engin orð til að lýsa sárs­auk­anum við að horfa á eigið barn deyja í fang­inu á sér og vita að ekk­ert sé hægt að gera til að bjarga því. Það er hin end­an­lega þján­ing. Það er hin end­an­lega nið­ur­læg­ing,“ sagði Arafat Ahmad Zaid.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Tækið er sagt geta borið fjóra fullorðna einstaklinga
Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi