Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Þóttist vera afleysingakennari því henni „leiddist“

Spurði krakk­ana hvort þau væru með mari­júana og sagði einum að „grjót­halda kjafti“.

Þóttist vera afleysingakennari því henni „leiddist“
Amy Jones Amy hefur verið kærð fyrir atvikið Mynd: Trausti Hafsteinsson

Tuttugu og þriggja ára kona hefur verið ákærð fyrir að hafa þóst vera afleys­inga­kenn­ari í grunn­skóla vegna þess að henni „leidd­ist“.

Amy Jones var ákærð fyrir fimm brot sem snúa að því að hafa útsett barn fyrir skað­legum lýs­ingum og eitt brot fyrir að hafa gefið sig út fyrir að vera opin­ber starfs­maður sunnu­dag­inn 4. októ­ber. Ákær­urnar tengj­ast atviki sem átti sér stað 24. sept­em­ber, sam­kvæmt dóms­gögnum.

Jones er sögð hafa kannað aðstæður við Rufus King International High School í Milwaukee viku fyrir atvikið. Hún var sjálf nem­andi við skól­ann áður og sam­kvæmt kæru komst hún fram hjá örygg­is­vörðum með því að bland­ast saman við nem­enda­hóp­inn, að því er Fox 6 greinir frá. Í heim­sókn­inni heyrði hún starfs­fólk ræða um fyr­ir­tæki sem útveg­aði afleys­inga­kenn­ara.

Þann 24. sept­em­ber voru átta kenn­arar fjar­ver­andi og sjö afleys­inga­kenn­arar voru við störf. Jones „var heppin því það vant­aði einmitt afleys­inga­kenn­ara í eina stöðu,“ sagði skóla­stjór­inn Doreen Badillo. Jones gaf sig þá út fyrir að vera afleys­inga­kenn­ari og skráði sig inn sem slíkur, sam­kvæmt Fox 6.

Jones fór síðan inn í kennslu­stofu sem annar kenn­ari hafði und­ir­búið. Sá kenn­ari var með henni í um 20 mín­útur áður en hann fór.

Eftir að kenn­ar­inn fór spurði Jones nem­endur hvort ein­hver þeirra væri með mari­júana eða raf­sí­gar­ettu, sam­kvæmt kæru máls­ins. Hún sagði við bekk­inn að þetta væri „svo hel­víti leið­in­legt og pirr­andi“.

Hún er einnig sögð hafa raðað nem­endum eftir kyn­þætti og kyni og notað kyn­þátt­a­níð og blóts­yrði. Þá hafi hún sagt við einn nem­anda að „grjót­halda kjafti“.

Jones er jafn­framt sögð hafa gert lítið úr nem­endum vegna þyngdar þeirra, kyn­þáttar, útlits og fjár­hags­stöðu. Þá hafi hún montað sig af því að „vera með sak­fell­ingar á saka­skrá og vera alveg sama þótt hún færi í fang­elsi,“ sam­kvæmt kæru máls­ins.

Ummæli hennar „ollu öllum bekknum óþæg­indum“ og eftir fyrstu kennslu­stund­ina létu nem­endur starfs­fólk skól­ans vita. Badillo skóla­stjóri hafði sam­band við afleys­inga­kenn­ara­þjón­ust­una, sem stað­festi að Jones væri ekki starfs­maður hennar, sam­kvæmt kærunni.

Lögregla kom á skól­ann og fylgdi Jones út úr hús­inu. Hún ræddi við lög­reglu­menn eftir atvikið og er sögð hafa sagt að hún hefði þóst vera kenn­ar­inn vegna þess að henni „leidd­ist“. Jones sagði einnig að hún hataði börn og hefði ein­fald­lega viljað „gera eitt­hvað ruglað“.

Badillo sendi í kjöl­farið frá sér yfir­lýs­ingu til nem­enda og for­eldra skól­ans þar sem stað­fest var að lög­reglu­menn Milwaukee-lög­regl­unnar sem starfa sem tengiliðir við skól­ann og jafn­rétt­is­stjóri skóla­hverf­is­ins hefðu verið látnir vita.

Badillo stað­festi einnig að skóla­hverfið rann­sak­aði málið sjálf­stætt, sam­hliða rann­sókn lög­regl­unnar í Milwaukee.

Jones mætti fyrir dóm­stól 6. októ­ber. Næst þar hún að mæta fyrir dómi 20. októ­ber þegar frum­at­hugun máls­ins fer fram.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Tækið er sagt geta borið fjóra fullorðna einstaklinga
Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi