Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Netanyahu kærir ísraelska fjölmiðla

Fjöl­miðl­arnir upp­ljóstr­uðu um vit­neskju for­sæt­is­ráð­herr­ans um yfir­vof­andi hryðju­verka­árás Hamas-liða 7. októ­ber 2023.

Netanyahu kærir ísraelska fjölmiðla
Benjamin Net­anyahu Fjöl­miðl­arnir standa við skrif sín Mynd: Trausti Hafsteinsson

Net­anyahu hefur ákveðið að höfða meið­yrða­mál gegn ísra­elska fjömiðl­inum Haaretz og fleiri fjöl­miðlum vegna frétta um við­var­anir fyrir árás Hamas

Benjamin Net­anyahu, for­sæt­is­ráð­herra Ísraels, höfð­aði á þriðju­dag meið­yrða­mál gegn dag­blað­inu Haaretz, öðrum fjöl­miðlum og blaða­mönnum vegna fréttar Shlomis Eldar og Ruth Yuval um að hann hefði fengið við­vörun áður en Hamas-sam­tökin gerðu árás­ina 7. októ­ber 2023.

Net­anyahu höfðar einnig mál gegn blaða­mönn­unum Nadav Eyal, Uri Misgav, Barak Ravid og Attila Somfalvi, auk dag­blaðs­ins Yedioth Aharonot og frétta­mið­ils­ins Ynet.

Í stefnu Net­anya­hus er frétt Haaretz lýst sem „algjörri og aug­ljósri lygi sem á sér enga stoð í raun­veru­leik­anum“. Hann sakar hina fjöl­miðl­ana og blaða­menn­ina um að hafa magnað upp ásak­an­irnar, birt fram­halds­fréttir um málið og sett fram ummæli sem hann telur meið­andi.

Net­anyahu krefst 2,6 millj­óna ísra­el­skra sikla, jafn­virði um 846 þús­und Banda­ríkja­dala, í skaða­bætur frá þeim stefndu. Í stefn­unni hafnar hann því að hafa fengið við­var­anir.

Í kærunni segir að „það verði að taka af allan vafa, með afdrátt­ar­lausum hætti, að eng­inn fundur og/eða sam­tal hafi átt sér stað milli for­sæt­is­ráð­herr­ans og for­seta Sam­ein­uðu arab­ísku fursta­dæmanna. Þá hafi heldur eng­inn fundur og/eða sam­tal átt sér stað milli for­sæt­is­ráð­herr­ans og Abbas Kamel, yfir­manns egyp­sku leyni­þjón­ust­unnar, á þeim tímum sem haldið er fram eða á nokkrum tíma frá sept­em­ber og fram til 7. októ­ber 2023. Þetta hrekur með öllu fram­an­greindar rang­færslur.“

Máls­höfð­unin kemur í kjöl­far þess að Net­anyahu átti leyni­legan fund með Mohamed bin Zayed, for­seta Sam­ein­uðu arab­ísku fursta­dæmanna, á sunnu­dag. Samkvæmt heim­ild­ar­manni sem þekkir til máls­ins bað Net­anyahu for­set­ann um að hafna frétt Haaretz um að hann hefði varað við yfir­vof­andi árás Hamas skömmu fyrir 7. októ­ber 2023.

Net­anyahu stað­festi að hann hefði farið í heim­sókn­ina ásamt eig­in­konu sinni en hafn­aði frétt Associated Press um að hann hefði ætlað að biðja for­set­ann um að vísa frétt Haaretz á bug.

Utan­rík­is­ráðu­neyti Sam­ein­uðu arab­ísku fursta­dæmanna vildi ekki tjá sig um fréttir af fund­inum en sagði að ríkið héldi „opnum og beinum sam­skipta­leiðum“ við Ísrael og miðl­aði „öllum við­eig­andi upp­lýs­ingum úr leyni­þjón­ustu“.

Skrif­stofa Net­anya­hus hafði ekki tjáð sig um málið þegar fréttin var birt.

Viðvaranir til Netanyahus fyrir 7. október

- Viðvörun frá Sam­ein­uðu arab­ísku fursta­dæm­unum:

Haaretz greindi fyrst frá mál­inu og The New York Times stað­festi síðar frétt­ina. Mohamed bin Zayed, for­seti Sam­ein­uðu arab­ísku fursta­dæmanna, var­aði Net­anyahu við um tíu dögum fyrir 7. októ­ber og sagði Hamas-sam­tökin und­ir­búa umfangs­mikla árás. Hann hvatti for­sæt­is­ráð­herr­ann til að taka við­vör­un­ina alvar­lega.

- Fyrsta við­vörun Egypta:

The Atlantic greindi fyrst frá því að Abbas Kamel, yfir­maður egyp­sku leyni­þjón­ust­unnar, hefði farið í leyni­lega heim­sókn til Ísraels 26. sept­em­ber 2023. Þar var­aði hann við því að Hamas virt­ist und­ir­búa stór­fellda árás.

- Frekari við­var­anir frá Egyptum:

Yedioth Ahar­onoth og The Wall Street Journal greindu frá því að Kamel hefði hringt í Net­anyahu nokkrum dögum fyrir 7. októ­ber og varað hann við vís­bend­ingum um yfir­vof­andi árás frá Gaza.

Tveir heim­ild­ar­menn, þar á meðal ein­stak­lingur sem ræddi beint við bin Zayed, stað­festu frétt­ina við The New York Times á föstu­dag.

Samkvæmt The New York Times sýnir afrit af fundi sem Net­anyahu boð­aði til með hátt­settum örygg­is­full­trúum Ísraels 1. októ­ber 2023 að hann hafi sagt þeim að allar hern­að­ar­að­gerðir Ísraels á Gaza gætu dregið úr líkum á því að Sádi-Arabía tæki upp stjórn­mála­sam­band við Ísrael. Net­anyahu taldi að sam­komu­lag um slíkt sam­band væri þá skammt undan.

Á föstu­dag greindi The Atlantic frá því að Kamel hefði komið til Ísraels 11 dögum fyrir árás Hamas 7. októ­ber og varað við því að vopn­aðir hópar á Gaza væru að und­ir­búa stór­fellda árás. Glugginn til að koma í veg fyrir ham­farir væri að lok­ast.

Í frétt­inni, sem byggði á upp­lýs­ingum frá ísra­elskum, egypskum, arab­ískum, banda­rískum og evr­ópskum emb­ætt­is­mönnum sem fengið höfðu upp­lýs­ingar um heim­sókn­ina, kom fram að Kamel hefði mælt með því að Ísraelar veittu Hamas efna­hags­legar til­slak­anir til að koma í veg fyrir átök.

Samkvæmt frétt­inni var­aði Kamel við því að ef Ísrael breytti ekki stefnu sinni myndi „Gaza springa framan í ykkur“. Þessi orð hafði fyrr­ver­andi ísra­elskur emb­ætt­is­maður eftir Kamel eftir að hafa fengið upp­lýs­ingar um heim­sókn­ina.

The Wall Street Journal greindi frá því á mánu­dag að Kamel hefði hringt í Net­anyahu nokkrum dögum fyrir árás Hamas 7. októ­ber 2023 og varað hann við vís­bend­ingum um yfir­vof­andi árás frá Gaza. Samkvæmt emb­ætt­is­mönnum í arab­ísku ríki höfðu tvær fyrri við­var­anir frá Egyptum ekki verið teknar til greina.

Standa við skrif sín

Ákvörðun Net­anya­hus um að höfða mál kemur í kjöl­far þess að hann sendi Haaretz og blaða­mönn­unum Eldar og Yuval aðvör­un­ar­bréf fyrr í þessum mán­uði vegna fyr­ir­hug­aðrar meið­yrða­máls­höfð­unar. Haaretz svar­aði bréf­inu með því að lýsa yfir fullum stuðn­ingi við frétta­flutn­ing sinn.

Í opin­berri yfir­lýs­ingu vegna hót­ana Net­anya­hus um máls­höfðun sagði Haaretz að blaðið „láti ekki þagga niður í sér vegna til­rauna for­sæt­is­ráð­herr­ans til að stöðva gagn­rýna blaða­mennsku – og muni ekki hika við að leiða sann­leik­ann í ljós fyrir dóm­stólum“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco