Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Hann öskraði af kvölum“

Mummi segir frá hrotta­legu slysi á sjó

„Hann öskraði af kvölum“
Mummy Týr Mummi hefur upp­lifað eitt og annað

Mummi Týr Þór­ar­ins­son er eilífð­artöffari sem djöfl­að­ist í gegnum fyrri hluta ævinnar í drykkju, dópi og ves­eni og var með sjálfs­morðs­hugs­anir í mörg ár. Meðal þess sem hann hefur starfað við á ævinni er sjó­mennskan en í einka­við­tali Mannlífs lýsir hann meðal ann­ars því er báts­mað­ur­inn í síðu­tog­ar­anum Þormóði fót­brotn­aði illa. Hér má sjá þanng kafla við­tals­ins:

Fótbrotnaði illa

Þær eru margar sög­urnar af sjónum.

„Einu sinni, um sautján ára aldur, ráf­aði ég niður á bryggju þegar ég vissi að gamli síðu­tog­ar­inn Þormóður Goði var að fara úr höfn. Það vant­aði menn, skip­stjór­inn benti bara og ég var val­inn um borð. Þegar við vorum lagðir af stað tók ég eftir manni sof­andi á bekk í mat­salnum. Hann var í jakka­fötum og með bindi og pass­aði illa við rest­ina af áhöfn­inni. Enginn pældi þó í því fyrr en hann vakn­aði nokkrum klukku­stundum síðar. Þá kom í ljós að hann hafði verið á djammi með ein­hverjum úr skip­inu, sofnað og ein­fald­lega verið tal­inn með.

Hann reynd­ist vera fjöl­skyldu­maður í fullri vinnu ann­ars staðar. Ég gleymi aldrei ang­ist­inni í and­lit­inu á honum þegar hann fór upp í brú til að ná sam­bandi í gegnum Gufunes og láta vita af sér. Hann sagði lítið allan túr­inn.

Í sama túr fengum við brot. Ég var úti á dekki þegar það reið yfir. Menn flugu um eins og tuskur og ég sá báts­mann­inn kast­ast í loft­köstum og lenda undir tog­spil­inu. Það var hrein heppni að eng­inn fór í sjó­inn. Veðrið var snar­vit­laust og við vorum að ganga frá til að sigla í var.

Í mínum huga var báts­mað­ur­inn eld­gam­all en lík­lega hefur hann verið mið­aldra. Hann fót­brotn­aði illa og var dreg­inn öskr­andi af kvölum inn í mat­sal. Sjúkra­kass­inn var auð­vitað löngu tæmdur af verkja­lyfjum. Við skipt­umst á að halda fæt­inum kyrrum í óveðr­inu næstu klukku­tím­ana þar til við náðum landi og sjúkra­bíll tók við honum.

Ég man líka eftir loðnu­skipi þar sem við vorum að leggja nót­ina í miklum velt­ingi. Einn háseti fékk snurpu­hring í ennið og rot­að­ist. Engir hjálmar voru í boði. Hann reis upp, ringlaður og alblóð­ugur og með ljótan skurð á enn­inu. Skip­stjór­inn kom hlaup­andi með ein­hvers konar hefti­byssu, skellti sár­inu saman og svo var haldið áfram. Engin mis­kunn. Þetta varð svo bara enn ein sagan til að segja á næsta djammi.“

Mummi Týr var um tíma á varð­skip­inu Tý. Fyrsta sjó­ferðin hans með Tý var fyrsti túr skips­ins eftir að vinur hans var drep­inn um borð.

„Þetta var í öllum fjöl­miðlum. Hann var stung­inn og sá sem stakk hann henti sér í sjó­inn. Þetta er gam­alt saka­mál. Þetta var mjög skraut­legur túr að því leyt­inu til að mórall­inn um borð var nátt­úr­lega hrylli­legur. Maður hafði verið stung­inn og drep­inn og ein­hver geð­veiki í gangi. Vinur minn hafði reynt að stoppa gaur­inn með hníf­inn. Ég sem götu­barn var nátt­úr­lega búinn að vera í þessum heimi lengi en það sem hafði áhrif á mig var hvað það var vondur mórall um borð. Skilj­an­lega. Ég syrgði vin minn og var allt í einu kom­inn á stað­inn þar sem hann var drep­inn. Senni­lega hefur gengið illa að manna skipið þannig að ég fékk auð­veld­lega pláss eftir þetta atvik. Þetta var ekki góður túr.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu