Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Afsögn Guðmundar Inga kveikti hörð orðaskipti Kristrúnar og Sigmundar

„Ég þoli ekki þegar verið er að klaga upp á mig“

Afsögn Guðmundar Inga kveikti hörð orðaskipti Kristrúnar og Sigmundar
Kristrún Frosta­dóttir Er for­sæt­is­ráð­herra Íslands Mynd: Víkingur

Harðar orða­hnipp­ingar urðu milli Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, for­manns Mið­flokks­ins og fyrrum for­sæt­is­ráð­herra, og Kristrúnar Frosta­dóttur for­sæt­is­ráð­herra á Alþingi í dag þegar fyrr­ver­andi ráð­herra­emb­ætti Guð­mundar Inga Krist­ins­sonar bar á góma í óund­ir­búnum fyr­ir­spurnum.

Sig­mundur Davíð hóf mál sitt á fyr­ir­hug­aðri umræðu um bókun 35 en beindi síðan sjónum sínum að aðdrag­anda afsagnar Guð­mundar Inga sem mennta og barna­mála­ráð­herra. Hann spurði for­sæt­is­ráð­herra hvort for­menn stjórn­ar­flokk­anna hefðu í raun ákveðið að Guð­mundur Ingi skyldi víkja áður en hann til­kynnti sjálfur um afsögn sína.

„Tóku for­ystu­menn rík­is­stjórn­ar­innar, stundum kall­aðar val­kyrj­urnar, ákvörðun um það að fyrr­nefndur hv. þing­maður skyldi víkja úr rík­is­stjórn sem ráð­herra áður en hann fékk skila­boð frá aðstoð­ar­manni sínum þar um?“ spurði Sig­mundur Davíð.

Kristrún staðfestir að formennirnir ræddu málið

Kristrún sagði að hún hefði þegar svarað fyrir málið og árétt­aði að Guð­mundur Ingi hefði sjálfur ákveðið að segja af sér ráð­herra­emb­ætti. Hún stað­festi þó að for­menn stjórn­ar­flokk­anna hefðu rætt stöð­una.

„Það er ekk­ert óeðli­legt við að mál af þessum toga séu rædd meðal for­manna ef það kann að hafa áhrif á rík­is­stjórn­ar­skip­an­ina, þannig að við ræddum þessi mál að sjálf­sögðu,“ sagði Kristrún.

Hún bætti við: „En í lok dags, eins og ég hef lýst hér yfir, er þetta ákvörðun sem er tekin af hv. þing­manni sjálfum eins og hann hefur lýst yfir.“

Sig­mundur Davíð sagð­ist hins vegar skilja svar for­sæt­is­ráð­herra á annan veg. Hann sagði hana hafa við­ur­kennt að vilja frekar ræða bókun 35 en mál­efni ráð­herr­ans og taldi sig hafa skilið orð hennar þannig að for­menn stjórn­ar­flokk­anna hefðu ákveðið sam­eig­in­lega að Guð­mundur Ingi skyldi víkja.

„Svo hafi honum verið gert það ljóst að honum væri fyrir bestu að hafa frum­kvæði að því sjálfur enda, eins og kom fram í skila­boðum til hans, þá biði hans ella stríð,“ sagði Sig­mundur Davíð.

„Ég þoli ekki þegar verið er að klaga upp á mig“

Þessi túlkun fór illa í for­sæt­is­ráð­herra sem svar­aði af hörku og sak­aði Sigmund Davíð um að leggja henni orð í munn.

„Ég þoli ýmis­legt í þessum sal en ég þoli ekki þegar verið er að klaga upp á mig að ég hafi sagt eitt­hvað sem er ekki satt,“ sagði Kristrún.

Hún lagði áherslu á að hún hefði aðeins sagt að for­menn stjórn­ar­flokk­anna hefðu rætt stöð­una, en ekki að þeir hefðu ákveðið að Guð­mundur Ingi ætti að víkja.

„Ég sagði að for­menn hefðu rætt saman en ekki um hvað,“ sagði Kristrún og vís­aði til þess að ýmsar aðstæður gætu kallað á sam­tal milli for­manna stjórn­ar­flokka, meðal ann­ars heilsu­brestur ráð­herra.

„Auðvitað þegar koma upp svona aðstæður á stjórn­ar­heim­il­inu sest fólk saman og ræðir málin,“ sagði hún.

Segir Guðmund Inga hafa tekið ákvörðunina sjálfur

For­sæt­is­ráð­herra sagði slíkt sam­tal eðli­legan hluta stjórn­ar­sam­starfs enda gæti staða ráð­herra haft áhrif á stjórn­skipan og starf ráðu­neyta. Hún ítrek­aði síðan að for­menn­irnir hefðu rætt stöð­una og síðar rætt við Guðmund Inga.

„Það breytir því ekki að ég hef sagt frá hér inni, þar sem maður segir satt í þess­ari pontu og eftir manni er skrifað, að við ræddum saman um stöðu sem upp var komin og ræddum síðar við hv. þing­mann um þá stöðu,“ sagði Kristrún.

Hún sagð­ist ekki hafa nákvæma tíma­línu máls­ins fyrir framan sig en ítrek­aði að end­an­leg ákvörðun hefði verið Guð­mundar Inga sjálfs.

„Í kjöl­farið, ein­hverju seinna, ég er ekki með þá tíma­línu skrif­aða upp á punkt og prik, þá segir við­kom­andi af sér á sínum for­sendum og hann hefur sjálfur sagt það,“ sagði Kristrún.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Pólitík

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

„Slíkur fals-flokkur á engan tilvistarrétt, því hann gerir meira ógagn en gagn“
  • Pólitík

    Dorrit skorar á for­seta Ísraels að hleypa arab­ískum flokkum í rík­is­stjórn

  • Pólitík

    Segir öfga­ísla­mista og öfga hægri­menn eiga margt sam­eig­in­legt

  • Pólitík

    „Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mann­rétt­inda á Alþingi“

  • Pólitík

    Kína vill efla tengslin við Ísland á lyk­ilsviðum

  • Pólitík

    Sig­mundur Davíð svarar fyrir fjar­veru sína úr öllum atkvæða­greiðslum